U21 landslið karla mætir Færeyjum á þriðjudag í lokaleik liðsins í undankeppni EM 2027. Leikurinn fer fram í Færeyjum klukkan 17:00 og verður hann í beinni útsendingu á Sýn.
Ísland á möguleika á öðru sæti riðilsins, sem gefur sæti í umspili um sæti á EM.
Til að tryggja annað sætið þarf Ísland að vinna Færeyjar og Sviss má ekki vinna sigur gegn Frakklandi.
- Ef Ísland vinnur sinn leik endar Ísland með 18 stig.
- Ef Sviss vinnur sinn leik gegn Frakklandi endar Sviss með 20 stig og endar í 2. sæti.
- Ef Sviss gerir jafntefli og Ísland vinnur enda bæði lið með 18 stig. Þá endar Ísland í 2. sæti og kemst í umspil því Ísland hafði betur í innbyrðis viðureignum gegn Sviss (sigur og jafntefli).
Allt um keppnina á vef UEFA