3. nóvember 2026
Ísland er í riðli 3 með Danmörku, Ítalíu og Wales í A deild Þjóðadeildar kvenna.
Leikirnir fara fram fyrri hluta 2027, í febrúar/mars, apríl og júní.
Það lið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B deild fyrir undankeppni EM 2029. Liðið í þriðja sæti fer í umspil gegn liði sem endar í öðru sæti riðils í B deild.
Þjóðadeildin mun í þetta skiptið einnig vera undankeppni fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles 2028. Þau fjögur lið sem vinna sína riðla í A deild tryggja sér með því sæti í Los Angeles ásamt því að komast í undanúrslit Þjóðadeildarinnar.