15. nóvember 2010
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og fara þessar æfingar fram í Kórnum og Egilshöll.  Landsliðsþjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, hafa valið ríflega 90 leikmenn til þessara æfingar.
14. nóvember 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingar á landsliðshóp sínum en framundan er vináttulandsleikur gegn Ísrael ytra. Ragnar Sigurðsson fór ekki með hópnum í morgun vegna veikinda og hefur Matthías Vilhjálmsson FH verið valinn í hans stað. Þá var Jón Guðni Fjóluson Fram einnig bætt í hópinn.
11. nóvember 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á hópnum er mætir Ísrael í vináttulandsleik þann 17. nóvember næstkomandi. Arnór Sveinn Aðalsteinsson kemur inn í hópinn í stað Grétars Rafns Steinssonar sem er meiddur.
9. nóvember 2010
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna en þessar æfingar fram í Egilshöllinni og Kórnum.  Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa fyrir þessar æfingar.
9. nóvember 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á hópnum sem mætir Ísrael í vináttulandsleik ytra, 17. nóvember næstkomandi.  Þeir Steinþór Freyr Þorsteinsson og Stefán Logi Magnússon koma inn í hópinn.
9. nóvember 2010
Í dag var dregið í riðla í úrslitakeppni EM hjá U21 karla en úrslitakeppnin fer fram í Danmörku, dagana 11. – 25. júní.  Ísland er í A riðli með Danmörku, Sviss og Hvíta Rússlandi..  Leikir Íslands fara fram í Álaborg og Árósum. Fyrsti leikur Íslendinga verður gegn Hvít Rússum, laugardaginn 11. júní.
8. nóvember 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Ísrael í vináttulandsleik miðvikudaginn 17. nóvember.  Leikið verður í Tel Aviv en þetta er í þriðja skiptið sem þessar þjóðir mætast hjá A landsliði karla
8. nóvember 2010
Hið geysisterka mót Algarve Cup fer fram dagana 2. - 9. mars en kvennalandslið Íslands er þar á meðal þátttakenda. Ísland er í B riðli og eru þar með Svíum, Kínverjum og Dönum. Fyrsti leikur íslenska verður gegn Svíum.
8. nóvember 2010
Dregið verður í riðla í Álaborg í Danmörku, þriðjudaginn 9. nóvember og verður hægt að fylgjast með drættinum á heimasíðu UEFA. Athöfnin hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma. Þjóðunum er raðað niður eftir árangri í undankeppninni og er Ísland í efri styrkleikaflokki ásamt gestgjöfum Danmerkur, Tékklandi og Spáni.
5. nóvember 2010
Í dag var gengið frá ráðningu Willums Þórs Þórssonar sem landsliðsþjálfara Íslands í Futsal.  Ísland sendir í fyrsta skiptið landslið til keppni í Futsal og leikur í undankeppni Evrópumóts landsliða.  Riðill Íslands verður leikinn á Ásvöllum, dagana 21. - 24. janúar.  Með Íslandi í riðli leika Grikkland, Armenía og Lettland.
2. nóvember 2010
Um komandi helgi verða æfingar hjá landsliðum U17 og U19 karla og fara þær fram í Egilshöllinni og Kórnum. Þjálfararnir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson hafa valið 90 leikmenn til þessara æfinga en tveir hópar eru valdir hjá U17.
2. nóvember 2010
Næstkomandi laugardag mun fara fram landsliðsæfing í Fjarðabyggðahöllinni hjá landsliði U17 kvenna. Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið leikmenn af Austurlandi fyrir þessa æfingu og koma þeir frá sex félögum.
29. október 2010
Dregið verður í milliriðla EM hjá U17 og U19 kvenna þann 16. nóvember næstkomandi. Við sama tækifæri verður dregið í undankeppni EM U17 og U19 kvenna sem fram fer 2011/2012. Ísland er í efsta styrkleikaflokki hjá U17 kvenna og í öðrum styrkleikaflokki hjá U19 kvenna.
26. október 2010
KSÍ boðar til fundar formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga laugardaginn 20. nóvember í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli og hefst kl. 12:00.  Kl. 14.00 verður dregið í töfluröð í Pepsi-deild, 1. og 2. deild karla og Pepsi-deild kvenna á sama stað.
26. október 2010
Strákarnir í U19 töpuðu lokaleik sínum í undankeppni EM en riðill þeirra var leikinn í Wales. Síðasti leikurinn var gegn Tyrkjum sem að fóru með sigur af hólmi, 2 - 1. Íslenska liðið hafnaði því í þriðja sæti og komast ekki áfram í milliriðla.
25. október 2010
Um komandi helgi fara fram æfingar hjá U17 og U19 kvennalandsliðum Íslands og verður æft í Kórnum og í Egilshöll.  Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa sína og eru tæplega 60 leikmenn boðaðir á þessar æfingar.
25. október 2010
Strákarnir í U19 leika lokaleik sinn í undankeppni EM í dag þegar þeir mæta Tyrkjum.  Riðillinn er leikinn í Wales og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma.  Íslenska liðið þarf á sigri að halda til þess að tryggja sér sæti í milliriðlum keppninnar.
23. október 2010
Strákarnir í U19 biðu lægri hlut gegn Wales í undankeppni EM en leikið var í Wales. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir heimamenn eftir að Íslendingar höfðu leitt í leikhléi. Lokaleikur Íslands verður á mánudaginn þegar mótherjarnir verða Tyrkir.