Verslun
Leit
SÍA

24. apríl 2006

Enn hægt að fá miða á HM 2006 á netinu

Ennþá eru eftir miðar á HM 2006 í Þýskalandi sem hefst 9. júní.  Fimmta þrep söluferlis FIFA hefst 1. maí en einungis er hægt að kaupa miða á sérstakri HM síðu FIFA.

Landslið

24. apríl 2006

U21 karla hópurinn sem mætir Andorra

Lúkas Kostic, þjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Andorra ytra þann 3. maí í forkeppni Evrópumóts U21 landsliða 2006/2007.  Þetta er fyrri leikur þessara þjóða en seinni leikurinn fer fram hér heima 1. júní.

Landslið

19. apríl 2006

Nýr styrkleikalisti FIFA

Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem birtur var í dag, stendur íslenska karlalandsliðið í stað og er í 97. sæti.  Fyrstu mótherjar okkar í undankeppni EM 2008, Norður Írar, skjótast upp fyrir okkur á listanum.

Landslið

19. apríl 2006

U 19 kvenna - hópurinn valinn

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið eftirtalda leikmenn í U19 ára landslið kvenna sem tekur þátt í milliriðlum EM sem fram fara nú í apríl í Rúmeníu.

Landslið

12. apríl 2006

Fyrsti ósigurinn gegn Hollendingum staðreynd

A landslið kvenna beið í kvöld ósigur gegn Hollendingum, en þetta er í fyrsta sinn sem þeim appelsínugulu tekst að vinna sigur á íslenska liðinu. Sigurmark hollenska liðsins kom í síðari hálfleik.

Landslið

12. apríl 2006

Byrjunarliðið gegn Hollandi í kvöld

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem leikur vináttulandsleik gegn Hollendingum í kvöld.  Leikurinn fer fram á Oosteerenk Stadium í Zwolle hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma.

Landslið

10. apríl 2006

Alltaf unnið Hollendinga

A landslið kvenna mætir Hollendingum í vináttulandsleik á miðvikudag.  Liðin hafa mæst fjórum sinnum áður og hefur íslenska liðið unnið sigur í öllum viðureignunum. Síðasta viðureign liðanna var í undankeppni EM 1997. 

Landslið

5. apríl 2006

Landsliðsæfingar U19 kvenna um páskana

Á þriðja tug leikmanna hafa verið boðaðir á æfingar U19 landsliðs kvenna sem fram fara á Fylkisvelli um páskana.  Æfingarnar eru hluti af lokaundirbúningi liðsins fyrir EM milliriðil, sem fram fer í Rúmeníu í lok apríl.

Landslið

4. apríl 2006

Úrtaksæfing U21 karla 15. apríl

Tæplega þrjátíu leikmenn hafa verið boðaðir á úrtaksæfingu vegna U21 landsliðs karla, sem fram fer í Fífunni í Kópavogi laugardaginn 15. apríl. Æfingarnar fara fram undir stjórn Lúkasar Kostic, þjálfara liðsins.

Landslið

3. apríl 2006

Hópurinn gegn Hollendingum tilkynntur

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur valið 18 manna hóp fyrir vináttulandsleikinn gegn Hollendingum, sem fram fer á Oosterenk leikvanginum í Zwolle 12. apríl næstkomandi.

Landslið

27. mars 2006

Tveir vináttulandsleikir við Skota í september

Ákveðið hefur verið að U19 landslið karla leiki tvo vináttuleiki við Skota í byrjun september og fara báðir leikirnir fram í Skotlandi. U19 landslið Íslands og Skotlands hafa mæst 13 sinnum áður.

Landslið

21. mars 2006

U19 landslið kvenna æfir um næstu helgi

Tæplega 30 leikmenn frá 9 félögum verið boðaðir á æfingar U19 landsliðs kvenna um næstu helgi. Æft verður á Fylkisvelli á laugardeginum og í Egilshöll á sunnudeginum.

Landslið

20. mars 2006

Kvennalandsliðið í 19. sæti á FIFA-listanum

A landslið kvenna er í 19. sæti á styrkleikalista FIFA fyrir kvennalandslið og stendur í stað frá því listinn var síðast gefinn út, en styrkleikalisti kvennaliða er gefinn út þrisvar sinnum á ári.

Landslið

16. mars 2006

Ísland í 97. sæti á styrkleikalista FIFA

A landslið karla er í 97. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA og fellur því um eitt sæti frá síðasta mánuði. Brasilíumenn eru efstir sem fyrr, en baráttan á topp 10 þykir aldrei hafa verið eins jöfn.

Landslið

13. mars 2006

Fundur undirbúningshóps U19 kvenna fyrir EM 2007

Fyrsti fundur undirbúningshóps U19 landsliðs Íslands fyrir úrslitakeppni EM U19 kvenna 2007 fer fram miðvikudaginn 15. mars. Farið verður yfir undirbúning liðsins fram að móti og fyrirkomulag þrekmælinga kynnt.

Landslið

13. mars 2006

Úrtaksæfingar U16 liðs karla um helgina

Vel á fjórða tug leikmanna hafa verið boðaðir á úrtaksæfingar fyrir U16 landslið karla um næstu helgi - dagana 18. og 19. mars. Æft verður í Reykjaneshöll og Egilshöll undir stjórn Freys Sverrissonar, þjálfara liðsins.

Landslið

9. mars 2006

Eins marks tap gegn Englandi

A landslið kvenna tapaði í kvöld í vináttulandsleik gegn Englendingum með einu marki gegn engu. Eina mark leiksins kom þegar um 10 mínútur voru til leiksloka við gríðarlegan fögnuð áhorfenda.

Landslið

9. mars 2006

Byrjunarlið Íslands gegn Englandi á Carrow Road

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Englendingum, en liðin mætast í vináttulandsleik á Carrow Road í Norwich kl. 19:45 í kvöld, fimmtudagskvöld.

Landslið