Verslun
Leit
SÍA

1. september 2009

Nýr samstarfssamningur KSÍ og Icelandair undirritaður

Knattspyrnusamband Íslands og Icelandair undirrituðu í dag samkomulag um áframhaldandi samstarf til næstu fjögurra ára (2010-2013).  Í samningnum felst stuðningur Icelandair við starfsemi KSÍ á öllum sviðum og nær samningurinn m.a. til allra landsliða Íslands

Landslið

1. september 2009

Miðar fyrir handhafa A-passa á Ísland - Noregur

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Noregur afhenta fimmtudaginn 3. september frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Landslið

1. september 2009

Vináttulandsleikir gegn Skotum hjá U19 karla

Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir 2 vináttulandsleiki gegn Skotum.  Leikið verður ytra og fara leikirnir fram mánudaginn 7. september og miðvikudaginn 9. september.

Landslið

1. september 2009

Hópurinn valinn hjá U21 karla fyrir Norður Írland

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt hóp sinn er mætir Norður Írum ytra þann 8. september næstkomandi.  Þetta er annar leikur liðsins í riðlakeppninni en Íslendingar töpuðu gegn Tékkum í fyrsta leik sínum.

Landslið

1. september 2009

Landsliðshópurinn fyrir leiki gegn Noregi og Georgíu

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn fyrir 2 landsleiki á næstu dögum.  Laugardaginn 5. september leikur Ísland við Noreg á Laugardalsvelli og er leikurinn lokaleikur Íslands í undankeppni fyrir HM 2010.  Miðasala á leikinn er í fullum gangi og fer fram, sem fyrr, í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Landslið

1. september 2009

8-liða úrslitin á fimmtudag og föstudag

Lokaumferð C-riðils í úrslitakeppni EM kvennalandsliða í Finnlandi fór fram á mánudag.  Ítalir lögðu Rússa og eru því komnir í 8-liða úrslit, ásamt Englandingum, sem gerðu jafntefli við Svía.  Leikir í 8-liða úrslitum fara fram á fimmtudag og föstudag.

Landslið

30. ágúst 2009

Edda komin í 75 leiki

Edda Garðarsdóttir náði þeim áfanga í leiknum gegn Þjóðverjum á EM að leika sinn 75. A-landsleik fyrir Íslands hönd.  Edda lék sinn fyrsta landsleik árið 1997, gegn Úkraínu í undankeppni HM 1999 á Laugardalsvellinum. 

Landslið

30. ágúst 2009

Naumt tap gegn heims- og Evrópumeisturunum

Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu töpuðu naumlega gegn heims- og Evrópumeisturum Þjóðverja, í lokaumferð B-riðils í úrslitakeppni EM í Finnlandi.  Stelpurnar ljúka því keppni án stiga, en geta svo sannarlega borið höfuðið hátt eftir þrjá hörkuleiki.

Landslið

29. ágúst 2009

Þrjár breytingar á byrjunarliðinu fyrir leikinn við Þjóðverja

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari stelpnanna okkar, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir lokaleik liðsins í úrslitakeppni EM, gegn Þjóðverjum á sunnudag.  Þjóðirnar mætast á Tampere-leikvanginum og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. 

Landslið

29. ágúst 2009

Finnar og Hollendingar komnir í 8-liða úrslit

Keppni í A-riðli EM kvennalandsliða í Finnlandi lauk í dag.  Finnar höfðu þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og misstu það ekki þrátt fyrir tap í lokaleiknum, 0-1 gegn Úkraínumönnum.  Úkraína kemst þrátt fyrir þetta ekki upp úr neðsta sætinu þar sem þær úkraínsku höfðu áður tapað fyrir Dönum.

Landslið

29. ágúst 2009

Bara markmenn á æfingu í morgun

Það voru einungis markmenn kvennalandsliðsins sem voru á séræfingu í morgun, en útileikmenn fengu frí.  Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari, fór með þær Þóru, Guðbjörgu og Söndu á æfingu á Hervanta-vellinum. 

Landslið

28. ágúst 2009

Ísland á langbestu stuðningsmennina á EM

Það virðist vera samdóma álit allra þeirra sem fylgjast með EM kvennalandsliða í Finnlandi að íslensku stuðningsmennirnir séu þeir langbestu í keppninni.  Íslendingar hafa fjölmennt á leiki íslenska liðsins í Tampere og Lahti og haldið uppi frábærri stemmningu.

Landslið

28. ágúst 2009

Sigrar hjá Englendingum og Svíum

Leikið var í C-riðli í úrslitakeppni EM kvennalandsliða í Finnlandi í dag.  Englendingar lögðu Rússa 3-2 eftir að hafa lent 2-0 undir, en svarað með þremur mörkum fyrir hlé.  Svíar eru komnir í 8-liða úrslit eftir öruggan 2-0 sigur á Ítölum, sem áttu ekki möguleika í sænska liðið.

Landslið

28. ágúst 2009

Dóra María komin í 50 leiki

Dóra María Lárusdóttir lék sinn 50. A-landsleik fyrir Íslands hönd þegar kvennalandsliðið mætti Noregi í Lahti í úrslitakeppni EM í Finnlandi á fimmtudag.  Dóra María lék sinn fyrsta leik árið 2003, gegn Pólverjum í 10-0 metsigri.

Landslið

27. ágúst 2009

Sárt tap gegn Noregi

Íslensku stelpurnar töpuðu í kvöld gegn Norðmönnum í öðrum leik liðsins í úrslitakeppni EM sem fram fer í Finnlandi.  Lokatölur urðu 0 - 1 og kom sigurmark leiksins á lokasekúndum fyrri hálfleiks.  Úrslitin þýða að íslenska liðið á ekki lengur möguleika á því að komast í átta liða úrslit.

Landslið

27. ágúst 2009

Hópurinn valinn hjá U17 kvenna fyrir riðlakeppni EM

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn er leikur í riðlakeppni EM.  Riðillinn fer fram hér á landi dagana 4. - 9. september og ásamt Íslendingum leika í riðlinum Þýskaland, Frakkland og Ísrael.

Landslið

27. ágúst 2009

Fullt hús hjá Finnum

Önnur umferð í A riðli Evrópumóts kvenna fór fram í gær og eru heimastúlkur í góðum málum fyrir lokaumferð riðlakeppninnar.  Finnar lögðu Hollendinga með tveimur mörkum gegn einu og sama markatala var uppi á teningnum þegar að Danir lögðu Úkraínu.

Landslið

26. ágúst 2009

Byrjunarliðið gegn Noregi á fimmtudag

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Noregi.  Leikkerfið er hefðbundið og óbreytt frá síðasta leik, en þó er ein breyting gerð á byrjunarliði íslenska liðsins.  Dóra Stefánsdóttir kemur inn á miðjuna í stað Katrínar Ómarsdóttur.

Landslið