9. september 2009
Ísland mætir Georgíu í æfingaleik á Laugardalsvellinum kl. 19:30 í kvöld og í tilefni þess var haldinn blaðamannafundur á Hilton Reykjavík Nordica í gær. Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur mikla trú á að íslenska liðið geti unnið sigur í leiknum.
8. september 2009
Strákarnir í U21 liðinu unnu frábæran sigur á Norður Írum í dag en leikurinn var liður í undankeppni EM 2011.  Lokatölur urðu 6 - 2 Íslendingum í vil eftir að staðan í hálfleik hafði verið 4 -0.
8. september 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Georgíu á morgun, miðvikudag. Björgólfur Takefusa, úr KR, kemur inn í hópinn í stað Heiðars Helgusonar sem er meiddur.
8. september 2009
Strákarnir í U21 karla leika í kvöld við Norður Íra en leikið er ytra á Coleraine Showgrounds vellinum.  Leikurinn hefst kl. 18:30 að íslenskum tíma og er liður í riðlakeppni fyrir EM 2011.  Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
8. september 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir leikinn gegn Georgíu. Hannes Þór Halldórsson, markvörður úr Fram, kemur inn í hópinn í stað Árna Gauts Arasonar sem er meiddur.
8. september 2009
Þjóðverjar lögðu Norðmenn í seinni undanúrslitaleik EM kvennalandsliða í Finnlandi á mánudag. Það verða því Englendingar og Þjóðverjar sem leika til úrslita á Ólympíuleikvanginum í Helsinki 10. september.
8. september 2009
Liðsmenn A-landsliðs karla vildu koma á framfæri miklu þakklæti til liðsmanna Tólfunnar fyrir frábæran stuðning á leiknum gegn Norðmönnum á laugardaginn.  Í þakklætisskyni ákváðu leikmennirnir að gefa Tólfunni 150 miða á vináttulandsleikinn við Georgíu á miðvikudag.
7. september 2009
Strákarnir í U19 karla unnu góðan sigur á jafnöldrum sínum frá Skotlandi í dag. Þessi vináttulandsleikur var leikinn ytra og urðu lokatölur 2 - 0 Íslendingum í vil eftir að okkar menn höfðu leitt með einu marki í leikhléi.
7. september 2009
Veigar Páll Gunnarsson, liðsmaður íslenska landsliðsins í knattpspyrnu, fékk afhent gullúr í hádeginu í dag, mánudag.  Gullúrið fékk hann afhent frá Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ, af því tilefni að hafa náð 25 A-landsleikjum fyrir Íslands hönd.
7. september 2009
Það eru fjölmörg störf sem unnin eru af hendi á hverjum landsleik sem leikinn er á Laugardalsvellinum og margir sem kallaðir eru til.  Rúmlega 7.000 áhorfendur voru á Laugardalsvellinum síðastliðið laugardagskvöld þegar Íslendingar og Norðmenn gerðu jafntefli í bráðfjörugum leik.
7. september 2009
Englendingar munu leika til úrslita á EM kvennalandsliða gegn annað hvort Þjóðverjum eða Norðmönnum. England lagði Holland 2-1 í undanúrslitum á sunnudag og kom sigurmark leiksins seint í framlengingunni.
7. september 2009
Opnað hefur verið fyrir miðasölu á viðureign Íslands og Georgíu, en liðin mætast í vináttulandsleik A-karla á Laugardalsvelli á miðvikudag. Þetta er í fyrsta sinn sem Georgía og Ísland mætast í A-landsliðum karla.
6. september 2009
Stelpurnar í U17 kvenna töpuðu í dag gegn Frökkum á Grindavíkurvelli en leikurinn var í riðlakeppni EM U17 kvenna. Lokatölur urðu 2 - 1 Frökkum í vil eftir að Frakkar höfðu leitt í hálfleik, 1 - 0. Sigurmark Frakka kom á lokamínútu leiksins.
6. september 2009
Davíð Þór Viðarsson úr FH hefur verið kallaður inn í hópinn fyrir vináttulandsleik gegn Georgíu næstkomandi miðvikudag á Laugardalsvöllinn. Landsliðsþjálfarinn, Ólafur Jóhannesson, kallaði á Davíð Þór eftir að Ragnar Sigurðsson hafði fengið leyfi frá leiknum af persónulegum ástæðum.
6. september 2009
Stelpurnar í U17 kvenna verða í eldlínunni í dag þegar þær mæta Frökkum í öðrum leik sínum í riðlakeppni EM sem fram fer hér á landi. Leikurinn fer fram í Grindavík og hefst kl. 13:00. Á sama tíma mætast í Keflavík, Ísrael og Þýskaland.
5. september 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið þá Baldur Sigurðsson úr KR og Bjarna Ólaf Eiríksson úr Val í landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Georgíu á miðvikudaginn. Koma þeir í stað Sölva Geirs Ottesen, Eiðs Smára Guðjohnsen og Brynjars Bjarnar Gunnarssonar.
5. september 2009
Í hálfleik á leik Íslands og Noregs fengu reyndu þrír vallargestir að hitta markslána frá vítateig, í einni tilraun, og vinningurinn var ekki af verri endanum - flugferð fyrir tvo til útlanda, til áfangastaðar Icelandair.  Til að gera langa sögu stutta, þá gerðist hið ótrúlega! 
5. september 2009
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland – Georgía afhenta þriðjudaginn 8. september frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.