11. ágúst 2022
A landslið karla mun taka þátt í Baltic Cup 2022, en ásamt Íslandi taka Litháen, Eistland og Lettland þátt í mótinu.
11. ágúst 2022
Undanúrslit í Mjólkurbikar kvenna fara fram á morgun og laugardag.
10. ágúst 2022
Í dag fara fram síðari leikir í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA. Breiðablik heimsækir Istanbul Basaksehir til Tyrklands og Víkingur R. fer til Póllands þar sem þeir mæta Lech Poznan.
9. ágúst 2022
Íslenska útgáfan af knattspyrnulögunum 2022/23 er nú aðgengileg á vef KSÍ.
9. ágúst 2022
Á síðasta ársþingi KSÍ var samþykkt breytt fyrirkomulagi í keppni neðstu deilda karla frá og með keppnistímabilinu 2023. Í stað núverandi 4. deildar kemur ný 4. deild með 10 liðum og ný 5. deild með 16 liðum í tveimur 8 liða riðlum. Önnur lið leika í Utandeildarkeppni KSÍ.
9. ágúst 2022
Úrslitakeppni 4. deildar karla hefst í lok ágúst. Hér má finna upplýsingar um hvaða lið komast í úrslitakeppnina.
8. ágúst 2022
Átta liða úrslit í Mjólkurbikar karla hefjast í vikunni.
5. ágúst 2022
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið hóp fyrir æfingaleiki U15 kvenna gegn Færeyjum í Færeyjum dagana 15. ágúst til 19. ágúst.
5. ágúst 2022
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið 20 leikmenn til þátttöku í tveimur æfingaleikjum gegn Færeyingum vikuna 15. – 19. ágúst næstkomandi.
5. ágúst 2022
Icelandair býður upp á flug og pakkaferð á leik Íslands gegn Hollandi í undankeppni HM 2023.
5. ágúst 2022
Á nýjum heimslista FIFA sem gefinn var út í dag er íslenska landsliðið í 14. sæti. Er þetta hæsta sem liðið hefur náð á listanum.
5. ágúst 2022
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í alþjóðlegu móti í Telki í Ungverjalandi dagana 14.-21.ágúst n.k.
5. ágúst 2022
Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar KSÍ frá 2. ágúst hefur verið leiðréttur í samræmi við ákvæði 8.3. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál.
5. ágúst 2022
Í góðu samstarfi við hollenska knattspyrnusambandið er KSÍ að vinna í því að fá miða á leikinn fyrir íslenska stuðningsmenn.
5. ágúst 2022
Þjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann í Íslandsmóti.
4. ágúst 2022
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur úrskurðað í þremur málum sem má lesa um hér. Einnig má lesa um niðurstöður frá Áfrýjunardómstóli KSÍ vegna beiðna frá félögum um áfrýjun.
2. ágúst 2022
Breiðablik mun mæta Lilleström eða Antwerp sigri þeir İstanbul Başakşehir og Víkingur mun mæta Malmö eða Diddeleng sigri þeir Lech Poznan.
2. ágúst 2022
Þriðja umferð í forkeppni Sambandsdeildar UEFA hefst á fimmtudag. Breiðablik og Víkingur R. spila heimaleiki sem hefjast kl. 18:45.