26. mars 2021
KSÍ og ÍTF sendu í vikunni frá sér beiðni um tillögur ("Request for Proposals") vegna úthlutunar sjónvarps- og útsendingaréttinda fyrir næstu fjögur ár (2022-2025).
25. mars 2021
A landslið karla tapaði með þremur mörkum gegn Þýskalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni HM 2022. Framundan eru leikir gegn Armeníu og Liechtenstein.
25. mars 2021
U21 karla tapaði fyrir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM 2021, en leikið var í Györ í Ungverjalandi.
25. mars 2021
KSÍ minnir á að umsóknir um styrki úr mannvirkjasjóði þurfa að berast framkvæmdastjóra KSÍ fyrir 15. apríl ár hvert. Umsóknir skulu vera ítarlegar og ýmis gögn þurfa að fylgja.
24. mars 2021
Fyrirhuguðu héraðsdómaranámskeiði fyrir konur, sem halda átti 25. mars, hefur verið frestað. Tilkynnt verður um nýja dagsetningu síðar.
24. mars 2021
Tilkynnt hefur verið um hertar sóttvarnarreglur sem taka gildi á miðnætti 24. mars og gilda í 3 vikur. Íþróttir sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar eru óheimilar.
24. mars 2021
Vegna tilmæla heilbrigðisyfirvalda hefur KSÍ tekið þá ákvörðun að fresta öllum leikjum sem fara áttu fram í dag, miðvikudaginn 24. mars. Um er að ræða fjóra leiki í Lengjubikarnum og 9 leiki í yngri flokkum.
24. mars 2021
KSÍ hefur gengið frá tímabundinni ráðningu Gríms Gunnarssonar í hlutastarf á knattspyrnusvið. Grímur mun starfa við sálfræðimælingar og sálfræðitengda fræðslu til yngri landsliða, auk utanumhalds mæligagna í Soccerlab gagnagrunni KSÍ og annarra verkefna.
24. mars 2021
Ísland hefur leik á EM 2021 á fimmtudag þegar U21 karla mætir Rússlandi.
24. mars 2021
A landslið karla mætir Þýskalandi í Duisburg á fimmtudag, í fyrsta leik ársins og jafnframt 500. leik íslenska liðsins frá upphafi.
23. mars 2021
Ísland leikur fyrsta leik sinn á EM 2021 á fimmtudag, en þá mætir liðið Rússlandi í Györ.
23. mars 2021
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið 32 leikmenn frá 13 félögum sem taka þátt í æfingum 29.-31. mars.
23. mars 2021
A landslið kvenna mætir Ítalíu í vináttuleik í apríl og fer leikurinn fram ytra.
22. mars 2021
A landslið karla er komið til Düsseldorf í Þýskalandi og undirbúningur fyrir 500. leik liðsins frá upphafi er kominn á fullt, leik gegn Þjóðverjum í undankeppni HM 2022 á fimmtudag.
22. mars 2021
Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur á skrifstofu KSÍ, verður í námsleyfi frá miðjum september 2021 til loka maí 2022. Haukur mun sækja nám í Alþjóðlegri samningagerð og gerðardómsrétti við Fribourg-háskóla í Sviss.
22. mars 2021
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið 32 leikmenn frá 14 félögum sem taka þátt í æfingum 29.-31. mars.
19. mars 2021
Frestað: Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 25. mars kl. 17:30.
19. mars 2021
Síðari fundur leyfisráðs KSÍ í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2021 fór fram á miðvikudag og voru þátttökuleyfi 16 félaga samþykkt.