20. september 2010
Stelpurnar í U17 byrjuðu undankeppni EM af miklum krafti en leikið var gegn Litháen í dag. Lokatölur urðu 14 - 0 eftir að staðan hafði verið 7 - 0 í leikhléi. Riðillinn er leikinn í Búlgaríu og er næsti leikur við heimastúlkur á miðvikudaginn.
20. september 2010
Strákarnir í U19 leika í dag vináttulandsleik gegn jafnöldrum sínum frá Norður Írlandi og fer leikurinn fram kl. 16:00.  Leikið verður á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði en þjóðirnar mætast aftur á Fylkisvelli næstkomandi miðvikudag.
20. september 2010
Stelpurnar í U17 verða í eldlínunni í dag þegar þær mæta Litháen í undankeppni EM.  Þetta er fyrsti leikur liðsins og er riðillinn leikinn í Búlgaríu.  Í hinum leik riðilsins í dag leika Ítalía og Búlgaría.  Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarlið sitt en leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma.
16. september 2010
Stelpurnar í U19 kvenna rifu sig upp við fyrsta hanagal í morgun því leikið var við Úkraínu í undankeppni EM. Þetta var síðasti leikurinn í riðlinum en báðar þessar þjóðir höfðu fyrir leikinn tryggt sér sæti í milliriðlum. Stelpurnar okkar voru sterkari aðilinn frá byrjun og sigruðu með fjórum mörkum gegn engu.
16. september 2010
Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á leik Dana og Svía í umspili um sæti á HM kvenna 2011. Leikið er í Vejle og má búast við hörkuviðureign á milli þessara frændþjóða. Svíar fóru með sigur af hólmi í fyrri leiknum, 2 - 1.
16. september 2010
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem mætir Úkraínu í dag.  Leikurinn er lokaleikur liðanna í riðlinum og hafa þessar þjóðir þegar tryggt sér sæti í milliriðlum en berjast nú um sigur í riðlinum.  Leikurinn hefst kl 08:30 að íslenskum tíma.
15. september 2010
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem birtur var í morgun, fellur íslenska karlalandsliðið niður um 21 sæti. Ísland er í 100 sæti listans en það eru Spánverjar sem eru í efsta sæti listans. Næstu mótherjar Íslendinga í undankeppni EM, Portúgal, eru í 8. sæti listans.
14. september 2010
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM.  Riðill Íslands fer fram hér á landi og verður leikinn dagana 22. - 27. september.  Þjóðirnar sem eru með Íslandi í riðli eru: Tékkland, Tyrkland og Armenía.
14. september 2010
Framundan eru tveir vináttulandsleikir gegn Norður Írum hjá U19 karla. Leikirnir fara fram hér á landi, á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði og Fylkisvelli, dagana 20. og 22. september. Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið 22 leikmenn fyrir þessa leiki.
14. september 2010
Stjórn KSÍ hefur ákveðið að senda landslið til keppni undankeppni Evrópumótsins í Futsal. Riðlar undankeppninnar verða leiknir dagana 20. – 24. janúar 2011 og hefur KSÍ sótt um að halda slíkan riðil. Dregið verður í riðla í höfuðstöðvum UEFA 24. september næstkomandi.
13. september 2010
Stelpurnar í U19 kvenna lögðu stöllur sínar frá Ísrael í dag í undankeppni EM en leikið er í Búlgaríu.  Lokatölur urðu 2 - 0 og komu bæði mörkin í fyrri hálfleiknum.  Katrín Ásbjörnsdóttir og Sigrún Ella Einarsdóttir skoruðu mörk Íslands.  Ísland hefur þegar tryggt sér sæti í milliriðlum.
13. september 2010
Knattspyrnusamband Evrópu hefur samþykkt leikdaga fyrir leiki Íslands og Skotlands í umspili um sæti í úrslitakeppni EM U21 karla. Fyrri leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 7. október en leiktími verður tilkynntur síðar.
13. september 2010
Stelpurnar í U19 leika sinn annan leik í undankeppni EM í dag þegar þær mæta Ísrael.  Leikið er í Búlgaríu og hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í leiknum og gerir hann eina breytingu frá síðasta leik.
11. september 2010
Stelpurnar í U19 byrjuðu undankeppni EM á góðu nótunum þegar þær lögðu Búlgaríu í dag.  Riðillinn er leikinn í Búlgaríu og voru heimastúlkur lagðar 2 - 0.  Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði bæði mörk Íslands í leiknum, eitt í hvorum hálfleik.
10. september 2010
Stelpurnar í U19 eru komnar til Búlgaríu en þar leika þær í undankeppni EM. Fyrsti leikurinn fer fram á morgun, laugardag, en þá mæta stelpurnar stöllum sínum frá Búlgaríu. Einnig eru Ísrael og Úkraína í þessum riðli.
10. september 2010
Í dag var dregið í umspili fyrir úrslitakeppni EM U21 karla og fór drátturinn fram í Herning í Danmörku.  Íslenska liðið mætir Skotum og verður fyrri leikurinn leikinn hér heima.
10. september 2010
Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari hefur tilkynnt breytingu á landslið Íslands sem leikur í undankeppni EM dagana 20. - 25. september.  Elín Helena Jóhannsdóttir úr Breiðabliki hefur verið valin í hópinn.
10. september 2010
Í dag hófst miðasala á leik Íslands og Portúgals en þetta er síðasti leikur Íslands í undankeppni fyrir EM 2012 á þessu ári. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 12. október á Laugardalsvelli og hefst kl. 19:45. Miðasala fer fram, sem fyrr, í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.