Verslun
Leit
IMG 8281
Mannvirki

Dagana 15.–16. október tók KSÍ á móti fulltrúum knattspyrnusambanda Norðurlandanna á norrænni mannvirkjaráðstefnu í Reykjavík. Fulltrúar frá Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Færeyjum tóku þátt, auk tveggja fulltrúa frá UEFA og ráðgjafa þeirra við verkefnið um standandi stæði.

Með ráðstefnunni skapaðist góður vettvangur fyrir samböndin til að miðla reynslu og þekkingu sín á milli og styrkja samstarf á sviði mannvirkjamála.

Dagskráin var fjölbreytt og meðal umfjöllunarefna var uppbygging hybrid-knattspyrnuvallar á Laugardalsvelli, málefni mannvirkja á vettvangi UEFA (Standing Facilities), hugmyndir um norrænan rannsóknarsjóð fyrir knattspyrnu, þróun menntunar á sviði grasvallayfirborða og framtíðarþróun knattspyrnugrasa (gervigras) á Norðurlöndunum. Þá kynntu fulltrúar norrænu knattspyrnusambandanna verkefni og stöðu mannvirkjamála í sínum löndum.   

Hluti dagskrárinnar fór einnig fram utan Laugardalsvallar þar sem þátttakendur heimsóttu íslensk knattspyrnumannvirki. Hópurinn heimsótti Miðgarð hjá Stjörnunni, Kaplakrika hjá FH og nýtt knatthús Hauka.

KSÍ þakkar þátttakendum fyrir komuna til Íslands og fyrir gott og uppbyggilegt samtal á ráðstefnunni. 

IMG 8277
IMG 8296
IMG 8288
IMG 8286
IMG 8280
IMG 8285
IMG 8279