Verslun
Leit
SÍA

15. ágúst 2006

Landslið U18 karla valið

Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari U18 landsliðs karla, hefur valið eftirtalda leikmenn í landslið Íslands sem keppir á alþjóðlegu móti í Tékklandi 21. ágúst - 27. ágúst.

Landslið

15. ágúst 2006

Sala stæðismiða á Laugardalsvelli í dag

Sala stæðismiða á ksi.is og midi.is og einnig við Laugardalsvöll frá kl. 10:00 við aðalinngang vallarins í vesturstúku.   Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega því aðgöngumiðar eru skannaðir inn við aðgönguhlið.

Landslið

14. ágúst 2006

Uppselt í sæti á Spánarleikinn

Í dag seldust upp síðustu miðarnir í sæti á vináttulandsleik Íslands og Spánar er hefst kl. 20:00, þriðjudaginn 15. ágúst.  Enn er hægt að kaupa miða í stæði en forsöluafsláttur er til miðnættis í kvöld.

Landslið

14. ágúst 2006

Eiði Smára gefið frí gegn Spánverjum

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, verður ekki með í vináttulandsleiknum gegn Spáni.  Í samráði við lækna íslenska liðsins og landsliðsþjálfara var ákveðið að gefa Eiði frí í þessum leik.

Landslið

14. ágúst 2006

Aðeins nokkur hundruð miðar eftir í sæti

Miðasala á vináttulandsleik Íslands og Spánar, þriðjudaginn 15. ágúst, gengur mjög vel og í morgun voru nokkur hundruð miðar eftir í sæti.  Ljóst er að sætismiðar munu seljast upp í dag en einnig er hægt að kaupa miða í stæði á þennan leik.

Landslið

13. ágúst 2006

Um 1000 miðar óseldir í sæti

Miðasala á vináttulandsleik Íslands og Spánar, er fram fer þriðjudaginn 15. ágúst kl. 20:00, gengur mjög vel.  Í dag, sunnudag, eru aðeins um 1000 miðar óseldir í sæti.  Einnig eru seldir miðar í stæði á þennan vináttulandsleik.

Landslið

11. ágúst 2006

Um 2500 sæti eftir á landsleikinn gegn Spáni

Miðarnir renna hratt út á vináttulandsleik Íslands og Spánar sem fram fer þriðjudaginn 15. ágúst kl. 20:00.  Um 2500 sæti voru eftir á leikinn seinni partinn í dag, föstudag.  Salan tók góðan kipp í dag eftir að hópur Spánverja var tilkynntur.

Landslið

11. ágúst 2006

Sterkasta lið Spánverja mætir til leiks

Luis Aragones hefur tilkynnt hópinn er kemur til Íslands og mætir Íslendingum í vináttulandsleik, þriðjudaginn 15. ágúst kl. 20:00.  Lið Spánverja er stjörnum prýtt og mæta þeir með sitt sterkasta lið.

Landslið

11. ágúst 2006

Miðar seljast vel á Ísland-Spánn

Miðasala á leik Íslands og Spánar gengur vel en selt er í fyrsta skipti í gegnum nýtt miðasölukerfi á vegum midi.is.  Einnig er hægt að kaupa miða í verslunum Skífunnar og BT-tölva.

Landslið

10. ágúst 2006

Ísland leikur í nýjum búningum

Íslenska landsliðið mun leika í glænýjum búningum í vináttulandsleik þeirra gegn Spáni, 15. ágúst nk.  Um er að ræða nýja búninga frá Errea og verða Íslendingar albláir í leiknum.

Landslið

10. ágúst 2006

Aðgöngumiðar á landsleiki fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Spánn afhenta föstudaginn 11. ágúst frá kl. 10:00 - 17:00. Miðarnir verða afhentir í miðasöluskúrum sem staðsettir eru sunnan við austurstúku Laugardalsvallar.

Landslið

10. ágúst 2006

Hjálmar Jónsson inn í landsliðshópinn

Eyjólfur Sverrisson hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum fyrir leikinn gegn Spáni, þriðjudaginn 15. ágúst.  Hjálmar Jónsson, IFK Gautaborg kemur inn í hópinn í stað Brynjars Björns Gunnarssonar sem er meiddur.

Landslið

9. ágúst 2006

Hópurinn er mætir Tékkum

Jörundur Áki Sveinsson hefur valið landsliðshópinn er mætir Tékkum, laugardaginn 19. ágúst kl. 16:00.  Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2007 og er Ísland sem stendur í þriðja sæti riðilsins með jafnmörg stig og Tékkar.

Landslið

8. ágúst 2006

Hópurinn valinn er mætir Spánverjum

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur valið landsliðshópinn sem mætir Spánverjum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þriðjudaginn 15. ágúst kl. 20:00.  Miðasala er í fullum gangi á ksi.is og midi.is og gengur mjög vel.  

Landslið

8. ágúst 2006

Leiktími á leiki Íslendinga í riðlakeppni EM 2008

Ákveðnir hafa verið leiktímar á landsleiki Íslendinga í riðlakeppninni fyrir EM 2008.  Um er að ræða leiki gegn Norður-Írum, Dönum og Svíum.  Leikirnir gegn Danmörku og Svíþjóð eru leiknir heima en leikurinn gegn Norður-Írum fer fram í Belfast.

Landslið

8. ágúst 2006

U17 karla endaði í fimmta sæti

Íslenska U17 karlalandsliðið sigraði U19 Færeyja með tveimur mörkum gegn einu í leiknum um fimmta sætið.  Íslenska liðið endaði því í fimmta sæti á þessu Norðurlandamóti er fram fór í Færeyjum.  Danir urðu Norðurlandameistarar.

Landslið

8. ágúst 2006

Vináttulandsleikur gegn Bandaríkjunum

Knattspyrnusamband Íslands hefur þekkst boð Bandaríska knattspyrnusambandsins um að íslenska kvennalandsliðið mun leika vináttulandsleik við Bandaríkin, sunnudaginn 8. október næstkomandi. 

Landslið

3. ágúst 2006

Miðar á leik N-Írlands og Íslands 2. september

Þann 2. september nk. hefur íslenska landsliðið þátttöku sína í undankeppni fyrir EM 2008.  Leika þeir þá við Norður Írland ytra og er leikið á Windsor Park í Belfast.  Stuðningsmenn Íslands geta keypt miða hjá KSÍ og kostar hann 3.500 krónur.

Landslið