19. júlí 2019
Breyting hefur orðið á leik Breiðabliks og Grindavíkur í Pepsi Max deild karla og mun hann nú fara fram mánudaginn 22. júlí kl. 19:15 á Kópavogsvelli.
19. júlí 2019
Stjarnan komst áfram á fimmtudag í Evrópudeildinni þegar liðið sló út Levadia Tallin, frá Eistlandi, í framlengingu þar sem sigurmarkið kom í lok framlengingar.
19. júlí 2019
Undanúrslit Mjólkurbikars kvenna verða leikin á föstudag og laugardag. Á föstudag mætast Fylkir og Selfoss, en á laugardag eru það KR og Þór/KA sem berjast um sæti í úrslitaleiknum.
18. júlí 2019
U18 ára landslið karla mætir Lettlandi á föstudaginn í fyrri af tveimur vináttuleikjum þjóðanna. Leikurinn fer fram í Iecava í Lettlandi og hefst kl. 13:00.
17. júlí 2019
Opið er fyrir miðasölu á alla þrjá haustleiki A landsliðs karla í undankeppni EM 2020. Með kaupum á haustmiðum er hægt að tryggja sér miða á alla þrjá haustleikina í einum pakka og kaupandinn velur sitt sæti fyrir alla þrjá leikina.
17. júlí 2019
Mótsmiðasala á alla heimaleiki A landsliðs kvenna í undankeppni EM 2021 er í fullum gangi. Um er að ræða fjóra leiki á Laugardalsvelli, gegn Ungverjalandi og Slóvakíu um mánaðamótin ágúst/september 2019 og gegn Lettlandi og Svíþjóð í júní 2020.
17. júlí 2019
Stjarnan, KR og Breiðablik leika í Evrópudeildinni á fimmtudag, en um er að ræða síðari viðureignir liðanna.
17. júlí 2019
Valur mætir Maribor í dag í síðari leik liðanna í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn fer fram ytra og hefst kl. 18:15 að íslenskum tíma.
16. júlí 2019
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í WU15 Development Tournament í Hanoi, Víetnam, dagana 29. ágúst - 7. september.
16. júlí 2019
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í Danmörku 3.-10. ágúst.
16. júlí 2019
Helgi Mikael Jónasson verður dómari á leik rúmenska liðsins Universitatea Craiova og Sabail frá Aserbaídsjan í undankeppni Evrópudeildar UEFA, en liðin mætast í Rúmeníu á fimmtudag.
16. júlí 2019
Breyting hefur verið gerð á leiktíma leiks KR og Þór/KA í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna. Leikurinn fer nú fram kl. 14:00 laugardaginn 20. júlí.
16. júlí 2019
Heildarbreytingar á lögum KSÍ, sem samþykktar voru á ársþingi KSÍ á þessu ári, hafa nú tekið gildi. Dreifibréf þar sem breytingarnar eru kynntar hefur verið sent á aðildarfélög KSÍ.
15. júlí 2019
Þorvaldur Örlygsson, landsliðsþjálfari U18 karla, hefur kallað Arnór Gauta Jónsson og Eyþór Aron Wöhler, báðir frá Aftureldingu, í hópinn fyrir leikina tvo gegn Lettlandi.
12. júlí 2019
A landslið kvenna fer upp um fimm sæti á nýjum heimslista FIFA sem gefinn hefur verið út. Liðið er í dag í 17. sæti listans.
12. júlí 2019
Grasrótarverkefni KSÍ, Komdu í fótbolta, fer af stað nú um helgina en það er Siguróli Kjartansson sem fer fyrir verkefninu.
11. júlí 2019
Alls hafa 9.009 áhorfendur sótt leikina 43 sem leiknir hafa verið í Pepsi Max deild kvenna það sem af er sumri, eða 210 manns að meðaltali á hvern leik.
11. júlí 2019
Friðjón B. Friðjónsson er látinn. Friðjón gegndi trúnaðarstörfum fyrir Val um árabil, var gjaldkeri stjórnar KSÍ og ÍSÍ og var heiðraður fyrir sín störf.