Verslun
Leit
3Cf845a7 C7fb 46Fd 8A6b 00C965c28786
Mótamál
Besta deildin

Lokaumferð Bestu deildar kvenna fór fram um helgina og eftir leik Breiðablik og FH á Kópavogsvelli var viðurkenning til efnilegasta leikmanns Bestu deildar kvenna afhent. Sem fyrr eru það leikmenn í Bestu deildinni sem kjósa.

Efnilegasti leikmaður Bestu deildar kvenna 2026 er Ingibjörg Magnúsdóttir, FH. Ingibjörg lék alla 23 leiki liðsins í deildinni og skoraði í þeim sex mörk.

Það hefur verið fastur liður í lok móta að afhenda leikmönnum sem skara fram úr í efstu deild kvenna „Flugleiðahornin“ svokölluðu. Það var Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ sem afhenti þeim Ingibjörgu þennan fræga verðlaunagrip að loknum leik Breiðabliks og FH í dag.