Verslun
Leit
SÍA

22. september 2008

Berglind inn í U19 hópinn

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir undankeppni EM.  Berglind Bjarnadóttir úr Víkingi kemur inn í hópinn í stað Þórhildar Ólafsdóttur úr ÍBV sem er meidd.

Landslið

22. september 2008

Riðill U17 karla hefst á miðvikudaginn

Næstkomandi miðvikudag hefst keppni í undankeppni EM hjá U17 karla og verður riðill Íslands leikinn hér á landi.  Fyrsti leikur Íslands verður gegn Sviss og fer sá leikur fram á Akranesvelli kl. 16:00 á miðvikudaginn.

Landslið

22. september 2008

Hópurinn valinn fyrir Frakkaleikinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn er heldur til Frakklands og leikur þar lokaleik sinn í undankeppni fyrir EM 2009.  Íslenska liðinu nægir jafntefli gegn Frökkum til þessa að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM 2009 sem fer fram í Finnlandi.

Landslið

17. september 2008

Æfingahópur U17 kvenna tilkynntur

Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, tilkynnti í dag æfingahóp sinn en þessi hópur mun verða við æfingar um helgina.  Framundan er undankeppni EM og verður riðill Íslands leikinn á Ítalíu

Landslið

16. september 2008

Vináttulandsleikur við Möltu 19. nóvember

Knattspyrnusamband Íslands og Knattspyrnusamband Möltu hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik miðvikudaginn 19. nóvember næstkomandi.  Leikið verður á Möltu en leikstaður verður tilkynntur síðar.

Landslið

16. september 2008

Æfingahópur valinn hjá U17 karla

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið æfingahóp en framundan er undankeppni EM og verður riðill Íslands leikinn hér á landi.  Þessi 25 manna hópur mun æfa út vikuna og fara æfingarnar fram á Tungubökkum.

Landslið

15. september 2008

Hópurinn hjá U19 kvenna valinn fyrir Ísraelferð

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið landsliðshóp sinn er fer til Ísrael og leikur þar í riðlakeppni U19 kvenna.  Andstæðingar Íslands í riðlinum eru auk heimastúlkna, Írland og Grikkland.

Landslið

15. september 2008

U17 karla leikur í undankeppni EM hér á landi

Strákarnir í U17 karla leika í riðlakeppni EM hér á landi dagana 24. - 29. september.  Andstæðingar Íslendinga í riðlinum verða Sviss, Úkraína og Noregur.  Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla mun tilkynna æfingahóp fyrir keppnina á morgun, þriðjudag.

Landslið

11. september 2008

Æfingahópur A landsliðs kvenna

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið æfingahóp fyrir A landslið kvenna og mun þessi hópur verða við æfingar í næstu viku.  Þeir leikmenn sem leika erlendis eða koma úr Val eða KR eru ekki inn í þessum æfingahópi.

Landslið

11. september 2008

Franski hópurinn tilkynntur

Bruno Bini hefur tilkynnt 18 manna hóp sinn fyrir landsleikinn gegn Íslendingum sem fram fer í la-Roche-sur Yon þann 27. september næstkomandi.  Með stigi tryggir íslenska landsliðið sig áfram í úrslitakeppni EM 2009 í Finnlandi.

Landslið

10. september 2008

31 leikmaður valinn til æfinga hjá U17 karla

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið æfingahóp til æfinga um komandi helgi.  Æft verður tvisvar sinnum um helgina á Tungubökkum og hefur Luka valið 31 leikmann til þessara æfinga.

Landslið

10. september 2008

Skotar höfðu betur í Laugardalnum

Skotar lögðu Íslendinga í fyrsta heimaleik Íslands í undankeppni fyrir HM 2010.  Lokatölur urðu 1-2 Skotum í vil eftir að þeir höfðu leitt í hálfleik, 0-1.  Það var Eiður Smári Guðjohnsen sem skoraði mark Íslands úr víti og minnkaði þá muninn í 1-2.

Landslið

10. september 2008

Byrjunarliðið gegn Skotum tilbúið

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Skotum í dag í fyrsta heimaleik liðsins í undankeppni HM 2010.  Leikurinn hefst kl. 18:30 og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.

Landslið

10. september 2008

Ísland mætir Norður Írum hjá U19 karla kl. 10:00

Strákarnir í U19 karla mæta Norður Írum ytra í vináttulandsleik í dag og hefst leikurinn kl. 10:00 að íslenskum tíma.  Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir þennan leik.

Landslið

10. september 2008

Ísland - Skotland í kvöld kl. 18:30

Leikur Íslands og Skotlands í undankeppni HM 2010 fer fram í kvöld á Laugardalsvelli og hefst kl. 18:30.  Örfáir miðar eru eftir á leikinn en hægt er að kaupa miða á midi.is áfram í dag.  Ef einhverjir miðar verða eftir hefst miðasala á Laugardalsvelli kl. 14:00.

Landslið

10. september 2008

Fjalar inn í hópinn gegn Skotum

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið markvörðinn Fjalar Þorgeirsson úr Fylki í landsliðshóp sinn gegn Skotum en leikurinn fer fram í dag kl. 18:30.  Fjalar kemur í stað Stefáns Loga Magnússonar sem er meiddur.

Landslið

9. september 2008

Sálin, Stebbi Hilmars og Emil með hægri

Heimasíðan hitti þá Kristján Örn Sigurðsson og Emil Hallfreðsson á æfingu í gær á Laugardalsvelli.  Undirbúningur fyrir Skotaleikinn er í fullum gangi og mikil tilhlökkun hjá leikmönnum sem og stuðningsmönnum fyrir leikinn.

Landslið

9. september 2008

Skemmtilegustu heimaleikirnir eru gegn Skotum

Það var góð stemning yfir landsliðshópnum á æfingu í gær en undirbúningur fyrir leikinn gegn Skotum er nú í fullum gangi.  Heimasíðan kíkti á æfinguna og hitti m.a. Ólaf Jóhannesson og Björn Ragnar Gunnarsson.

Landslið