29. apríl 2016
Skrifstofa KSÍ og ekki síður dómarar leikja fá mjög reglulega fyrirspurnir um það hversu mörgum leikmönnum má skipta inn á í einum leik.  Svarið er hins vegar ekki það sama í öllum tilfellum, því það skiptir máli í hvaða móti og hvaða aldursflokki er leikið. 
29. apríl 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U 16 liðs karla. Æfingarnar fara fram undir stjórn Freys Sverrissonar, þjálfara.
28. apríl 2016
Á fundi stjórnar KSÍ 22. apríl sl. voru samþykktar breytingar á reglugerð KSÍ um ferðaþátttökugjald. Um er að ræða smávægilega breytingu á bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar um að nettókostnaður vegna ferðaþátttökugjalds umfram kr. 75.000 á lið verði greiddur af KSÍ.
25. apríl 2016
Íslandsmótið í knattspyrnu hefst um næstu helgi, 1. maí, í 105. sinn frá því fyrsta mótið fór fram 1912. Næstu 5 mánuði fara fram mörg þúsund leikir í flestum ef ekki öllum sveitarfélögum landsins á vegum KSÍ þar sem rúmlega 20 þúsund iðkendur reyna með sér í Íslandsmóti og bikarkeppni KSÍ.
24. apríl 2016
Málstofa á vegum Knattspyrnusambands Íslands og Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands í samvinnu við íþróttasvið Háskólans í Reykjavík verður haldin málstofa í stofu m101 í Háskólanum í Reykjavík kl. 19.00, föstudaginn 29. apríl.
22. apríl 2016
Þeir sem hafa ekki tryggt sér miða á EM en hafa áhuga á að fara geta mögulega keypt miða í gegnum miðasölu sem opnar þann 26. apríl. Um er að ræða fyrstur kemur - fyrstur fær og skiptir því mestu máli að fara strax á miðasölukerfi UEFA þegar salan opnar til að sækja um miða.
20. apríl 2016
Skrifstofa KSÍ hefur tekið saman lista til upplýsinga fyrir félögin um þá leikmenn í meistaraflokki sem eiga eftir að taka út leikbönn vegna leikja fyrir keppnistímabilið 2015.  Sérstök athygli er vakin á því að gefnir eru út tveir listar, annars vegar fyrir Íslandsmót og Meistarakeppni KSÍ og hinsvegar fyrir bikarkeppni KSÍ og eru þeir hér að neðan. Á listanum eru leikmenn skráðir í þau félög sem þeir fengu leikbann með.
20. apríl 2016
Reykjavíkurborg og Höfuðborgarstofa hafa staðfest samstarf við KSÍ, Símann, Landsbankann, Icelandair, N1, Vífilfell, Borgun og Íslenskar Getraunir um viðburði á Ingólfstorgi á meðan á úrslitakeppni EM 2016 stendur í sumar.  Settur verður upp risaskjár þar sem allir leikir mótsins verða sýndir.
20. apríl 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í UEFA móti vegna U 17 liðs kvenna sem haldið verður í Eerikkilä í Finnlandi dagana 5. – 10. maí. Leikir fara fram undir stjórn Freys Alexanderssonar þjálfara U17 landsliðs Íslands.
20. apríl 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdnir til þátttöku í UEFA móti sem haldið verður í Eerikkilä Finnlandi.
19. apríl 2016
Breytingar þær sem Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda (IFAB) gerir á knattspyrnulögunum hverju sinni taka alla jafna ekki gildi fyrir en 1. júní ár hvert, en að fenginni heimild IFAB tók stjórn KSÍ þá ákvörðun að nýja útgáfa laganna skyldi gilda á Íslandi allt frá 25. apríl þegar Meistarakeppni KSÍ karla fer fram.
18. apríl 2016
Byrjendadómaranámskeið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ, mánudaginn 25. apríl. Námskeiðið er það síðasta sem haldið verður í Reykjavík að þessu sinni. Í október verður síðan aftur farið af stað með námskeiðahald hjá þeim félögum sem þess óska. Námskeiðið er haldið af KSÍ í hefst kl. 17:30.
13. apríl 2016
Á fundi stjórnar KSÍ 7. apríl s.l. samþykkti stjórn KSÍ breytingar á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Er um að ræða breytingar á reglum um hlutgengi leikmanna í yngri flokkum, leikskýrsluskráningar í 5. flokki og eldri leikmenn í 2. flokki kvenna. Þá er einnig að finna breytingar á mótafyrirkomulagi í 1. deild kvenna sem eru til komnar vegna fækkunar í C riðli.  Taka allar þessar reglugerðarbreytingar gildi þá þegar.
12. apríl 2016
Á fundi stjórnar KSÍ 7. apríl sl. samþykkti stjórn KSÍ breytingar á reglugerð KSÍ um knattspyrnuleikvanga. Breytingar þessar byggja á ályktunartillögu sem lögð var fyrir og samþykkt á 70. ársþingi KSÍ 2016 og varðar breytingar á reglum um kurl í grasi, útbúnað leikvalla og úrskurðarvald KSÍ um tæknilausnir.
12. apríl 2016
Á fundi stjórnar KSÍ 7. apríl sl. samþykkti stjórn KSÍ breytingar á reglugerð KSÍ um samninga, félagaskipti og stöðu leikmanna og félaga. Breytingar þessar byggja í grundvallaratriðum á niðurstöðum vinnuhóps um félagaskipti og samninga en skipan vinnuhópsins byggir á ályktunartillögu sem lögð var fyrir og samþykkt á 68. ársþingi KSÍ þann 15. febrúar 2014.
12. apríl 2016
A landslið kvenna vann öruggan fimm marka sigur á liði Hvíta-Rússlands þegar liðin mættust í undankeppni EM 2017 í Minsk í dag, þriðjudag.  Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennu í leiknum.  Úrslitin þýða að Ísland er með fullt hús eftir fjóra leiki og fylgir Skotlandi fast eftir í baráttunni um toppsætið.
12. apríl 2016
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ þriðjudaginn 19. apríl kl. 18:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Kristinn Jakobsson fyrrverandi FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.
11. apríl 2016
Freyr Alexandersson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Hvít-Rússum klukkan 15:00 í dag. Elísa Viðarsdóttir leikur sinn 25. landsleik í dag fyrir Íslands hönd.