Verslun
Leit
SÍA

21. febrúar 2006

Kristján Valdimarsson í U21 hópinn

Lúkas Kostic, þjálfari U21 landsliða karla, hefur valið Kristján Valdimarsson í hópinn fyrir vináttuleikinn gegn Skotum 28. febrúar. Kristján kemur í staðinn fyrir Bjarna Hólm Aðalsteinsson, sem er meiddur.

Landslið

21. febrúar 2006

Gylfi Einarsson inn fyrir Grétar Ólaf Hjartarson

Grétar Ólafur Hjartarson er meiddur og getur því ekki leikið með A landsliði karla í vináttuleiknum gegn Trinidad & Tobago 28. febrúar. Í stað hans hefur Gylfi Einarsson verið kallaður í hópinn.

Landslið

20. febrúar 2006

Önnur æfingahelgi A kvenna í febrúar

A landslið kvenna kemur saman til æfinga um næstu helgi, en um er að ræða síðari æfingahelgina af tveimur í febrúar. Liðið mætir Englendingum í vináttulandsleik á Carrow Road í Norwich 9. mars næstkomandi.

Landslið

17. febrúar 2006

Undirbúningur fyrir EM U19 kvenna 2007 hafinn

KSÍ mun í tilefni af 60 ára afmæli sambandsins halda úrslitakeppni Evrópumóts U19 landsliða kvenna sumarið 2007.  Markviss undirbúningur íslenska liðsins fyrir keppnina er þegar hafinn.

Landslið

15. febrúar 2006

A landslið karla í 96. sæti á FIFA-listanum

A landslið karla er í 96. sæti á styrkleikalista FIFA í febrúar og fellur því um eitt sæti milli mánaða. Stærstu breytingar á listanum koma til vegna Afríkukeppni landsliða.

Landslið

14. febrúar 2006

Vináttuleikur gegn Spánverjum í ágúst

KSÍ hefur samið við Knattspyrnusamband Spánar um að A-karlalandslið þjóðanna leiki vináttuleik á Laugardalsvelli 16. ágúst næstkomandi.  Liðin eru jafnframt saman í riðli í undankeppni EM 2008.

Landslið

14. febrúar 2006

Landsliðshópur T&T gegn Íslandi

Leo Beenhakker hefur valið 20 manna landsliðshóp Trinidad & Tobago, sem mætir Íslandi í vináttulandsleik á Loftus Road í Lundúnum 28. febrúar. Beenhakker mun nota leikinn til að gefa nokkrum nýjum leikmönnum tækifæri.

Landslið

14. febrúar 2006

Leikjaniðurröðun í undankeppni EM 2008

Leikjaniðurröðun í F-riðli í undankeppni EM 2008 hefur verið ákveðin.  Fyrsti leikur Íslands í keppninni verður á útivelli gegn Norður-Írlandi 2. september, en fyrsti heimaleikurinn verður fjórum dögum síðan gegn Dönum.

Landslið

14. febrúar 2006

Beenhakker leitar að leikmönnum fyrir T&T

Leo Beenhakker, þjálfari landsliðs Trinidad & Tobago, leitar nú að sterkum leikmönnum um allan heim sem eiga rætur sínar að rekja til landsins og gætu leikið með liðinu á HM í sumar.

Landslið

14. febrúar 2006

U21 hópurinn sem mætir Skotum 28. febrúar

U21 landslið karla mætir Skotum í vináttulandsleik á Firhill Stadium í Glasgow 28. febrúar næstkomandi. Lúkas Kostic, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt hópinn fyrir leikinn, sem er sá fyrsti undir hans stjórn.

Landslið

14. febrúar 2006

Landsliðshópurinn gegn Trinidad & Tobago

Eyjólfur Sverrisson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt fyrsta hóp sinn síðan hann tók við stjórn liðsins síðastliðið haust. Íslenska liðið mætir Trinidad & Tobago í vináttulandsleik á Loftus Road í Lundúnum 28. febrúar.

Landslið

14. febrúar 2006

Fjórða söluþrep á HM opnar 15. febrúar

Fjórða söluþrep í miðasölu fyrir úrslitakeppni HM opnar 15. febrúar á fifaworldcup.com. Um 30.000 miðar eru í boði að þessu sinni og góðar líkur eru á því að fleiri miðar verði í boði eftir því sem líður á þrepið.

Landslið

13. febrúar 2006

Fundað um niðurröðun leikja í undankeppni EM 2008

Þriðjudaginn 14. febrúar funda forystumenn og landsliðsþjálfarar þjóðanna sjö sem eru í F-riðli í undankeppni EM 2008.  Þar verður leikjaniðurröðun riðilsins ákveðin og verður hún birt hér á vefnum um leið og hún liggur fyrir.

Landslið

13. febrúar 2006

Æfingar A-landsliðs kvenna í febrúar

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur boðað 26 leikmenn á æfingar liðsins í febrúar. Liðið mætir Englendingum í vináttulandsleik á Carrow Road í Norwich 9. mars næstomandi.

Landslið

8. febrúar 2006

U21 karla mætir Skotum á Firhill Stadium

Leikstaður hefur verið ákveðinn fyrir vináttuleik U21 karlalandsliða Skotlands og Íslands, sem fram fer ytra 28. febrúar næstkomandi.  Leikið verður á Firhill Stadium í Glasgow, heimavelli Partick Thistle.

Landslið

6. febrúar 2006

Úrtaksæfingar U17 og U19 karla 11. og 12. febrúar

Alls hafa um 60 leikmenn verið boðaðir á úrtaksæfingar fyrir U17 og U19 landslið karla, sem fram fara um næstu helgi. U17 hópurinn er nokkuð stærri, en henn telur 34 leikmenn.

Landslið

6. febrúar 2006

Fámennasta þjóðin á HM frá upphafi

Trinidad & Tobago verður í sumar fámennasta þjóðin sem tekur þátt í úrslitakeppni HM frá upphafi.  Í landinu býr 1,1 milljón manna á rúmlega 5 þúsund ferkílómetrum.

Landslið

6. febrúar 2006

A landslið kvenna leikur á Carrow Road

Leikstaður hefur verið ákveðinn fyrir vináttuleik A landsliðs kvenna gegn Englandi 9. mars næstkomandi.  Leikið verður á Carrow Road, heimavelli knattspyrnuliðsins Norwich City.

Landslið