8. október 2012
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður sænska liðsins Norrköping, hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum fyrir leikina við Albaníu og Sviss af persónulegum ástæðum. Ekki verður annar leikmaður kallaður inn í hópinn að svo stöddu.
Gunnar Heiðar hefur leikið vel með liði Norrköping og er á meðal markahæstu leikmanna sænsku deildarinnar. Hann á að baki 23 A-landsleiki og hefur skorað í þeim 5 mörk.
