5. júlí 2011
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Frökkum í dag á Norðurlandamót stúlkna sem fram fer í Finnlandi. Þetta er annar leikur liðsins en liðið gerði jafntefli í gær við Þjóðverja. Leikurinn í dag hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma.
4. júlí 2011
Stelpurnar í stúlknalandsliðinu gerðu jafntefli gegn Þjóðverjum í fyrsta leik liðsins á Norðurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi.  Lokatölur urðu 1 - 1 eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.  Elín Metta Jensen gerði mark Íslands úr vítaspyrnu í síðari hálfleik en Þjóðverjar jöfnuðu strax mínútu síðar.
4. júlí 2011
Ísland vann til silfurverðlauna í 7 manna fótbolta á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu í Grikklandi. Ísland og Svartfjallaland mættust í úrslitaleik B-riðils þar sem Svartfellingar fóru með 2-1 sigur af hólmi. Lárus Örn Sigurbjörnsson skoraði mark Íslands í leiknum með glæsilegu skoti og minnkaði muninn í 2-1 og þar við sat.
4. júlí 2011
Norðurlandamót stúlkna hefst í dag í Finnlandi og mætir íslenska liðið því þýska í fyrsta leik sínum.  Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður leikið á Äänekoski vellinum í Jyväskylä.  Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í dag.
30. júní 2011
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur gert breytingu á hópnum er leikur á Norðurlandamótinu í Finnlandi, dagana 4. - 9. júlí. Amanda Mist Pálsdóttir úr Þór kemur inn í hópinn í stað Elmu Láru Auðunsdóttur sem dró sig út úr hópnum.
29. júní 2011
Á nýjum styrkleikalista FIFA hjá körlum, sem birtur var í dag, fellur Ísland um sex sæti og situr nú í 122. sæti listans. Spánverjar eru sem fyrr í efsta sætinu og Hollendingar sitja sem fastast í öðru sæti.
29. júní 2011
Í dag eru liðin 60 ár frá því að Íslendingar lögðu Svía í landsleik í knattspyrnu en leikið var á Melavellinum.  Lokatölur urðu 4 – 3 Íslendingum í vil og skoraði Ríkharður Jónsson öll mörk Íslendinga.  Þessi dagur hefur jafnan verið minnst sem eins hins fræknasta í íslenskri íþróttasögu því sama dag höfðu Íslendingar betur gegn Dönum og Norðmönnum í landskeppni í frjálsum íþróttum sem fram fór í Osló.
29. júní 2011
Íslensku strákarnir hafa tryggt sér sæti í úrslitaleik 7 manna fótboltans í B-riðli á Alþjóðaleikum Special Olympics sem nú fara fram í Aþenu í Grikklandi.  Ísland mætti Austurríkismönnum í dag og hafði betur 4-1.  Íslenska liðið hefur því unnið alla leiki sína á mótinu til þessa.
29. júní 2011
Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson er í stjörnuliði úrslitakeppni EM U21 karla en sérstakt tæknlið UEFA valdi leikmenn í þetta lið. Flestir leikmenn koma frá Evrópumeisturum Spánverja en þeir eiga sjö fulltrúa af 23 leikmönnum í þessu stjörnuliði UEFA.
24. júní 2011
Í dag var sektarsjóður U21 karlalandsliðsins afthendur til söfnunarátaksins "Meðan fæturnir bera mig".  Í þeirri söfnun var verið safna fyrir krabbameinsjúk börn en þau Signý Gunnarsdóttir, Sveinn Benedikt Rögnvaldsson, Alma María Rögnvaldsdóttir og Guðmundur Guðnason hlupu þá í kringum landið.
20. júní 2011
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 54 leikmenn til æfinga um komandi helgi.  Eru þetta undirbúningsæfingar fyrir Norðurlandamót U17 karla sem haldið verður hér á landi og hefst 2. ágúst. Ísland mun senda tvö lið til leiks á mótið
20. júní 2011
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn er leikur á opna Norðurlandamóti stúlkna í Finnlandi. Mótið fer fram dagana 4. - 9. júlí og mæta íslensku stelpurnar stöllum sínum frá Þýskalandi, Frakklandi og Noregi í riðlakeppninni.
19. júní 2011
Strákarnir í U21 féllu út með sæmd úr úrslitakeppni EM sem fram fer í Danmörku um þessar mundir.  Leikið var gegn heimamönnum í Álaborg og fóru Íslendingar með sigur af hólmi, 3 - 1.  Eitt mark til viðbótar hefði dugað Íslendingum til að komast í undanúrslitin en þangað komust Sviss og Hvíta Rússland upp úr A riðli.
15. júní 2011
Leikmenn U21 landsliðs karla upplifa það reglulega á meðan á EM í Danmörku stendur að vera sektaðir vegna ýmissa mála. Leikmennirnir hafa nú ákveðið að í lok móts muni sektarsjóðurinn renna til verkefnisins „Á meðan fæturnir bera mig“.
14. júní 2011
Strákarnir í U21 lutu í lægra haldi gegn Sviss í dag í úrslitakeppni EM en leikið var í Álaborg. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Sviss og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik. Lokaleikur Íslands er gegn gestgjöfum Dana á laugardaginn.
14. júní 2011
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Sviss í úrslitakeppni EM í dag kl. 16:00.  Leikurinn er í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu og hefst umfjöllun um leikinn hálftíma fyrr, eða kl. 15:30.
14. júní 2011
Strákarnir í U21 leika í dag sinn annan leik í úrslitakeppni EM sem fram fer í Danmörku. Leikið verður í dag gegn Sviss í Álaborg og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu. Íslendingar töpuðu gegn Hvít Rússum í sínum fyrsta leik á meðan Sviss bar sigurorð af heimamönnum í hörkuleik.
11. júní 2011
Hvít-Rússar unnu í dag tveggja marka sigur á Íslandi í opnunarleik EM U21 landsliða karla sem fram fer í Danmörku. Íslenska liðið var betri aðilinn í leiknum lengst af, en vítaspyrna og brottvísun þegar stundarfjórðungur var eftir gjörbreytti leiknum.