31. janúar 2006
Um næstu helgi fara fram æfingar fyrir U17 og U19 landslið kvenna. Um 50 leikmenn hafa verið boðaðir til æfinga að þessu sinni, en æft verður í Fífunni, Reykjaneshöll, á Fylkisvelli og í Egilshöll.
Eins og svo oft áður á Breiðablik flesta fulltrúa í báðum æfingahópum, en leikmenn frá Grindavík og Tindastóli eru einnig fjölmennir í U17 æfingahópnum og í U19 æfingahópnum eru leikmenn Fjölnis og KR einnig áberandi.