2. nóvember 2020
Ljóst er að ekki verður hægt að hefja keppni í Futsal-mótum um miðjan nóvember líkt áður hafði verið gefið út af mótanefnd.
2. nóvember 2020
RÚV íþróttir birtu frétt um fyrsta íslenska dómarakvartettinn sem var eingöngu skipaður konum í íþróttaþættinum síðastliðið sunnudagskvöld. Smellið hér að neðan til að skoða nánar.
1. nóvember 2020
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu um umfangsmiklar stuðningsaðgerðir við íþróttastarf í landinu vegna þeirra röskunar sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á starf þeirra.
30. október 2020
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í dag, föstudaginn 30. október, að hætta keppni í Íslandsmótum og bikarkeppni KSÍ 2020. Ákvörðunin tekur strax gildi.
30. október 2020
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi 31. október. Allt íþróttastarf verður óheimilt.
29. október 2020
Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er um boðun hertra aðgerða yfirvalda vegna Covid-19 hefur KSÍ ákveðið að fresta leikjum sem eru á dagskrá nk. laugardag í Lengjudeild karla og 2. deild kvenna.
29. október 2020
Auglýsingastofan Brandenburg hreppti hin virtu Clio verðlaun fyrir nýja ásýnd íslensku landsliðanna í knattspyrnu, en verkefnið vann stofan fyrir KSÍ.
29. október 2020
U21 karla átti að mæta Ítalíu í undankeppni EM í október, en leiknum var frestað vegna Covid-smits í röðum ítalska liðsins. Riðillinn er gríðarlega jafn og mikil spenna er fyrir síðustu lotu leikja í riðlinum sem fram fer í nóvember.
27. október 2020
A landslið kvenna tapaði með tveimur mörkum gegn Svíþjóð í kvöld, þriðjudagskvöld. Íslenska liðið sýndi góða frammistöðu gegn sterku liði Svía og er, þrátt fyrir tapið, í góðri stöðu til að ná 2. sæti riðilsins.
27. október 2020
Ein breyting er á byrjunarliði Íslands frá fyrri leik liðsins gegn Svíþjóð í september.
26. október 2020
Æfingar iðkenda sem fæddir eru 2004 og fyrr geta hafist í íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaganna mánudaginn 26. október.
26. október 2020
Ísland og Svíþjóð mætast í undankeppni EM 2022 á þriðjudag.
23. október 2020
KSÍ I þjálfaranámskeið verður haldið á höfuðborgarsvæðinu helgina 14.-15. nóvember næstkomandi. Skráningu lýkur 7. nóvember.
23. október 2020
Dregið verður í undankeppnina í Evrópu fyrir HM 2022 þann 7. desember næstkomandi í höfuðstöðvum FIFA í Zurich. Drættinum verður streymt á vefsíðu FIFA.
22. október 2020
Undankeppni eEURO 2021 hefst í byrjun næsta árs og verður lokakeppnin haldin í London sumarið 2021.
22. október 2020
Dregið var í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar kvenna í höfuðstöðvum UEFA í Genf í dag, fimmtudag. Íslandsmeistarar Vals mæta finnska liðinu HJK Helsinki á heimavelli 3. eða 4. nóvember.
22. október 2020
A landslið karla hækkar um tvö sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA. Belgar eru sem fyrr í efsta sæti og engin breyting er á efstu fimm sætunum.
22. október 2020
Almannavarnadeild höfuðborgarsvæðisins hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að meistaraflokkar og afrekshópar sem og afreksfólk í einstaklingsgreinum geti hafið æfingar í íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaganna og félaganna.