27. desember 2012
Eyjólfur Sverrisson hefur verið endurráðinn landsliðsþjálfari U21 karla og er nýr samningur hans til tveggja ára. Eyjólfur tók við liðinu árið 2008 en hann hafði einnig þjálfað liðið á árunum 2003 - 2005.
Næsta verkefni liðsins er vináttulandsleikur gegn Wales ytra, 6. febrúar næstkomandi en þann 31. janúar verður svo dregið í undankeppni EM U21 karla 2015. Úrslitakeppnin það ár fer fram í Tékklandi.
