27. febrúar 2017
A landslið kvenna kom til Algarve í Portúgal seint í gærkveldi eftir langt og strangt ferðalag. Vegna snjóþunga í Reykjavík varð töluverð seinkun á flugi frá Keflavík sem varð til þess að hópurinn missti af tengiflugi frá Amsterdam til Lissabon.
27. febrúar 2017
U17 karla gerði 2-2 jafntefli í fyrsta leik sínum á UEFA-móti sem fram fer í Skotlandi. Austurríki komst tvívegis yfir í leiknum en strákarnir okkar náðu að jafna metin í tvígang og lauk leiknum því með jafntefli. Það var því farið beint í vítakeppni þar sem Austurríki hafði betur, 4-3, og fær því 2 stig en Ísland fær 1 stig.
27. febrúar 2017
Hæfileikamótun N1 og KSÍ fer fram í Hamarshöllinni föstudaginn 3. mars. Æfingarnar eru fyrir stráka sem eru fæddir 2003 og 2004. Það er Dean Martin sem fer fyrir verkefninu.
27. febrúar 2017
U17 karla hefur leik í dag á undirbúningsmóti UEFA en mótið fer fram í Skotlandi. Ísland er í riðli með Skotum, Króatíu og Austurríki og eru Austurríkismenn mótherjar Íslands í leiknum í dag sem hefst klukkan 15:30.
24. febrúar 2017
U17 kvenna vann 1-0 sigur á Austurríki í seinasta leik liðsins á UEFA æfingarmóti sem fram fór á Skotlandi. Eina mark leiksins kom í seinni hálfleik en það var Signý Elfa Sigurðardóttir sem skoraði mark Íslands í leiknum.
24. febrúar 2017
Hér að neðan má sjá þinggerð 71. ársþings Knattspyrnusambands Íslands, sem haldið var í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar síðastliðinn.
24. febrúar 2017
Í dag er leikið við lið Austurríkis sem unnið hefur báða leiki sína í mótinu til þessa. Leikurinn hefst kl.11 eins og leikur Skotlands og Tékklands.
23. febrúar 2017
Sara Björk Gunnarsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska landsliðsins, hefur verið tilnefnd í lið ársins í heiminum af FIFPro, Alþjóðlegu leikmannasamtökunum.
23. febrúar 2017
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram í Reykjaneshöllinni mánudaginn 27. febrúar. Æfingarnar eru fyrir stráka sem eru fæddir 2003 og 2004. Það er Dean Martin sem fer fyrir verkefninu.
22. febrúar 2017
U17 kvenna tapaði 3-0 í dag gegn Skotum á æfingamóti sem fram fer í Skotlandi. Skotar leiddu 1-0 eftir fyrri hálfleikinn og bættu svo við tveimur mörkum í síðari hálfleik.
22. febrúar 2017
U17 ára landslið kvenna mætir Austurríki þann 7. og 9. mars en leikirnir eru hluti af undirbúningi liðsins fyrir milliriðil EM U17 sem leikinn verður í lok mars. Leikirnir fara fram í Austurríki en æfingar fyrir leikina fara fram 3. – 5. mars.
22. febrúar 2017
Eftirtaldir leikmenn eru valdir á landsliðsæfingar U19 kvenna sem fram fara dagana 3. - 5. mars. 2017. Æfingarnar fara fram undir stjórn Þórðar Þórðarsonar landsliðsþjálfara U19 kvenna.
22. febrúar 2017
Ísland leikur gegn Skotlandi í dag á æfingamóti UEFA í Edinborg. Leikurinn hefst kl. 16:00 (ath breyttur leiktími).
22. febrúar 2017
Grunnnámskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið miðvikudaginn 1. mars í höfuðstöðvum KSÍ og hefst það kl. 18:00. Einar Sigurðsson fyrrum FIFA aðstoðardómari mun fara yfir ýmis lykilatriði í aðstoðardómgæslunni.
21. febrúar 2017
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Víking í Víkinni þriðjudaginn 28. febrúar kl. 19:00. Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Víking og hefst kl. 19:00.
21. febrúar 2017
U17 kvenna tapaði fyrir Tékkum, 1-0, í fyrsta leik sínum á æfingamóti á vegum UEFA en mótið fer fram í Skotlandi. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu en leikurinn var jafn og spennandi.
20. febrúar 2017
U17 ára landslið kvenna er þessa dagana í Skotlandi og tekur þar þátt í æfingamóti á vegum UEFA. Fyrsi leikur liðsins er gegn Tékkum í dag og hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma.
20. febrúar 2017
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá ÍA á Jaðarsbökkum mánudaginn 27. febrúar kl. 20:15. Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við ÍA og hefst kl. 20:15. Námskeiðið stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.