Verslun
Leit
O2A3824
Mótamál
Besta deildin

Þátttökugögn fyrir knattspyrnumótin 2027 í meistaraflokkum hafa verið birt á vef KSÍ. Þátttökutilkynningum í Íslandsmót og bikarkeppni meistaraflokka ber að skila fyrir 10. nóvember.

Í öðrum mótum, þar með talið í Utandeild KSÍ, ber að tilkynna þátttöku í síðasta lagi 5. janúar.

Sérstakt þátttökueyðublað verður sent út í desember fyrir yngri flokkana.

Vinsamlegast athugið að til þess að þátttökutilkynningin teljist fullgild verður undirritað eintak af þátttökutilkynningunni að berast skrifstofu KSÍ á netfangið: birkir@ksi.is. 

Þátttökutilkynning á vef KSÍ

Mótagjöld 2027

Upphæð mótagjalda ársins 2027 eru í skoðun og verða tilkynnt sérstaklega. Hér er um að ræða  þátttökugjöld, gjald vegna ferða- og uppihaldskostaðar dómara og ferðaþátttökugjald.

Ný félög í keppni meistaraflokks 

Vakin er athygli á því að öll ný félög sem hefja keppni í meistaraflokki 2027 (deild og/eða bikar) og félög sem ekki hafa tekið þátt í keppni meistaraflokks síðustu þrjú keppnistímabil, ber að leggja fram með þátttökutilkynningunni eftirfarandi viðbótargögn:

  • Staðfestingu frá ÍSÍ um stofnun félagsins (ný félög).
  • Staðfestingu aðalstjórnar félagsins um heimild til þátttöku.
  • Staðfestingu viðkomandi vallaryfirvalda um heimild til afnota af leikvelli.
  • Leikmannalista – Lágmark 25 leikmenn. 

Óskir félaga vegna leikja

Mótanefnd KSÍ óskar eftir því að félög komi á framfæri við nefndina þeim óskum sem þau telja að nefndin eigi að leitast við að uppfylla við niðurröðun leikja fyrir sumarið 2027.

Dæmi um óskir:

·       Framkvæmdir á leikvelli sem hafa áhrif á niðurröðun.

·       Ósk um að eiga ekki heimaleik á ákveðnum degi þar sem völlurinn sé upptekinn eða viðburðir á svæðinu sem koma í veg fyrir að hægt sé að leika.

·       Ósk um að eiga ekki heimaleik í fyrstu umferð vegna vallarmála. 

·       Ósk um að eiga heimaleik á ákveðnum degi vegna viðburðar á svæðinu sem gæti aukið aðsókn.

·       Óskir m.t.t. ferðatilhögunar, t.d. tímasetning útileikja.

·       Tímasetning/dagsetning heimaleikja.

·       Aðrar óskir/ábendingar.

Upplýsingar um félög - Tengiliðaskrá

Af gefnu tilefni eru félög beðin um að uppfæra eins og við á upplýsingar um tengiliði og breytingar á símanúmerum og netföngum í gegnum aðgang yfirumsjónaraðila félagsins í Comet.  Mikilvægt er að skilaboð frá skrifstofu KSÍ komist ávallt til skila og berist til réttra aðila.

Munið að öll þátttökugögn skulu berast fyrir 10. nóvember!