1. nóvember 2011
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 62 leikmenn til æfinga um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni og eru valdir tveir hópar, leikmenn fæddir 1995 annars vegar og 1996 hinsvegar.
28. október 2011
Þær Írunn Þorbjörg Aradóttir og Lára Kristín Pedersen voru valdar í lið mótsins eftir úrslitakeppni EM U17 kvenna en úrslitakeppnin fór fram í Sviss í sumar. Það er tækninefnd UEFA sem sér um að velja lið mótsins og birtir niðurstöðurnar í skýrslu sem kom út á dögunum.
26. október 2011
Kvennalandsliðið lék sinn síðasta leik á árinu þegar liðið mætti Norður Írum í kvöld. Leikið var í Belfast og var leikurinn í undankeppni EM. Lokatölur urðu 0 -2 eftir að Íslendingar höfðu skorað bæði mörkin í fyrri hálfleiknum.
26. október 2011
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og fara þær fram í Kórnum og í Egilshöll.  Þjálfararnir Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson hafa valið hópa fyrir þessar æfingar.
26. október 2011
Strákarnir í U19 gerðu jafntefli í dag í lokaleik sínum í undankeppni EM en leikið var á Kýpur. Lokatölur urðu 2 - 2 eftir að staðan hafði verið 1 - 1 í leikhléi. Sigur hefði nægt liðinu til þess að tryggja sér sæti í milliriðlum en liðið hlaut tvo stig í leikjunum þremur.
26. október 2011
Strákarnir í U19 leika í dag síðasta leik sinn í undankeppni EM en riðill Íslands er leikinn á Kýpur. Ísland mætir Noregi í dag og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma. Ísland verður að vinna þennan leik til þess að eiga möguleika á sæti í milliriðlum en önnur úrslit þýða að Ísland situr eftir.
25. október 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Norður Írum á morgun, miðvikudag, í undankeppni EM.  Leikið verður á Oval vellinum í Belfast og hefst leikurinn kl. 18:30 að íslenskum tíma.
24. október 2011
U19 landslið karla gerði á sunnudag 1-1 jafntefli við Kýpur í undankeppni EM 2012, en riðillinn er leikinn þar í landi.  Staðan er ekki ósvipuð og hjá U17 karla fyrir skömmu, þar sem Ísland er í neðsta sætinu fyrir lokaumferðina, en kemst áfram í milliriðla með sigri á Noregi í lokaleiknum.
23. október 2011
Strákarnir í U19 leika í dag annan leik sinn í undankeppni EM en leikið er við heimamenn í Kýpur.  Leikurinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla. hefur tilkynnt byrjunarliðið
22. október 2011
Íslenska kvennalandsliðið vann góðan útisigur á Ungverjum í dag en leikurinn var í undankeppni EM.  Lokatölur urðu 0 - 1 og var það Dóra María Lárusdóttir sem að skorað mark Íslands á 68. mínútu.  Mikil barátta einkenndi leikinn og ekki litu mörg færi dagsins ljós.  Það er skammt stórra högga á milli því liðið heldur á morgun til Belfast en leikið verður við Norður Íra í undankeppni EM á miðvikudaginn.
21. október 2011
Lettar lögðu Íslendinga í fyrsta leiknum í undankeppni EM en riðillinn er leikinn á Kýpur. Lokatölur urðu 2 - 0 Lettum í vil og komu mörkin í sitt hvorum hálfleiknum. Næsti leikur íslenska liðsins er á sunnudaginn þegar leikið verður gegn heimamönnum í Kýpur.
21. október 2011
Strákarnir í U19 eru nú staddir á Kýpur en þar leika þeir í undankeppni EM. Fyrsti leikur Íslands er í dag þegar þeir mæta Lettum og hefst sá leikur kl. 12:00 að íslenskum tíma. Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
21. október 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Ungverjum í undankeppni EM.  Leikið er í Pápa í Ungverjalandi og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Þetta er fjórði leikur Íslands í undankeppninni og hefur liðið 7 stig eftir sigur leiki gegn Búlgaríu og Noregi ásamt jafntefli gegn Belgíu.
21. október 2011
Á morgun leika Ísland og Ungverjaland í undankeppni EM og fer leikurinn fram ytra.  Leikurinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma en íslenska liðið hefur 7 stig eftir þrjá leiki í riðlinum.  Ungverjar hafa tapað báðum viðureignum sínum til þessa en þetta er fyrsti heimaleikur þeirra í keppninni.
19. október 2011
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í morgun, er karlalandslið Íslands í 108. sæti og fellur niður um tvö sæti frá síðasta lista. Spánverjar eru í efsta sæti listans og hafa þar nokkuð gott forskot.
18. október 2011
Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið 36 leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Egilshöll og Kórnum og koma leikmennirnir frá 20 félögum.
17. október 2011
Strákarnir í U17 leika í dag lokaleik sinn í undankeppni EM en leikið er í Ísrael.  Heimamenn eru mótherjarnir í leik dagsins og hefst hann kl. 10:00 að íslenskum tíma.  Sigur fleytir íslenska liðinu áfram í milliriðla en riðillinn er galopinn, öll liðin hafa þrjú stig að loknum tveimur leikjum.  Gunnar Guðmundsson hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
17. október 2011
Strákarnir í U17 unnu gríðarlega sætan sigur á jafnöldrum sínum frá Ísrael í dag en leikurinn var í lokaumferð undankeppni EM. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland og skoraði Stefán Þór Pálsson sigurmarkið þegar þrjár mínútur lifðu eftir af venjulegum leiktíma. Strákarnir tryggðu sér því sigur í riðlinum og komast áfram í milliriðla.