Verslun
Leit
SÍA

2. september 2017

A karla - Tap í Finnlandi

Íslenska landsliðið tapaði 1-0 í Finnlandi í undankeppni HM 2018. Eina mark leiksins kom á 8. mínútu en það var Alexander Ring sem skoraði beint úr aukaspyrnu. Íslenska liðið sótti stíft í leiknum og átti góð tækifæri til að jafna metin en inn vildi boltinn ekki.

Landslið

2. september 2017

U19 karla - 4-0 sigur á Wales í dag

U19 ára landslið karla lék í dag æfingaleik við Wales, en leikið var á Corbett Sport Stadium í Rhyl. Leikurinn endaði með 4-0 sigri Íslands.

Landslið

2. september 2017

A karla - Byrjunarlið Íslands gegn Finnum

Ísland leikur við Finnland klukkan 16:00 og er byrjunarlið Íslands hefur verið opinberað:

Landslið

1. september 2017

Úrskurður í máli Vals gegn Fjölni

Á fundi sínum, 1. september síðastliðinn, tók aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fyrir mál nr. 6/2017, Valur gegn Fjölni, vegna leiks liðanna í 5. flokki karla þann 26. ágúst 2017. Kærandi taldi kærða hafa teflt fram ólöglega skipuðu liði. 

Agamál

1. september 2017

Úrskurður í máli Fylkis og ÍBV

Á fundi sínum, 22. ágúst síðastliðinn, tók aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fyrir mál nr. 4/2017, Fylkir gegn ÍBV, vegna leiks liðanna í 2. flokki kvenna þann 1. ágúst 2017. Kærandi taldi kærða hafa teflt fram ólöglega skipuðu liði.

Agamál

1. september 2017

A karla - Ísland mætir Finnlandi á laugardag

A-landslið karla mætir Finnlandi á morgun, laugardaginn 2. september, í undankeppni HM 2018. Leikurinn fer fram í Tampere í Finnlandi og hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma.

Landslið

1. september 2017

Ósóttir miðar afhentir á Passion í Tampere

Nokkuð er um ósóttar miðapantanir á leik Finnlands og Íslands í undankeppni HM en leikið verður í Tampere á morgun, laugardaginn 2. september.  Stuðningsmenn Íslands ætla að hittast á veitingastaðnum Passion og þar geta þeir sem eiga eftir að sækja sína miða  nálgast þá á milli kl. 13 - 15.

Landslið

1. september 2017

Þóroddur dæmir í Noregi

Þóroddur Hjaltalín mun dæma leik Noregs og Ísrael í undankeppni EM U21 karla, en leikið verður í Drammen í Noregi. Þóroddi til aðstoðar verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari leiksins verður Ívar Orri Kristjánsson.

Dómaramál

1. september 2017

KSÍ I þjálfaranámskeið í september

Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ I þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu helgina 22.-24. september.

Fræðsla

1. september 2017

U21 karla - Ísland leikur fyrsta leik sinn í undankeppni EM 2019 - Byrjunarlið Íslands komið

U21 árs lið Íslands leikur sinn fyrsta leik í undankeppni EM 2019 á morgun þegar liðið mætir Albaníu. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli mánudaginn 4. september og hefst hann klukkan 17:00.

Landslið

31. ágúst 2017

Þorvaldur dæmir hjá Gíbraltar

Þorvaldur Árnason mun dæma leik Gíbraltar og Bosníu og Herzegovinu í undankeppni HM 2018, en leikið verður í Faro sunnudaginn 3. september. Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gylfi Már Sigurðsson, en fjórði dómari er Gunnar Jarl Jónsson.

Dómaramál

31. ágúst 2017

U17 karla - Æfingahópur vegna undirbúnings fyrir undankeppni Evrópumótsins

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið eftirfarandi leikmenn til þátttöku á æfingum dagana 8.- og 9.september. Eru æfingarnar liður í undirbúningi fyrir undankeppni Evrópumótsins, en Ísland mun leika í Finnlandi.

Landslið

31. ágúst 2017

Hæfileikamótun N1 og KSÍ á Norðurlandi

Þessa dagana er Hæfileikamótun N1 og KSÍ að fara af stað og er það Dean Martin sem fer fyrir verkefninu. Verður hún föstudaginn 1. september á Akureyri.

Fræðsla

30. ágúst 2017

Útskrift af nýrri þjálfaragráðu

Sunnudaginn 27. ágúst útskrifuðust 11 þjálfarar með KSÍ Afreksþjálfun Unglinga (UEFA Elita A Youth) þjálfaragráðu. Eins og nafnið gefur til kynna er efni námskeiðsins helgað því hvernig vinna skuli með efnilegum leikmönnum á aldrinum 15-19 ára.

Fræðsla

29. ágúst 2017

A kvenna - Hópurinn sem mætir Færeyjum í undankeppni HM

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Færeyjum í undankeppni HM.  Leikið verður á Laugardalsvelli, mánudaginn 18. september kl. 18:15 en þetta er fyrsti leikur íslenska liðsins í undankeppni fyrir HM í Frakklandi 2019.

Landslið

28. ágúst 2017

A karla - Ósóttir miða á leikinn gegn Finnlandi

KSÍ vill benda miðakaupendum að enn eru ósóttir miðar fyrir leikinn gegn Finnlandi á skrifstofu KSÍ. Síðasti dagur til að sækja þá er á morgun, þriðjudaginn 29. ágúst.

Landslið

28. ágúst 2017

U-18 karla - Ísland endaði í 4. sæti á móti í Tékklandi

U-18 ára landslið karla tók í síðustu viku þátt í átta liða móti í Tékklandi þar sem það var í riðli með Tékklandi, Slóvakíu og Úkraínu. Ísland endaði mótið í 4. sæti, eftir tap fyrir Bandaríkjunum í leik um 3.-4. sæti.

Landslið

28. ágúst 2017

A karla – Landsliðið er mætt til Finnlands

Leikmenn A landsliðs karla eru nú komnir til Finnlands og dvelja næstu daga í Helsinki þar sem liðið undirbýr sig fyrir leikina mikilvægu gegn Finnlandi og Úkraínu í undankeppni HM 2018.

Landslið