Verslun
Leit
SÍA

18. ágúst 2016

600 auka mótsmiðar fara í sölu í dag, föstudag

Vegna mikils áhuga á mótsmiðum fyrir undankeppni HM sem hefst í september hefur verið ákveðið að bæta við 600 mótsmiðum sem fara í sölu í dag, föstudag, og hefst miðasala klukkan 12:00 á www.midi.is. 

Landslið

17. ágúst 2016

Allir mótsmiðar á undankeppni HM eru uppseldir

Mótsmiðar á undankeppni HM sem fóru í sölu á miða.is í hádeginu í dag eru uppseldir. Alls er búið að selja 1500 mótsmiða sem gilda á alla heimaleiki Íslands í undankeppni HM. 

Landslið

15. ágúst 2016

Sænskur dómari dæmir leik Leiknis R. og Grindavíkur í Inkasso-deildinni

Sænskir dómarar munu dæma leik Leiknis R. og Grindavíkur í Inkasso-deildinni, þriðjudaginn 16. ágúst. Patrik Eriksson er dómari leiksins en annar af aðstoðardómurunum kemur einnigi frá Svíþjóð og heitir Pär Lindström.

Dómaramál

15. ágúst 2016

Mótsmiðasala fyrir undankeppni HM hefst á miðvikudaginn

Líkt og fyrir síðustu undakeppni EM karla verður nú hægt að kaupa mótsmiða á undankeppni HM karla sem hefst í september. Mótsmiði gildir á alla heimaleiki Íslands í undankeppni HM. Sala mótsmiða fer fram á www.midi.is og hefst miðvikudaginn 17. ágúst kl. 12:00.

Landslið

12. ágúst 2016

Hæfileikamótun KSÍ og N1 – Suðurland

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram á Hvolsvelli þriðjudaginn 16 ágúst.  Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.  

Fræðsla

12. ágúst 2016

Þorvaldur Árnason dæmir úrslitaleik Borgunarbikars karla

Þorvaldur Árnason dæmir sinn fyrsta bikarúrslitaleik í dag en það er leikur Vals og ÍBV í Borgunarbikar karla. Þorvaldur, sem er FIFA-dómari, var valinn besti dómari umferða 1-11 í Pepsi-deildinni, bæði af Fótbolta.net og Pepsi-mörkunum.

Dómaramál

12. ágúst 2016

Erlendur dæmir úrslitaleik Borgunarbikars kvenna

Erlendur Eiríksson verður dómari á bikarúrslitaleik Breiðabliks og ÍBV í Borgunarbikar kvenna en leikurinn er klukkan 19:5 í kvöld, föstudag.

Landslið

12. ágúst 2016

Úrtökumót fyrir drengi 2016 á  Laugarvatni 19.-21. ágúst

Úrtökumót KSÍ fyrir drengi fer fram á Laugarvatni, dagana 19. - 21. ágúst.  Umsjón með mótinu hefur Freyr Sverrisson . Félög leikmanna og leikmenn eru beðin um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar:

Fræðsla

11. ágúst 2016

Þórður Þórðarson heldur áfram sem þjálfari U19 kvenna

KSÍ og Þórður Þórðarson hafa náð samkomulagi um framlengingu á samningi Þórðar með U19 ára landslið kvenna. Samningur Þórðar er til 1. maí 2018 en framlengist fram yfir lokakeppni EM 2018 komist liðið þangað.

Landslið

11. ágúst 2016

Norskir dómarar dæma leik Hauka og Þórs í Inkasso-deildinni

Norski dómarinn Torkjell Traedal mun dæma leik Hauka og Þórs í Inkasso-deildinni sem fram fer á Ásvöllum, fimmtudaginn 11. ágúst. Samlandi hans, Thomas Skaiaa, mun verða honum til aðstoðar.

Dómaramál

9. ágúst 2016

U17 karla - Ísland vann silfrið á opna Norðurlandamótinu

U17 ára lið karla hampaði silfrinu á opna Norðurlandamótinu sem fram fór í Finnlandi. Danmörk vann úrslitaleikinn 2-0 en bæði mörk leiksins komu í upphafi leiksins.

Landslið

9. ágúst 2016

U17 karla - Ísland leikur til úrslita í dag á opna Norðurlandamótinu

U17 ára landslið karla leikur í dag úrslitaleikinn á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi. Mótherjar Íslands í leiknum eru Danir. Ísland vann sigra á Svíum og Færeyingum en tapaði gegn Svartfjallalandi í riðlakeppninni.

Landslið

7. ágúst 2016

U17 karla - Ísland leikur til úrslita eftir sigur á Svíþjóð

U17 karla leikur til úrslita á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi. Strákarnir okkar unnu góðan 2-1 sigur á Svíþjóð í dag og það er því ljóst að Ísland leikur til úrslita á þriðjudaginn. Frábær árangur hjá strákunum.

Landslið

5. ágúst 2016

A karla - Mótsmiðasala fyrir undankeppni HM hefst vikuna 15. - 19. ágúst

Hægt verður að kaupa mótsmiða á undankeppni HM karla sem hefst í september. Mótsmiði gildir á alla leiki í undankeppni HM sem leiknir eru á Íslandi.

Landslið

5. ágúst 2016

A karla - Helgi Kolviðsson ráðinn sem aðstoðarlandsliðsþjálfari

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, er samningsbundinn næstu tvö árin eða fram yfir lokakeppni HM í Rússlandi. Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari, mun áfram starfa með landsliðinu en hann hefur séð um markmannsþjálfun landsliðsins undanfarin ár. Helgi Kolviðsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarlandsliðsþjálfari en hann var í starfsliði landsliðsins á EM í Frakklandi.

Landslið

4. ágúst 2016

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu

Halldór Björnsson, yfirmaður hæfileikamótunar, mun vera með æfingar laugardaginn 13. ágúst  fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu fæddar 2002.  

Fræðsla

4. ágúst 2016

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir drengi á höfuðborgarsvæðinu

Halldór Björnsson yfirmaður hæfileikamótunar mun vera með æfingar föstudaginn 12. ágúst fyrir drengi á höfuðborgarsvæðinu, fædda 2002.

Fræðsla

3. ágúst 2016

U17 karla - Tap gegn Svartfjallalandi

U17 ára landslið karla tapaði 0-1 í fyrsta leik sínum á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Svartfjallalandi. Næsti leikur Íslands er gegn Færeyjum á föstudaginn og hefst leikurinn klukkan 16:00.

Landslið