11. febrúar 2017
Það var ÍA sem hlaut Kvennabikarinn fyrir árið 2016 en það eru verðlaun fyrir háttvísi í Pepsi-deild kvenna.  Verðlaunin voru veitt á 71. ársþingi KSÍ sem haldið er Höllinni í Vestmannaeyjum. Þá fengu Grótta viðurkenningu fyrir prúðmannlega framkomu í 1. deild kvenna á síðasta tímabili.
11. febrúar 2017
KSÍ veitir Einherja frá Vopnafirði grasrótarviðurkenningu ársins 2016. Sumarið 2016 sendi Einherji lið til leiks í meistaraflokki, bæði í karla og kvenna, 4. og 5. flokki karla og 5. flokka kvenna. Á síðasta ári bjuggu 511 manns á Vopnafirði. 
11. febrúar 2017
Nú er nýhafið 71. ársþing KSÍ en það haldið í Höllinni í Vestmannaeyjum.  Nokkrar tillögur liggja fyrir þinginu og verður fylgst með afgreiðslu þeirra hér í þessari frétt og verður hún uppfærð reglulega.
9. febrúar 2017
Stuðningssveitin Tólfan hlýtur jafnréttisverðlaun KSÍ að þessu sinni. Tólfan er búin að festa sig í sessi sem ein af bestu stuðningssveitum heims en UEFA, FIFA og fleiri hafa tilnefnt Tólfuna til verðlauna fyrir magnaðan stuðning við landsliðin.
9. febrúar 2017
Sjónvarp Símans tryggði sér útsendingarrétt á úrslitakeppni EM karla sem fram fór í Frakklandi. Strax frá upphafi var ljóst að mikill metnaður var lagður í að gera upplifun áhorfenda sem besta og skilaði gott gengi landsliðsins sér heim í stofu á heimili landsmanna með lifandi og skemmtilegri nálgun hjá Sjónvarpi Símans.
9. febrúar 2017
Hörður Magnússon hefur um áralangt skeið flutt fréttir sem tengjast knattspyrnu sem og lýst ógrynni leikja í beinni útsendingu og séð um markaþætti úr fótboltanum. Á undanförnum árum hefur umfang og fagmennska í kringum beinar útsendingar og markaþætti stóraukist og hefur Hörður átt stóran þátt í að auka veg og vanda fótboltans með óeigingjarnri vinnu sinni hjá 365-miðlum.
9. febrúar 2017
Knattspyrnusambönd Íslands og Hollands hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik De Vijverberg vellinum í Doetinchem, þann 11. apríl næstkomandi. Leikurinn er liður í undirbúningi liðanna fyrir úrslitakeppni EM í sumar en Ísland mun einmitt leika á þessum velli í úrslitakeppninni.
9. febrúar 2017
Ísland tapaði fyrir Mexíkó í vináttuleik þjóðanna sem fram fór í Las Vegas í nótt. Lokaniðurstaða leiksins var 1-0 fyrir Mexíkó en mark leiksins skoraði Alan Pulido á 21. mínútu eftir aukaspyrnu.
9. febrúar 2017
Ísland mætir Mexíkó í nótt klukkan 3:06. Leikurinn fer fram á Sam Boyd leikvangnum í Las Vegas og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
9. febrúar 2017
Á nýjum styrkleikaslista FIFA, sem út kom í morgun, er íslenska karlalandsliðið í 20. sæti og hefur það aldrei verið hærra. Ísland fer upp um eitt sæti frá síðasta lista en Argentína trónir á toppi listans og Brasilía koma næstir.
9. febrúar 2017
KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið helgina 17.-19. febrúar 2017. Námskeiðið fer fram í Reykjavík. Sú breyting hefur orðið að nú er KSÍ IV námskeiðinu skipt í tvo hluta, KSÍ IV A og KSÍ IV B. Þjálfarar geta tekið þetta námskeið þó þeir hafi misst af fyrri hlutanum. Hann verða þeir þá að taka að ári.
8. febrúar 2017
Öll 24 félögin sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ fyrir keppnistímabilið 2017, þ.e. félögin í Pepsi-deild karla og Inkasso-deild karla, hafa skilað leyfisgögnum. Leyfisstjórn hefur þegar farið yfir gögnin og gert athugasemdir þar sem við á.
8. febrúar 2017
Vert er að vekja athygli á að hægt er að nálgast allar upplýsingar varðandi 71. ársþing KSÍ á einum stað hér á heimasíðunni.  Birtar hafa verið m.a. þær tillögur sem liggja fyrir þinginu sem og upplýsingar og nöfn þeirra sem eru í framboði.  Þá er birtur nafnalisti fyrir skráða þingfulltrúa og er hann uppfærður reglulega eða sem tilefni er til.
8. febrúar 2017
Ársþing KSÍ, það 71. í röðinni, verður haldið í Höllinni í Vestmannaeyjum, laugardaginn 11. febrúar.  Þingið verður sett kl. 11:00 en afhending þinggagna hefst kl. 10:30.  Hér að neðan má sjá dagskrá þingsins.
8. febrúar 2017
Þessa dagana er Hæfileikamótun N1 og KSÍ að fara af stað og er það Dean Martin sem fer fyrir verkefninu. Nú er leiðinni heitið á Akureyri þar sem æfingar verða fyrir félög af Norðurlandi.
8. febrúar 2017
Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni í kvöld þegar hann dæmir leik Rosenborgar og Basel í Ungmennadeild UEFA en leikið er í Þrándheimi.  Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Frosti Viðar Gunnarsson en fjórði dómari er norskur, Mads Folstad Skarsem.
7. febrúar 2017
A landslið karla leikur gegn Mexíkó á morgun í Las Vegas og hefur liðið, sem kom til Las Vegas á sunnudagskvöldið, undirbúið sig undir leikinn síðustu tvo daga. Tvær æfingar hafa farið fram og hefur þjálfarateymið notað þær til að undirbúa liðið sem best fyrir leikinn sem fram fer á Sam Boyd leikvanginum á morgun kl. 19:06 að staðartíma (3:06 ísl tíma aðfaranótt fimmtudags).
7. febrúar 2017
Laugardaginn 11. febrúar næstkomandi fer fram 71. ársþing KSÍ og verður það haldið í Höllinni í Vestmannaeyjum.  Alls hafa 153 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 147 fulltrúa frá 23 héraðssambandi eða íþróttabandalögum.