Verslun
Leit
SÍA

2. september 2008

Guðmundur og Jónas Guðni í landsliðshópinn

Ólafur Jóhannesson valdi í dag þá Guðmund Steinarsson og Jónas Guðna Sævarsson í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Noregi og Skotlandi.  Þeir koma í stað Ólafs Inga Skúlasonar og Theodórs Elmars Bjarnasonar sem eru meiddir

Landslið

29. ágúst 2008

Jafntefli hjá U18 karla gegn Ungverjum

Strákarnir í U18 gerðu í dag markalaust jafntefli við Ungverja en leikurinn var liður í æfingamóti er fram fer í Tékklandi.  Liðið hlaut því eitt stig og komst ekki upp úr riðlinum.

Landslið

29. ágúst 2008

Hópurinn hjá U19 karla valinn er leikur við Norður Íra

Framundan eru tveir vináttulandsleikir við Norður Íra hjá U19 karla og fara þeir leikir fram ytra 8. og 10. september.  Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið 18 leikmenn fyrir þessa leiki.

Landslið

29. ágúst 2008

Byrjunarliðið hjá U18 tilbúið

Íslenska U18 karlalandsliðið leikur í dag við Ungverja á æfingamóti sem fram fer í Tékklandi.  Þetta er síðasti leikur liðsins í þessu móti en liðið tapaði fyrir Tékkum, 0-2 í fyrsta leik og gegn Norðmönnum 1-2.

Landslið

28. ágúst 2008

Hópurinn hjá U21 karla valinn

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, valdi í dag landsliðshóp sinn er mætir Austuríki og Slóvakíu í undankeppni fyrir EM 2009.  Leikurinn við Austurríki fer fram ytra 5. september en leikurinn gegn Slóvakíu hér heima, þriðjudaginn 9. september.

Landslið

28. ágúst 2008

Hópurinn valinn fyrir leikina gegn Noregi og Skotlandi

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti á blaðamannafundi í dag landsliðshóp sinn sem tekur þátt í næstu landsliðsverkefnum.  Það eru leikir gegn Noregi ytra, 6. september og Skotum hér heima, 10. september.

Landslið

27. ágúst 2008

Skoski hópurinn er mætir Íslendingum

Landsliðsþjálfari Skota, George Burley, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn er mætir Makedóníu og Íslendingum í undankeppni HM 2010.  Burley valdi 25 leikmenn í hópinn.  Landsliðshópur Íslands verður tilkynntur á morgun.

Landslið

27. ágúst 2008

Tap gegn Norðmönnum hjá U18 karla

Íslenska U18 karlalandsliðið laut í lægra haldi fyrir Norðmönnum á æfingamóti í Tékklandi í dag.  Norðmenn höfðu betur 2-1 en Íslendingar leiddu í hálfleik 0-1.  Það var Arnar Sveinn Geirsson sem kom Íslendingum yfir í fyrri hálfleik

Landslið

27. ágúst 2008

Tap hjá U18 gegn Tékkum

Íslenska U18 karlalandsliðið beið lægri hlut gegn Tékkum á æfingamóti er fer fram í Tékkland.  Lokatölur urðu 2-0 Tékkum í vil. Leikið verður við Norðmenn í dag og hefur byrjunarlið Íslands verið tilkynnt.

Landslið

26. ágúst 2008

Miðasala hafin á Frakkland - Ísland

Þann 27. september leikur kvennalandsliðið sinn mikilvægasta leik til þessa þegar þær mæta Frökkum í undankeppni EM 2009.  Þetta er úrslitaleikur um hvor þjóðin tryggir sér sæti í úrslitakeppni EM 2009 en hún fer fram að þessu sinni í Finnlandi. 

Landslið

26. ágúst 2008

Byrjunarlið U18 karla gegn Tékkum

Í dag kl. 15:00 leika Íslendingar við Tékka á Tékklandsmótinu og er þetta fyrsti leikur íslenska liðsins í mótinu. Þetta er æfingamót en auk þessa þjóða leika Norðmenn og Ungverjar í A riðli. Kristinn R. Jónsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í þessum leik.

Landslið

21. ágúst 2008

Fjöldi Skota á leið til landsins

Mikill áhugi Skota er á leik Íslands og Skotlands sem fram fer á Laugardalsvelli 10. september næstkomandi og er fyrsti heimaleikur Íslands í undankeppni HM 2010.  Nú þegar hefur KSÍ selt Knattspyrnusambandi Skotlands um 1500 miða á þennan leik.

Landslið

21. ágúst 2008

Miðasala á Holland - Ísland

Í dag hófst miðasala á leik Hollands og Íslands en sá leikur fer fram Rotterdam þann 11. október næstkomandi.  Leikurinn er liður í undankeppni HM 2010 en Ísland hefur þar leik gegn Norðmönnum í Osló, 6. september og stendur miðasala yfir á þann leik.

Landslið

20. ágúst 2008

Viðtal við landsliðsþjálfarann fyrir Aseraleikinn

Á síðustu æfingu landsliðsins fyrir leikinn gegn Aserum þá hitti Dagur Sveinn Dagbjartsson landsliðsþjálfarann Ólaf Jóhannesson og ræddi við hann um leikinn í kvöld og áherslur Ólafs í leiknum.

Landslið

20. ágúst 2008

Byrjunarlið Íslands U21 karla gegn Danmörku

Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Dönum í vináttulandsleik í dag.  Leikurinn fer fram á KR velli og hefst kl. 16:30.  Aðgangur á leikinn er ókeypis og eru áhorfendur hvattir til þess að fjölmenna

Landslið

20. ágúst 2008

Rakel gaf ungri knattspyrnukonu landsliðstreyju

Á heimasíðu Þórs, www.thorsport.is er sagt frá Margréti Selmu Steingrímsdóttur sem er efnileg knattspyrnustúlka og leikur með KA.  Hún varð fyrir því óhappi að fótbrotna í leik með félagi sínu en þá var KA að leika í úrslitakeppni Hnátumóts KSÍ.

Landslið

20. ágúst 2008

Strákarnir í U21 mæta Dönum í dag

Ísland og Danmörk mætast í vináttulandsleik hjá U21 karla í dag og verður leikið á KR vellinum.  Leikurinn hefst kl. 16:30 og er aðgangur ókeypis á þennan vináttulandsleik.

Landslið

20. ágúst 2008

Ísland - Aserbaídsjan í kvöld

Ísland mætir Aserbaídsjan í vináttulandsleik í kvöld á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 19:45.  Miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. 17:00 en hleypt er inn á völlinn kl. 18:30. Þetta er í fyrsta skiptið er Ísland og Aserbaídsjan mætast í landsleik.

Landslið