Verslun
Leit
SÍA

8. október 2008

Upphitun hjá Áfram Ísland klúbbnum í Rotterdam

Áfram Ísland, stuðningsmannaklúbbur íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í samstarfi við Icelandair verða með upphitun laugardaginn 11.október næstkomandi fyrir leik Hollendinga og Íslendinga sem hefst kl, 20:45.

Landslið

8. október 2008

Karlalandsliðið upp um fjögur sæti

Nýr styrkleikalisti FIFA karla var birtur í dag og fór Ísland upp um fjögur sæti frá því að síðasti listi var birtur.  Ísland er í 103. sæti á listanum en Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans.

Landslið

7. október 2008

Sárt tap gegn Frökkum hjá U17 kvenna

Stelpurnar í U17 kvenna hófu leik í morgun í undankeppni EM en riðill þeirra er leikinn á Ítalíu.  Frakkar voru mótherjar í fyrsta leiknum og sigruðu með einu marki gegn engu.  Sigurmark Frakka kom í uppbótartíma og vonbrigði íslenska liðsins því mikil.

Landslið

7. október 2008

Landsleikjahrina í september og október

Þó svo að deildarkeppnin hér á landi hafi runnið sitt skeið á enda eru íslenskir knattspyrnumenn engu að síður önnum kafnir.  Íslensk knattspyrnulandslið leika 23 landsleiki í september og október en flestir þessara leikja eru leiknir af yngri landsliðum okkar.

Landslið

7. október 2008

Byrjunarlið U17 kvenna gegn Frakklandi

Í dag leikur Ísland sinn fyrsta leik í undankeppni EM kvenna en leikið er á Ítalíu.  Fyrstu mótherjar íslenska liðsins eru Frakkar og hefst leikurinn í dag kl. 09:00 að íslenskum tíma.  Kristrún Lilja Daðadóttir hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

6. október 2008

Samningar við Luka ekki endurnýjaðir

KSÍ og Luka Kostic hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki ráðningarsamninga við Luka.  Luka hefur þjálfað U21 árs lið karla og U17 ára lið karla undanfarin ár og náði m.a. þeim einstaka árangri að koma liðinu í 8 liða úrslitakeppni EM árið 2007.

Landslið

6. október 2008

Hópurinn hjá U19 karla sem fer til Makedóníu

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hópinn er fer til Makedóníu til þess að leika í undankeppni EM U19 karla.  Fyrsti leikur Íslands í riðlinum verður laugardaginn 11. október við Svía

Landslið

6. október 2008

Ísland mætir Írlandi

Í dag var dregið í umspilsleiki fyrir EM kvenna í Finnlandi 2009.  Ísland dróst gegn Írlandi og verður fyrri leikurinn á útivelli. Ísland og Írland hafa mæst tvisvar sinnum.  Árið 2007 gerðu þjóðirnar 1-1 jafntefli en fyrr á þessu ári lögðu Íslendingar Íra með fjórum mörkum gegn einu

Landslið

3. október 2008

Dregið í umspili í EM kvenna kl. 10:00 á mánudaginn

Á mánudaginn verður dregið í umspili fyrir EM kvenna 2009.  Ísland er í pottinum og er í A flokki og mun dragast gegn gegn þjóð úr B flokki.  Þjóðirnar þar eru Tékkland, Írland, Slóvenía og Skotland.

Landslið

3. október 2008

Menntamálaráðherra heiðursgestur leiksins

Heiðursgestur úrslitaleiks VISA bikars karla verður menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.  Mun hún því í leikslok afhenda sigurvegurum leiksins farandbikar er VISA gefur og keppt er um í sjötta skiptið.

Landslið

3. október 2008

Æfing hjá U19 karla færist á Framvöll

Athygli er vakin á því að fyrirhuguð æfing hjá U19 karla sem átti að vera á Tungubökkum í dag, færist yfir á gervigrasvöll Fram.  Hlutaðeigendur eru beðnir um að hafa þetta í huga.  Æfingin hefst sem áður kl. 16:30.

Landslið

2. október 2008

Hópurinn valinn fyrir leikina gegn Hollandi og Makedóníu

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hóp sinn fyrir landsleikina gegn Hollandi og Makedóníu.  Leikið verður við Holland í Rotterdam 11. október en við Makedóníu hér á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 15. október

Landslið

30. september 2008

Æfingahópur tilkynntur hjá A landsliði kvenna

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag 16 manna landsliðshóp fyrir umspilsleik Íslands er fara fram í október.  Í hópnum eru ekki að þessu sinni leikmenn úr Val og þeir leikmenn er leika erlendis.

Landslið

29. september 2008

Hópur valinn til æfinga hjá U19 karla

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla hefur valið æfingahóp sem mun æfa um helgina.  Framundan er keppni í undankeppni EM og fer riðill Íslands fram í Makedóníu.

Landslið

29. september 2008

EM hópur hjá U17 kvenna valinn

Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt hópinn er leikur í riðlakeppni EM á Ítalíu dagana 7. - 12. október.  Andstæðingar Íslands verða, auk heimamanna, Frakkland og Aserbaídsjan.

Landslið

29. september 2008

U17 karla leika gegn Norðmönnum í dag

Strákarnir í U17 karla leika lokaleik sinn í undankeppni EM í dag þegar þeir mæta Norðmönnum.  Leikurinn hefst kl. 16:00 á Vodafonevellinum og hefur Lúka Kostic tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.

Landslið

29. september 2008

Síðasti leikur U19 kvenna í dag

Stelpurnar í U19 kvenna leika lokaleik sinn í undankeppni EM í dag þegar þær mæta Írum í Ísrael.  Stelpurnar eru snemma á ferðinni því leikurinn hefst kl. 08:00 að íslenskum tíma.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

29. september 2008

Tap hjá U19 kvenna í síðasta leiknum

Stelpurnar í U19 kvenna léku síðasta leik sinn í undankeppni EM í dag þegar þær mættu Írum en riðillinn var leikinn í Ísrael.  Írar reyndust sterkari í dag og sigruðu með fimm mörkum gegn einu.

Landslið