22. janúar 2007
Landslið kvenna U19 mun leika vináttulandsleik við Svíþjóð 18. júní næstkomandi og verður leikið ytra. Leikurinn er lokaleikur liðsins fyrir úrslitakeppni EM hjá U19 kvenna sem hefst hér á landi 18. júlí.
Eftir á að staðfesta leikstað fyrir leikinn en leikið verður í nágrenni Stokkhólms.
Liðið mun einnig leika á móti á La Manga þar sem mótherjar liðsins verða Ítalía, England og Danmörk. Leikið verður 12. - 16 mars.
