Úrslitaleikur umspils Lengjudeildar karla fer fram á Laugardalsvelli á laugardag og hefst leikurinn kl. 16:15.
Það verða Þróttur R. og Fylkir sem mætast í leiknum og er miðasala á leikinn í fullum gangi á miðasöluvef KSÍ.
Þróttur R. endaði deildina í 2. sæti og vann sigur gegn Njarðvík í undanúrslitum umspilsins á meðan Fylkir endaði í 3. sæti deildarinnar og sló út HK í undanúrslitum.
Heiðursgestir
Heiðursgestur Fylkis er Sigrún Jónsdóttir
Sigrún hefur starfað sem sjálfboðaliði fyrir íþróttafélagið Fylki í tugi ára og komið að og stjórnað fjölmörgum verkefnum sem skipta miklu máli í starfi félagsins.
Sigrún fékk Fylkiskrossinn árið 2017 fyrir ómetanlegt starf en hann er æðsta heiðursmerki félagins.
Sigrún hefur tekið að sér ábyrgðarhlutverk í fjölmörgum ráðum og nefndum á vegum félagsins og setið sem formaður knattspyrnudeildar Fylkis um árabil.
Heiðursgestur Þróttar er Ingvi Sveinsson
Ingvi er Þróttari í húð og hár og hefur verið samofinn sögu félagsins frá barnsaldri, fyrst sem leikmaður og síðar sem þjálfari.
Í áratugi hefur hann miðlað þekkingu sinni, alið upp kynslóðir Þróttara og sett ómetanlegt mark á yngri flokka starf félagsins. Og þá sem hann hefur ekki mótað á knattspyrnuvellinum hefur hann gjarnan frætt innan veggja Langholtsskóla.
Það er okkur mikill heiður að heiðra Ingva í dag.
Dómarar leiksins
Aðaldómari - Helgi Mikael Jónasson
Aðstoðardómarar - Guðmundur Ingi Bjarnason og Eysteinn Hrafnkelsson
Fjórði dómari - Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Vara aðstoðardómari - Antoníus Bjarki Halldórsson
Dómaraeftirlitsmaður - Gunnar Helgason
Fyrri sigurvegarar umspils Lengjudeildar karla
2025 - Keflavík
2024 - Afturelding
2023 - Vestri
Aðsókn að fyrri úrslitaleikjum
2025 - 2.391
2024 - 2.419
2023 - 2.919