12. febrúar 2018
Reynir Björnsson og Haukur Björnsson sóttu hið sjöunda lækna málþing á vegum UEFA fyrir hönd KSÍ á dögunum, en það fór fram í Aþenu dagana 30. janúar – 1. febrúar síðastliðinn.
10. febrúar 2018
Rétt í þessu lauk 72. ársþingi KSÍ sem haldið var á Hótel Nordica Reykjavík.  Tveir nýir aðilar koma inn í aðalstjórn KSÍ að þessu sinni en 10 voru í framboði um fjögur sæti.
10. febrúar 2018
Nú er nýhafið 72. ársþing KSÍ en það haldið á Hilton Reykjavík Nordica.  Nokkrar tillögur liggja fyrir þinginu og verður fylgst með afgreiðslu þeirra hér í þessari frétt og verður hún uppfærð reglulega.
10. febrúar 2018
Á 72. ársþingi KSÍ voru veittar viðurkenningar fyrir háttvísi í deildarkeppni.  Dragostytturnar eru veittar í Pepsi-deild karla og Inkasso deildinni en sérstök háttvísiverðlaun í öðrum deildum.
10. febrúar 2018
Fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ fyrir árið 2017 hlýtur íþróttadeild RÚV fyrir þættina „Leiðin á EM“, heimildaþáttaröð í umsjá Eddu Sifjar Pálsdóttur og Maríu Bjarkar Guðmundsdóttur. 
10. febrúar 2018
Dómaraverðlaunun í ár hlýtur Fylkir fyrir öflugt dómarastarf í gegnum tíðina. Ásamt því að sinna vel málaflokknum í þeim leikjum sem félagið ber ábyrgð á að manna, hafa margir dómarar skilað sér frá Fylki inn í dómarahópinn sem starfar fyrir KSÍ. 
10. febrúar 2018
Íþróttafélagið Ösp hefur verið leiðandi í knattspyrnu fatlaðra hér á landi undanfarin ár. Blómstrandi knattspyrna er í boði fyrir fatlaða einstaklinga undir handleiðslu Darra McMahon, knattspyrnuþjálfara og framkvæmdastjóra félagsins. 
9. febrúar 2018
KSÍ stóð í dag fyrir málþingi í tengslum við Ársþing KSÍ 2018 undir yfirskriftinni:Sækjum fram #fyririsland - Málþing um stöðu og framtíð knattspyrnunnar á Íslandi. 
8. febrúar 2018
KSÍ og Vodafone hafa skrifað undir samstarfssamning og bætist Vodafone því í hóp bakhjarla sambandsins.
8. febrúar 2018
Föstudaginn 9. febrúar mun KSÍ standa fyrir málþingi um stöðu og framtíð knattspyrnunnar á Íslandi. Málþingið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal og byggt upp á örfyrirlestrum, auk pallborðsumræðu.
7. febrúar 2018
Laugardaginn 10. febrúar næstkomandi fer fram 72. ársþing KSÍ og verður það haldið á Hilton Reykjavík Nordica.  Alls hafa 151 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 144 frá 21 héraðssambandi eða íþróttabandalögum.
7. febrúar 2018
Ársþing KSÍ, það 72. í röðinni, fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, laugardaginn 10. febrúar.  Þingið verður sett kl. 11:00 en afhending þinggagna er frá 10:30.  Hér að neðan má sjá dagskrá þingsins.
7. febrúar 2018
Átta leikmenn léku sinn fyrsta unglingalandsleik með U17 kvenna í leikjunum tveimur gegn Skotlandi á dögunum og fengu afhent Nýliðamerki KSÍ. 
7. febrúar 2018
Þorvaldur Árnason dæmir í dag leik Krasnodar og Real Madrid í 16 liða úrslitum UEFA Youth League, en honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Guðmundsson og Andri Vigfússon.
6. febrúar 2018
Öll 24 félögin sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ fyrir keppnistímabilið 2018, þ.e. félögin í Pepsi-deild karla og Inkasso-deild karla, hafa skilað leyfisgögnum. Leyfisstjórn hefur þegar farið yfir gögnin og gert athugasemdir þar sem við á. 
6. febrúar 2018
Allar upplýsingar um 72. ársþing KSÍ, sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu laugardaginn 10. febrúar næstkomandi, má finna hér á vef KSÍ. Í aðdraganda þings eru ýmsar upplýsingar birtar, og á sjálfan þingdag má síðan fylgjast með framvindu mála
6. febrúar 2018
Þorlákur Árnason, þjálfari U15 karla, hefur valið úrtakshóp sem tekur þátt í æfingum helgina 16.-18. febrúar. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll.
6. febrúar 2018
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U16 ára landsliðs Íslands, hefur valið úrtakshóp sem tekur þátt í æfingum helgina 16.-18. febrúar. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll.