13. ágúst 2009
Kvennalandslið Íslands og Serbíu mætast í undankeppni HM 2011 á Laugardalsvelli á laugardag kl. 14:00.  Þetta er fyrsti leikur beggja liða í undankeppninni, en þriðja viðureignin á þremur árum.  Ísland og Serbía voru saman í riðli í undankeppni EM 2009.
13. ágúst 2009
Eins og kunnugt er leikur kvennalandslið Íslands í lokakeppni EM í Finnlandi síðar í mánuðinum. Hægt hefur verið að kaupa miða á leiki íslenska liðsins á skrifstofu KSÍ, en þeirri miðasölu er nú lokið. Þó er enn hægt að kaupa miða í gegnum vef UEFA
12. ágúst 2009
A landslið kvenna leikur fyrsta leik sinn í undankeppni HM 2011 á laugardag, þegar liðið tekur á móti Serbum á Laugardalsvellinum kl. 14:00.  Dómaratríóið á leiknum á laugardag kemur frá Austurríki. 
12. ágúst 2009
Ísland og Slóvakía skildu jöfn í vináttulandsleik þjóðanna í Laugardalnum í kvöld. Lokatölur leiksins urðu 1-1 og gátu bæði lið verið nokkuð sátt með sinn hlut. Kristján Örn Sigurðsson skoraði mark Ísland í leiknum, jafnaði metin í síðari hálfleik með hörkuskalla.
12. ágúst 2009
U21 landslið karla tapaði fyrir Tékkum í undankeppni EM 2011 á KR-vellinum í dag.  Tékkar skoruðu tvö mörk í seinni hálfleik og reyndust það einu mörk leiksins.  Tékkar eru því með fullt hús stiga í riðlinum eftir tvo leiki og hafa ekki fengið á sig mark.
12. ágúst 2009
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir vináttulandsleikinn gegn Slóvakíu á Laugardalsvelli í kvöld.  Sölvi Geir Ottesen Jónsson verður í miðverðinum, Ólafur Ingi Skúlason kemur inn á miðjuna og Heiðar Helguson í framherjastöðuna.
12. ágúst 2009
U21 landslið karla hefur leik í undankeppni EM í dag, þegar liðið mætir Tékkum á KR-velli kl. 15:30.  Aðeins einum leik í riðlinum er lokið, þar sem Tékkar unnu 8-0 stórsigur á San Marínó í júní.  Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
12. ágúst 2009
Ásta Árnadóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins og ein af EM stelpunum okkar, er kynnt sérstaklega á Training Ground kennsluvefnum hjá uefa.com. Um er að ræða kennsluefni og er Ásta að sýna hvernig hún tekur hin frægu heljarstökks-innköst sín.
12. ágúst 2009
Í dag, miðvikudag kl. 19:00, mætast á Laugardalsvelli Ísland og Slóvakía en um er að ræða vináttulandsleik á milli þjóðanna.  Miðasala á leikinn er í fullum gangi í miðasölukerfi hjá midi.is.
11. ágúst 2009
Landslið Slóvakíu hefur verið á mikilli uppleið að undanförnu og hefur gengið mjög vel í undankeppni HM 2010.  Í landsliðshópnum eru margir sterkir leikmenn og liðið er gríðarlega öflugt.
11. ágúst 2009
U17 landslið kvenna tekur þátt í undankeppni EM í byrjun september.  Riðill Íslands fer fram hér á landi og leikur íslenska liðið við Frakkland, Þýskaland og Ísrael. Næstkomandi föstudag, 14. ágúst, er fyrirhugaður æfingaleikur við mfl. kvenna hjá Stjörnunni.
11. ágúst 2009
Ólafur Jóhannesson þjálfari hefur gert fjórðu breytinguna á landsliðshópnum sem mætir Slóvökum á Laugardalsvelli á miðvikudag.  Ragnar Sigurðsson er veikur, og í hans stað hefur Ólafur valið Baldur Sigurðsson úr KR.
11. ágúst 2009
UEFA hefur ákveðið hvaða dómarar verða að störfum í úrslitakeppni EM kvennalandsliða, sem fram fer í Finnlandi í ágúst og september. Níu dómarar, tólf aðstoðardómarar og þrír varadómarar munu sjá um dómgæsluna á mótinu.
11. ágúst 2009
Tvö íslensk dómaratríó verða að störfum í vináttulandsleikjum á miðvikudag, annars vegar í Danmörku og hins vegar á Norður-Írlandi.  Jóhannes Valgeirsson dæmir leik Norður-Írlands og Ísraels og Kristinn Jakobsson dæmir viðureign Danmerkur og Chile.
10. ágúst 2009
Dómaratríóið í vináttuleik Íslands og Slóvakíu á miðvikudag kemur frá Danmörku.  Fjórði dómarinn er íslenskur, Gunnar Jarl Jónsson, sem og eftirlitsmaðurinn, Eyjólfur Ólafsson
10. ágúst 2009
Markvörðurinn Árni Gautur Arason og fyrirliðinn Hermann Hreiðarsson geta ekki verið með í vináttulandsleiknum gegn Slóvakíu á miðvikudag og í þeirra stað hafa Hannes Þór Halldórsson markvörður Fram og Bjarni Ólafur Eiríksson leikmaður Vals verið valdir.
10. ágúst 2009
Hvar er mesta fjörið á landsleikjum á Laugardalsvelli?  Hvar á maður að kaupa sér miða ef maður vill komast í brjálaða stemmningu?  Nú það er auðvitað í I-hólfinu, því þar er Tólfan!
7. ágúst 2009
Fjölmiðlamaðurinn góðkunni, Valtýr Björn Valtýsson, hefur farið af stað að nýju með íþróttaþáttinn sinn "Mín Skoðun".  Þátturinn er á dagskrá á útvarpsstöðinni Xið 977 og er á dagskrá á milli 8 og 10 á morgnana, alla virka daga.