26. janúar 2021
Grunnnámskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið þriðjudaginn 2. febrúar í höfuðstöðvum KSÍ 3. hæð og hefst það kl. 17:00.
26. janúar 2021
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U18 karla, hefur valið 26 leikmenn frá 17 félögum á úrtaksæfingar.
22. janúar 2021
Ólafur Ingi Skúlason, nýráðinn þjálfari U19 landsliðs karla, hefur valið 25 leikmenn úr 14 félögum til æfinga 28. og 29. janúar næstkomandi. Leikmennirnir 25 koma úr 14 félögum.
22. janúar 2021
KSÍ hefur tilnefnt Skarphéðin Guðmundsson sem tengilið við fatlaða stuðningsmenn landsliða (Disability Access Officer – DAO).
22. janúar 2021
UEFA Foundation for Children kallar eftir verðlaunatilnefningum verkefna sem tengjast stuðningi við viðkvæma hópa barna eða aðlögun jaðarsettra hópa barna.
22. janúar 2021
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) fimmtudaginn 28. janúar kl. 17:00. Ókeypis aðgangur er á námskeiðið, sem stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
21. janúar 2021
KSÍ hefur ráðið Davíð Snorra Jónasson sem nýjan þjálfara U21 árs landsliðs karla.
21. janúar 2021
KSÍ hefur ráðið Ólaf Inga Skúlason sem nýjan þjálfara U19 landsliðs karla og U15 landsliðs kvenna og hefur hann þegar hafið störf.
20. janúar 2021
Sara Björk Gunnarsdóttir er í liði ársins sem kosið er af stuðningsmönnum á vef UEFA.
19. janúar 2021
KSÍ minnir á að tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing, eða í síðasti lagi miðvikudaginn 27. janúar nk.
19. janúar 2021
Endurskoðendur og leyfisfulltrúar sóttu rafrænan fjarfund í gegnum Teams sem haldinn var 5. janúar síðastliðinn.
18. janúar 2021
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ mánudaginn 25. janúar kl. 17:00.
18. janúar 2021
Knattspyrnusamband Íslands mun halda tvö KSÍ IV A þjálfaranámskeið á næstu vikum.
18. janúar 2021
Áfrýjunardómstóll ÍSÍ hefur kveðið upp úrskurð í máli nr. 2/2020 - Knattspyrnufélagið Fram gegn Knattspyrnusambandi Íslands. Málinu var vísað frá dómi.
18. janúar 2021
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 14. janúar kl. 17:00. Ókeypis aðgangur er á námskeiðið, sem stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
17. janúar 2021
Í liðinni viku fór fram þriðja og síðasta vinnulotan í UEFA CFM náminu. Vinnulotunni lauk með rafrænni útskriftarveislu og útskrifuðust 20 af þeim 30 sem hófu námið í mars 2020.
15. janúar 2021
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 25.-27. janúar.
15. janúar 2021
KSÍ vill vekja athygli á því að hægt er að sækja um sérstakan íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum. Hægt er að sækja um styrki til og með 1. mars 2021.