27. september 2005
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Georgíu í undankeppni EM, en liðin mætast kl. 14:00 í dag að íslenskum tíma.
27. september 2005
U17 landslið karla hafnaði í 3. sæti síns riðils í undankeppni EM, sem fram fór í Bosníu/Hersegóveníu. Lokaumferðin fór fram í dag, þriðjudag, og beið íslenska liðið 1-4 ósigur gegn Tékkum.
27. september 2005
U19 landslið kvenna vann Georgíu með sjö mörkum gegn engu í undankeppni EM í dag, þriðjudag. Katrín Ómarsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir gerðu báðar tvö mörk fyrir íslenska liðið.
27. september 2005
Guðni Kjartansson, þjálfari U19 landslið karla, hefur valið 18 manna hóp fyrir undankeppni EM, en riðill Íslands fer fram í Sarajevo í Bosníu/Hersegóvínu í byrjun október.
25. september 2005
U17 landslið karla gerði í morgun 2-2 jafntefli við Svía í öðrum leik sínum í undanriðli Evrópukeppninnar.
25. september 2005
Lúkas Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur gert eina breytingu á byrjunarliðinu sem mætir Svíum í dag klukkan 9 frá liðinu sem vann Andorramenn á föstudag.
24. september 2005
A landslið kvenna beið í dag, laugardag, lægri hlut gegn Tékkum í undankeppni HM 2007. Eina mark leiksins kom snemma í fyrri hálfleik og þrátt fyrir mikla baráttu tókst íslenska liðinu ekki að jafna metin.
23. september 2005
U17 landslið karla vann í dag öruggan 6-0 sigur á Andorra í undankeppni EM, en riðillinn fer einmitt fram þar í landi. Í riðlinum leika einnig Svíþjóð og Tékkland, en þau lið mætast síðar í dag.
23. september 2005
A landslið kvenna lenti í vandræðum á leið sinni til Tékklands til að leika við heimamenn í undankeppni HM. Allur farangur liðsins varð eftir á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.
23. september 2005
Lúkas Kostic, þjálfari U17 karla hefur tilkynnt byrjnarliði sem leikur gegn Andorra í fyrsta leiknum í undanriðli Evrópukeppnirnar í dag klukkan 10 að íslenskum tíma.
23. september 2005
Úrslitakeppni HM U17 landsliða karla fer fram þessa dagana í Perú og fara allir leikir fram á gervigrasi, þar á meðal úrslitaleikurinn sem leikinn verður á þjóðarleikvangi þeirra Perúmanna í höfuðborginni Lima.
23. september 2005
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, mun tefla fram óbreyttu byrjunarliði frá jafnteflisleiknum gegn Svíum þegar íslenska liðið mætir Tékkum í undankeppni HM 2007 í Tékklandi á laugardag.
22. september 2005
Guðni Kjartansson, þjálfari U19 landsliðs karla, hefur valið 34 leikmenn í undirbúningshóp fyrir undankeppni EM, en riðill Íslands fer fram í Sarajevo í byrjun október.
22. september 2005
KSÍ hefur til sölu miða fyrir Íslendinga á viðureign Íslands og Svíþjóðar í undankeppni HM karlalandsliða 2006, sem fram fer í Svíþjóð 12. október næstkomandi, en um er að ræða lokaleik Íslands í riðlinum.
22. september 2005
Erla Hendriksdóttir, önnur leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, hefur ákveðið að leggja skóna í hilluna í haust og því verður leikur Íslands gegn Tékkum í undankeppni HM 2007 á laugardag kveðjuleikur Erlu.
22. september 2005
Jóhannes Valgeirsson, FIFA dómari og Gunnar Sverrir Gunnarsson, FIFA aðstoðardómari, dæma í vikunni í undankeppni Evrópumóts landsliða U17.
20. september 2005
Systkinin Björg Bjarnadóttir og Birkir Bjarnason eru í U19 landsliðum Íslands. Þau eru búsett í Stavanger í Noregi og eru börn Bjarna Sveinbjörnssonar, sem lék m.a. með Þór Akureyri og ÍBV hér á árum áður.
19. september 2005
Úrtaksæfingar fyrir U17 landslið kvenna fara fram 24. og 25. september í Fífunni í Kópavogi. Alls hafa tæplega 50 leikmenn frá félögum víðs vegar um landið verið boðaðir á æfingarnar.