8. ágúst 2008
Úrtökumót KSÍ fyrir drengi fædda 1993 fer fram að Laugarvatni dagana 15. - 17. ágúst næstkomandi. Ríflega 60 leikmenn frá félögum víðs vegar af landinu hafa verið boðaðir á úrtökumótið.
6. ágúst 2008
Ísland er í 97. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið og hækkar um eitt sæti. Evrópumeistarar Spánverja halda efsta sætinu og Þjóðverjar fara upp fyrir Ítali í 2. sætið.
3. ágúst 2008
U17 landslið karla hafnaði í 6. sæti á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fór í Svíþjóð og lauk á laugardag með leikjum um sæti. Okkar drengir léku gegn Skotum um 5. sætið og biðu lægri hlut.
1. ágúst 2008
Leikið verður um sæti á Opna Norðurlandamóti U17 landsliða karla á laugardag. Ísland hafnaði í 3. sæti síns riðils og mætir Skotlandi í leik um 5. sætið á mótinu. Gestgjafarnir, Svíar, leika til úrslita og mæta þar Norðmönnum.
31. júlí 2008
U17 landslið karla vann í dag góðan 3-0 sigur á Finnum í lokaumferð riðlakeppninnar á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Svíþjóð. Mörkin þrjú komu öll seint í leiknum. Leikið er um sæti á laugardag.
31. júlí 2008
U17 landslið karla leikur í dag lokaleik sinn í riðlakeppninni á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð. Mótherjarnir eru Finnar og hefur Luka Kostic, þjálfari íslenska liðsins, tilkynnt hverjir hefja leikinn fyrir Íslands hönd.
30. júlí 2008
Úrtökumót KSÍ fyrir stúlkur fæddar árið 1993 fer fram að Laugarvatni 9.-10. ágúst. Um 40 leikmenn frá félögum víðs vegar af landinu hafa verið boðaðir.
29. júlí 2008
Önnur umferð Opna Norðurlandamóts U17 landsliða karla fór fram í dag, þriðjudag. Ísland tapaði fyrir Englandi með eins marks mun og gerðu þeir ensku eina mark leiksins.
29. júlí 2008
U17 landslið karla leikur annan leik sinn á Opna NM í dag, en leikið er í Svíþjóð. Mótherjar dagsins eru Englendingar og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma. Fjórar breytingar hafa verið gerðar á byrjunarliði Íslands frá fyrsta leiknum.
29. júlí 2008
Byrjunin á fyrsta leik U17 landsliðs karla á Opna Norðurlandamótinu var ekki sú sem leikmenn liðsins höfðu óskað sér. Rautt spjald og víti á íslenska liðið og Norðmenn náðu forystunni. Lokatölur leiksins urðu 4-1 fyrir Noreg.
28. júlí 2008
Fyrir helgina var gerð ein breyting á landsliðshópi U17 karla sem tekur þátt í Opna Norðurlandamótinu í vikunni. Andri Adolphsson kom inn í hópinn í stað Sigurbergs Einarssonar, sem er meiddur.
28. júlí 2008
U17 landslið karla leikur í dag sinn fyrsta leik í Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Svíþjóð. Mótherjar dagsins eru Norðmenn og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma. Luka Kostic, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt.
28. júlí 2008
Unnið er að breytingum á miðasölukerfi fyrir Laugardalsvöll og af þeim sökum verður miðasala á Ísland - Skotland lokuð í dag, mánudag. Miðasalan opnar aftur í síðasta lagi á morgun, þriðjudag.
25. júlí 2008
Norðurlandamót U17 karla hefst á mánudaginn og mun íslenska liðið halda utan nú á sunnudag. Mótið fer fram í Svíþjóð og eru Íslendingar í riðli með Noregi, Finnlandi og Englandi.
15. júlí 2008
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn er heldur til Svíþjóðar til þess að taka þátt á Norðurlandamótinu. Ísland er í riðli með Noregi, Englandi og Finnlandi.
15. júlí 2008
Í dag mæta Íslandsmeistarar Vals Bate Borisov frá Hvíta Rússlandi í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. Leikið verður í Borisov en Bate sló einmitt út FH í sömu keppni á síðasta ári.
11. júlí 2008
Í dag hófst miðasala á leik Íslands og Skotlands í undankeppni fyrir HM 2010 en þetta er fyrsti heimaleikur Íslands í keppninni. Leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum, miðvikudaginn 10. september og hefst kl. 18:30.
5. júlí 2008
Í dag var leikið um sæti á Opna Norðurlandamótinu hjá U16 kvenna en mótið hófst hér á landi á mánudag. Þjóðverjar unnu Frakka í úrslitaleik á Laugardalsvelli og Íslendingar lögðu Svía í leik um sjöunda sætið. Norðmenn urðu Norðurlandameistarar þar sem þeir voru efstir Norðurlandaþjóða.