13. júní 2018
Í dag, 13. júní, fór 68. þing FIFA fram í Moskvu, í tengslum við HM 2018 í Rússlandi. Fyrir þinginu lágu hefðbundin mál eins og breytingar á lögum og reglugerðum auk þess sem lagður var fram ársreikningur og fjárhagsáætlun fyrir árin 2019-2022. Það mál sem væntanlega vakti mesta athygli var atkvæðagreiðsla um það hvar HM karlalandsliða fer fram árið 2016.
12. júní 2018
Fyrir leik Íslands og Gana sem fram fór 7. júní, útskrifaði KSÍ 26 þjálfara með KSÍ A þjálfararéttindi. Námskeiðið hófst síðari hluta september 2017, en meðal þess sem gert var á námskeiðinu var leikgreining, tímabilaskipting, bóklegt og verklegt próf sem og hópavinna þar sem þær fylgdust með hver annarri að störfum í þeirra umhverfi undir eftirliti leiðbeinanda frá KSÍ.
12. júní 2018
Mánudaginn 11. Júní útskrifuðust 8 þjálfarar með KSÍ Afreksþjálfun Unglinga (UEFA Elita A Youth) þjálfaragráðu. Eins og nafnið gefur til kynna er efni námskeiðsins helgað því hvernig vinna skuli með efnilegum leikmönnum á aldrinum 15-19 ára. Einungis þjálfarar sem hafa KSÍ A/UEFA A þjálfararéttindi geta setið námskeiðið, en í nánustu framtíð skulu yfirþjálfarar í leyfiskerfi KSÍ hafa KSÍ Afreksþjálfun Unglinga þjálfararéttindi.
12. júní 2018
KSÍ mun í sumar heimsækja félög víðsvegar um landið og hitta þar fyrir hressa og skemmtilega krakka, setja upp knattþrautir, ræða við þjálfara, leikmenn og forráðamenn félaga.
12. júní 2018
Í lokakeppni HM í Rússlandi 2018 hyggst FIFA nofæra sér „Video-aðstoðardómgæslu“ sem oftast gengur undir nafninu VAR. Eins og flestir knattspyrnuaðdáendur hafa orðið varir við hafa verið gerðir tilraunir með notkun kerfisins á hinum ýmsu knattspyrnumótum.
11. júní 2018
A landslið kvenna vann 2-0 sigur gegn Slóveníu, en Glódís Perla Viggósdóttir skoraði bæði mörk liðsins í síðari hálfleik. Sigurinn fleytti liðinu í efsta sæti riðilsins þegar aðeins tveir leikir eru eftir.
11. júní 2018
U19 ára lið kvenna vann 2-0 sigur gegn Grikklandi í síðasta leik liðsins í milliriðli undankeppni EM 2018. Það voru Hlín Eiríksdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir sem skoruðu mörk Íslands.
11. júní 2018
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Slóveníu, en hann hefst klukkan 18:00.
11. júní 2018
Í lokakeppni HM í Rússlandi 2018 hyggst FIFA nofæra sér „Video-aðstoðardómgæslu“ sem oftast gengur undir nafninu VAR. Eins og flestir knattspyrnuaðdáendur hafa orðið varir við hafa verið gerðir tilraunir með notkun kerfisins á hinum ýmsu knattspyrnumótum.
11. júní 2018
Handhafar A og DE aðgönguskírteina geta framvísað þeim við innganginn fyrir leik Íslands og Slóveníu í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:00.
11. júní 2018
Stelpurnar í U19 leika í dag lokaleik sinn i millirðili EM U19 kvenna en riðillinn er leikinn í Póllandi. Ísland mætir Grikkjum og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma.
11. júní 2018
Stelpurnar í U19 leika í dag lokaleik sinn i millirðili EM U19 kvenna en riðillinn er leikinn í Póllandi. Ísland mætir Grikkjum og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma.
8. júní 2018
A landslið kvenna mætir Slóveníu í dag, en um er að ræða leik í undankeppni HM 2019. Með sigri fer Ísland á topp riðilsins, en Ísland á í dag þrjá leiki eftir í sínum riðli. Leikurinn hefst klukkan 18:00.
8. júní 2018
U19 ára lið kvenna tapaði í dag 0-2 gegn Noregi í öðrum leik liðsins í milliriðli undankeppni EM 2018.
8. júní 2018
Mikill uppgangur hefur verið í knattspyrnuiðkun í Bláskógarbyggð að undanförnu en alls stunda 70 krakkar knattspyrnu á svæðinu, 30 á Laugarvatni og 40 í Reykholti.
7. júní 2018
A landslið karla gerði 2-2 jafntefli við Gana á Laugardalsvelli, en það voru Kári Árnason og Alfreð Finnbogason sem skoruðu mörk Íslands.
7. júní 2018
A landslið karla er í 22. sæti á nýjum heimslista FIFA sem gefinn var út í dag og stendur því í stað frá síðustu útgáfu.
7. júní 2018
U19 ára lið kvenna mætir Noregi í dag í öðrum leik sínum í milliriðli undankeppni EM 2018, en leikið er í Póllandi. Ísland vann Pólland 1-0 í fyrsta leik sínum í riðlinum.