Verslun
Leit
SÍA

1. september 2006

Ein breyting á byrjunarliði U21 karla

Luka Kostic, þjálfari U21 landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Ítölum í kvöld, en liðin mætast á Laugardalsvelli í undankeppni EM og hefst leikurinn kl. 19:00. Ein breyting er gerð á liðinu frá síðasta leik.

Landslið

31. ágúst 2006

Strákarnir kljást við ítalskar stjörnur

Þeir fjölmörgu aðdáendur ítalska boltans hér á landi munu vafalaust kætast yfir komu U21 liðsins hingað og leik þeirra við Íslendinga á föstudaginn.  Nokkrir leikmenn liðsins eru vel þekktir og leika margir stór hlutverk hjá sínum félagsliðum.

Landslið

30. ágúst 2006

Aðgöngumiðar á landsleiki fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Danmörk afhenta föstudaginn 1. september frá kl. 10:00 - 17:00. Miðarnir verða afhentir í miðasöluskúrum sem staðsettir eru sunnan við austurstúku Laugardalsvallar.

Landslið

30. ágúst 2006

Hópur Norður-Íra er mætir Íslendingum

Lawrie Sanchez, landsliðsþjálfari Norður-Írlands, hefur valið hópinn sem mætir Íslendingum í Belfast laugardaginn 2. september.  Leikurinn er fyrsti leikur beggja þjóða í riðlakeppninni fyrir EM 2008.

Landslið

30. ágúst 2006

Miðasala á Ísland - Svíþjóð hafin

Miðasala á leik Íslands og Svíþjóðar í riðlakeppni fyrir EM 2008 er hafin.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli miðvikudaginn 11. október og hefst kl. 18:05.  Sala aðgöngumiða á landsleiki fer nú fram í nýju miðasölukerfi fyrir Laugardalsvöll frá midi.is.  Kaupendum gefst kostur á að velja sér það sæti sem viðkomandi vilja sitja í.

Landslið

30. ágúst 2006

Ísland - Ítalía á föstudag - Frítt á völlinn

Á föstudag mætast U21 landslið Íslands og Ítalíu í riðlakeppni EM.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst kl. 19:00.  Takist okkar piltum að vinna sigur á Ítölum eiga þeir góða möguleika á að komast áfram í umspil um sæti í lokakeppninni.

Landslið

30. ágúst 2006

Ítalir gríðarlega öflugir í U21 aldursflokknum

Ítalir hafa verið gríðarlega öflugir í U21 aldursflokki karla undanfarin 15 ár, en þeir hafa hampað sigri á EM í fimm af síðustu átta skiptum sem keppnin hefur farið fram. Hollendingar eru núverandi Evrópumeistarar.

Landslið

29. ágúst 2006

Miðasala á Ísland-Svíþjóð hefst á hádegi á morgun

Miðasala á leik Íslands og Svíþjóðar í riðlakeppni fyrir EM 2008 hefst á hádegi á morgun, miðvikudag.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli miðvikudaginn 11. október og hefst kl. 18:05.  Uppselt er á leik Íslands og Danmerkur.

Landslið

28. ágúst 2006

Landslið U19 karla valið

Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið landsliðshóp sinn er heldur til Skotlands.  Mun liðið leika þar tvo vináttulandsleiki við heimamenn og fara leikirnir fram 4. og 6. september.

Landslið

27. ágúst 2006

Örfáir miðar eftir á Ísland - Danmörk

Miðasala á leik Íslands og Danmerkur, er fram fer miðvikudaginn 6. september kl. 18:05 á Laugardalsvelli, gengur mjög vel.  Örfáir miðar eru eftir á leikinn og eru allra síðustu forvöð til þess að tryggja sér miða.

Landslið

26. ágúst 2006

Tap gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir því sænska á Laugardalsvelli í dag.  Lokatölur urðu 0-4 eftir að staðan var 0-1 í hálfleik.  Íslenska liðið barðist vel í leiknum en sænska liðið reyndist of sterkt.

Landslið

25. ágúst 2006

Landsliðshópurinn tilkynntur

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur valið landsliðshópinn er mætir Norður-Írum og Dönum.  Leikurinn við Norður-Íra er leikinn í Belfast 2. september en leikurinn við Dani er á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 6. september.

Landslið

25. ágúst 2006

Byrjunarlið U18 karla gegn Póllandi

Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari U18 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Pólverjum í dag.  Leikurinn er liður í alþjóðlegu móti er fram fer í Tékklandi.  Liðið hefur gert jafntefli við Belga og tapað gegn Slóvakíu.

Landslið

25. ágúst 2006

Ísland - Svíþjóð laugardaginn kl. 14:00

Ísland og Svíþjóð mætast á Laugardalsvelli 26. ágúst kl. 14:00 og er leikurinn í riðlakeppni HM.  Þessi leikur er síðasti heimaleikur íslenska liðsins í keppninni og eru knattspyrnuáhugamenn hvattir til þess að koma á völllinn og hvetja stelpurnar.  Aðgangur á leikinn er ókeypis.

Landslið

25. ágúst 2006

Nicole Petignat dæmir leik Íslands og Svíþjóðar

Dómari leiks Íslands og Svíþjóðar á laugardaginn er einn þekktasti dómari Evrópu, Nicole Petignat frá Sviss.  Hún dæmdi m.a. úrslitaleik Heimsmeistarakeppni kvenna árið 1999 þegar að Kína og Bandaríkin mættust í Los Angeles.

Landslið

25. ágúst 2006

Jörundur Áki í tveggja leikja bann

Aganefnd UEFA hefur úrskurðað Jörund Áka Sveinsson, landsliðsþjálfara kvennalandsliðsins, í tveggja leikja bann vegna brottvísunar hans í leik Íslendinga og Tékka þann 19. ágúst síðastliðinn.

Landslið

25. ágúst 2006

Byrjunarliðið gegn Svíum tilkynnt

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Svíum.  Leikurinn hefst kl. 14:00, laugardaginn 26. ágúst og fer fram á Laugardalsvelli.  Aðgangur á leikinn er ókeypis.

Landslið

24. ágúst 2006

U21 karla mætir Ítölum 1. september

Lúka Kostic, þjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Ítölum í riðlakeppni Evrópumóts U21 landsliða 2006/2007.  Leikurinn er leikinn á Laugardalsvelli, föstudaginn 1. september kl. 19:00.

Landslið