29. október 2026
U15 karla mætir Spáni á föstudag í öðrum leik sínum á UEFA Development móti í Austurríki.
Leikurinn á föstudag hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og verður hægt að sjá hann í beinni útsendingu á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans.
Ísland gerði 3-3 jafntefli við Austurríki í fyrsta leik sínum á mótinu og vann svo vítaspyrnukeppni sem gripið er til ef leikir enda jafnir. Spánn vann sinn fyrsta leik 2-0 gegn Grikklandi.