Verslun
Leit
579375728 10235017057600257 6505713734504218047 N
Mótamál

Alþjóðlegt knattspyrnumót eldri flokka, Football & Fun, fer fram í 19. skipti laugardaginn 7. nóvember í Egilshöll í Reykjavík. Um 50 knattspyrnulið með yfir 400 leikmenn frá yfir 10 löndum eru nú þegar skráð til þátttöku í mótinu.

Mótið er eins og undanfarin ár haldið af Fylki og Þrótti í Reykjavík með stuðningi Reykjavíkurborgar og KSÍ.

,,Þróttur oldboys gengu til liðs við Fylkismenn sem mótshaldarar Football & Fun fyrir nokkrum árum og við mætum til leiks með sjö lið í ár. Knattspyrnumót af þessu tagi eru af öðrum þræði mikilvægar uppskeruhátíðir fyrir boltahópa á öllum aldri. Það er sprúðlandi fjör hjá eldri iðkendum hér á landi og fjöldinn hjá sumum félögum er umtalsverður. Við erum til dæmis um 200 talsins hjá Þrótti oldboys og höldum tvö önnur stórmót árlega, Lava Cup í Skotlandi á vorin og Rey Cup Senior í Laugardal um mitt sumar,” segir Indriði Waage.

Á Football & Fun er leikið á fjórðungi af knattspyrnuvelli og 6 leikmenn eru inni á vellinum hverju sinni, þar af einn markvörður. Vinalegar leikreglur gilda, tæklingar eru bannaðar og innspörk fyrir neðan hné eru í stað innkasta. Keppt er í fjórum flokkum karla (30+, 40+, 50+ og 60+) og þremur flokkum kvenna (22+, 30+ og 40+). Mótið fer fram kl. 9-16. Glæsilegt lokahóf verður síðan í Fylkishöll um kvöldið með sælkeramat, verðlaunaafhendingu og skemmtun fram eftir nóttu

Enn er opið fyrir skráningar íslenskra liða á Football & Fun og eru áhugasamir leikmenn hvattir til að skrá til leiks bæði lið og leikmenn.

https://footballfun.is/

Football And Fun 7 November 2026