24. október 2026
Lokaumferð Bestu deildar karla fór fram um helgina og fyrir leik Víkings og Fram í Víkinni í dag, laugardag, var viðurkenning til besta leikmanns Bestu deildar karla afhent. Sem fyrr eru það leikmenn í Bestu deildinni sem kjósa.
Besti leikmaður Bestu deildar karla 2026 er Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Víkings R. Gylfi lék 21 leik í deildinni og skoraði í þeim 9 mörk.
Það hefur verið fastur liður í lok móta að afhenda leikmönnum sem skara fram úr í efstu deild karla „Flugleiðahornin“ svokölluðu. Það var Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, sem afhenti Gylfa þennan fræga verðlaunagrip eftir leik Víkings og Fram í dag.