6. maí 2021
KSÍ hefur ákveðið að ganga til samninga við RÚV um útsendingarétt frá bikarkeppni KSÍ fyrir árin 2022 til og með 2026.
5. maí 2021
KSÍ auglýsir eftir starfsfólki í skráningu á leikskýrslum úr eldri mótum í gagnagrunn KSÍ . Um er að ræða tímabundið verkefni (frá 15. maí til 30. október 2021).
4. maí 2021
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerða um takmarkanir á samkomum um eina viku.
30. apríl 2021
Ísland er í riðli með Hollandi, Tékklandi, Hvíta Rússlandi og Kýpur í undankeppni HM 2023.
30. apríl 2021
ÍSÍ heldur rafrænt málþing um rafleiki/rafíþróttir og íþróttahreyfinguna sem verður haldið mánudaginn 3. maí.
28. apríl 2021
UEFA hefur staðfest breytingar á Meistaradeild kvenna og taka þær gildi í sumar.
27. apríl 2021
Íslenska landsliðið í eFótbolta hefur leikið seinni umferð sína í undankeppni eEURO 2021.
27. apríl 2021
Á föstudag kemur í ljós hvaða lið A kvenna mætir í undankeppni HM 2023, en lokakeppnin fer fram í Ástraliu og á Nýja Sjálandi.
26. apríl 2021
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja sumarsins í yngri aldursflokkum.
26. apríl 2021
Knattspyrnusamband Íslands og auglýsingastofan Brandenburg hafa hlotið tilnefningar til alþjóðlegu hönnunarverðlaunanna The One Show fyrir ásýnd íslensku landsliðanna í knattspyrnu.
26. apríl 2021
Grunnnámskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið þriðjudaginn 4. maí í höfuðstöðvum KSÍ 3. hæð og hefst það kl. 17:00.
26. apríl 2021
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) mánudaginn 3. maí kl. 17:00.
26. apríl 2021
Íslenska landsliðið í efótbolta leikur á mánudag seinni umferð sína í undankeppni eEURO 2021.
23. apríl 2021
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í Íslandsmótum meistaraflokka. Hafa ber í huga að á síðustu dögum hafa verið gerðar minniháttar breytingar á leikjum í flestum mótum meistaraflokka.
21. apríl 2021
Á fundi stjórnar KSÍ 18. febrúar sl. voru samþykktar tímabundnar breytingar er snúa að leikmannaskiptingum í efstu deildum karla og kvenna.
21. apríl 2021
KSÍ hlaut á dögunum Íslensku auglýsingaverðlaunin 2020 (Lúðurinn) fyrir nýja ásýnd landsliðanna.
21. apríl 2021
Á fundi stjórnar KSÍ 15. apríl sl. var samþykkt ný reglugerð KSÍ um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru.
21. apríl 2021
Á fundi stjórnar KSÍ 15. febrúar sl. voru samþykktar breytingar á reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál og reglugerð KSÍ um áfrýjunardómstól KSÍ.