18. september 2018
Breiðablik tryggði sér sigur í Pepsi-deild kvenna og þar með Íslandsmeistaratitilinn 2018 með því að leggja Selfoss á Kópavogsvelli á mánudagskvöld með þremur mörkum gegn einu. Þetta er í 17. sinn sem Breiðablik lyftir Íslandsmeistarabikarnum í meistaraflokki kvenna.
17. september 2018
Grasrótarvika UEFA hefst sunnudaginn 23. september nk. í tengslum við Íþróttaviku Evrópu (European Week of Sport) og stendur til 30. september. Af því tilefni ætlar KSÍ, í samstarfi við Knattspyrnufélagið Þrótt í Reykjavík, að bjóða upp á kynningu á því sem kallast heilsubolti, eða göngubolti. Þróttur hefur undanfarin misseri haldið úti öflugu starfi á þessu sviði, þar sem fólk á besta aldri hittist, spilar og hefur gaman.
17. september 2018
Félög sem starfrækja 4. flokk drengja og/eða stúlkna geta tilnefnt tvo drengi og tvær stúlkur hvert.
17. september 2018
Vegna niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ í tengslum við leik Hugins og Völsungs 17. ágúst sl. í 2. deild karla hefur mótanefnd KSÍ ákveðið að nýr leikur fari fram miðvikudaginn 19. september kl. 16.30.
17. september 2018
Fylkir tryggði sér um helgina sigur í Inkasso-deild kvenna með 3-1 sigri á Fjölni á Floridana-vellinum í Árbæ. Fylkir lauk keppni með 48 stig úr leikjunum 18, en á hæla þeirra fylgdi Keflavík með 46 stig og fylgja Keflvíkingar því Fylki upp í Pepsi-deildina 2019. Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir var í liði Fylkis egn Fjölni og lék sinn 274. leik með Árbæjarliðinu. Hún er leikjahæsti leikmaður meistaraflokks kvenna hjá Fylki.
16. september 2018
Vegna umfjöllunar um atvik í leik Hugins og Völsungs í 2. deild karla þann 17. ágúst síðastliðinn, samskipti KSÍ og Völsungs vegna sama máls og niðurstöðu áfrýjunardómstóls, vill KSÍ koma neðangreindu á framfæri.
16. september 2018
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur tekið fyrir mál nr. 3/2018, Knattspyrnudeild Völsungs gegn Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Leikur Hugins Seyðisfirði og Völsungs Húsavík í 2. deild sem leikinn var 17. ágúst 2018 á Seyðisfjarðarvelli er ógildur og skal endurtaka hann á Seyðisfjarðarvelli.
15. september 2018
Stjarnan er Mjólkurbikarmeistari karla eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Breiðablik. Leikurinn var markalaus eftir bæði venjulegan leiktíma og framlengingu, en það var Stjarnan sem reyndist öruggari á vítapunktinum.
13. september 2018
Eftir tilnefningu frá KSÍ hefur Alexander Harðarsyni verið boðið á þriðju alþjóðlegu ráðstefnu CAFE (Centre for access to football in Europe) sem haldin verður í Bilbao dagana 16.-17. nóvember nk. Þar mun hann halda erindi og taka þátt í umræðum um aðstöðu og aðgengi fatlaðra á knattspyrnleikvöngum í Evrópu.
13. september 2018
Á fundi Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ 11. september 2018 var tekin fyrir greinargerð sem framkvæmdastjóri KSÍ sendi til nefndarinnar þann 4. september. Fram kemur í greinargerðinni að málið varði ósæmilega framkomu Ólafs Jóhannessonar, þjálfara Vals í mfl. karla, í viðtali sem birtist þann 2. september 2018.
12. september 2018
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið eftirtalda leikmenn til keppni í undankeppni EM 2019 sem fram fer í Armeníu 29.september – 9.október 2018.
12. september 2018
Þór/KA tapaði 0-1 gegn Wolfsburg í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en leikið var á Akureyri.
12. september 2018
Þór/KA mætir Wolfsburg í dag í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikurinn fer fram á Þórsvelli og hefst hann klukkan 16:30.
11. september 2018
A landslið karla tapaði 3-0 fyrir Belgíu í öðrum leik liðsins í Þjóðadeild UEFA. Næsti leikur liðsins í Þjóðadeildinni fer fram 15. október þegar Ísland mætir Sviss á Laugardalsvelli.
11. september 2018
U21 árs lið karla tapaði 2-3 gegn Slóvakíu í undankeppni EM 2019, en leikurinn fór fram á Alvogenvellinum. Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk Íslands í leiknum.
11. september 2018
U21 ára lið karla mætir Slóvakíu í dag í undankeppni EM 2019. Leikurinn hefst klukkan 15:30 og fer fram á Alvogenvellinum. Byrjunarlið Íslands hefur verið tilkynnt og má sjá það í fréttinni.
10. september 2018
U21 ára lið karla mætir Slóvakíu í undankeppni EM 2019 á þriðjudaginn. Leikurinn fer fram á Alvogenvellinum og hefst hann klukkan 15:30.
10. september 2018
U19 ára lið karla vann góðan 4-1 sigur gegn Albaníu í seinni vináttuleik liðanna, en leikið er ytra. Það voru Birkir Heimisson, Viktor Örlygur Andrason og Arnór Borg Guðjohnsen, með tvö, sem skoruðu mörk Íslands.