Verslun
Leit
Image00002
Landslið
U15 karla

U15 karla vann flottan 4-1 sigur gegn Grikklandi í síðasta leik liðsins á UEFA Development móti í Austurríki.

Jón Mikael Gestsson, Novak Tufegdzic, Agnar Nóel Hallsson og Guðni Bent Helgason skoruðu mörk Íslands í leiknum.

Ísland gerði 3-3 jafntefli við Austurríki, og vann síðan vítaspyrnukeppni í lok leiks, og tapaði 1-3 gegn Spáni í hinum leikjunum á mótinu.