9. október 2015
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri mætti Norður-Írlandi í vináttuleik á Samsung vellinum í Garðabæ í kvöld, föstudag. Ísland vann 2-0 sigur þar sem Albert Guðmundsson, leikmaður PSV Eindhoven, skoraði bæði mörkin.
8. október 2015
U21 árs lið karla vann í kvöld mikilvægan 0-1 sigur á Úkraínu á útivelli. Eina mark leiksins kom á 71. mínútu en það var Árni Vilhjálmsson sem skoraði markið. Árni hafði komið inn á sem varamaður og stuttu síðar skoraði hann markið mikilvæga.
8. október 2015
Ísland mætir Lettlandi í seinasta heimaleik í undankeppni EM 2016 á laugardaginn. Í tilefni af því er komin út rafræn leikskrá þar sem finna má viðtöl við Lars Lagerbåck og Gunnleif Gunnleifsson en einnig er efni sem tengist leiknum að finna í leikskránni.
8. október 2015
Íslenska U19 ára lið karla leikur tvo vináttuleiki við Norður Íra á komandi dögum. Á morgun, föstudag, leikur liðið á Samsung-vellinum í Garðabæ en leikurinn er klukkan 19:00. Seinni leikurinn er á sunnudaginn og verður hann leikinn á K&G-vellinum í Sandgerði. Leikurinn hefst klukkan 12:00 á sunnudaginn.
8. október 2015
Íslenska U21 landslið karla leikur í dag, fimmtudag, við Úkraínu í undankeppni EM 2017. Þetta er þriðji leikur liðsins en Ísland er með 7 stig á toppi riðilsins eftir þrjá leiki.
7. október 2015
KSÍ hefur um árabil kappkostað að vera virkt í innra starfi hjá UEFA og FIFA og á Ísland þannig sína fulltrúa á meðal alþjóðlegra eftirlitsmanna, dómaraeftirlitsmanna og starfsmanna leikja. Þessi þátttaka, og val UEFA og FIFA á einstaklingum frá Íslandi í alþjóðleg verkefni, er viðurkenning á því starfi.
7. október 2015
Þegar tvær umferðir eru eftir af undankeppni EM karlalandsliða 2016 hafa aðeins fimm þjóðir þegar tryggt sér sæti í lokakeppninni. Það er því ljóst að það verður spenna í öllum riðlum, þar sem efstu tvö lið hvers riðils komast beint í úrslitakeppnina og liðin í þriðja sæti komast í umspil.
7. október 2015
Kvennalandsliðið leikur tvo útileiki í október í undankeppni EM. Fyrri leikurinn er gegn Makedóníu í Skopje en leikurinn fer fram 22. október. Seinni leikurinn er gegn Slóveníu en sá leikur fer fram í Lendava þann 26. október.
7. október 2015
Það verða rússneskir dómarar sem dæma leik Íslands og Lettlands í undankeppni EM á laugardaginn. Aleksei Eskov er aðaldómari leiksins en sex dómarar dæma leikinn þar sem aukaaðstoðardómarar eru einnig í dómarateyminu.
6. október 2015
Eins og kunnugt er tekur Ísland á móti Lettlandi í síðasta heimaleik sínum í undankeppni EM karlalandsliða 2016 næstkomandi laugardag.  Þremur dögum síðar fer lokaumferð riðilsins fram og mætir íslenska liðið þá því tyrkneska í Konya i Tyrklandi.  Tyrkneska liðið hafur vaxið eftir því sem á keppnina hefur liðið.  Landsliðsmenn þeirra leika flestir í heimalandinu.
6. október 2015
Úrtaksæfingar vegna U17 landsliðs karla fara fram í Egilshöll og Kórnum dagana 9.-11. október næstkomandi. Alls hafa tæplega sextíu drengir verið valdir til æfinganna, sem fara fram undir stjórn Halldórs Björnssonar, þjálfara U17 landsliðs karla.
6. október 2015
Í tengslum við leiki í undankeppni EM karlalandsliða 2016, sem leiknir eru dagana 8. til 22. október, notar evrópska knattspyrnuhreyfingin tækifærið og efnir til sérstakra baráttudaga gegn rasisma í Evrópu.  Rasismi á engan tilverurétt í fótbolta!
6. október 2015
Kvennaráð Knattspyrnudeild Grindavíkur óskar eftir þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna í knattspyrnu fyrir tímabilið 2015-2016.
6. október 2015
Karlalandsliðið er komið saman og það æfði nú í morgun á Laugardalsvelli. Fjölmiðlar fjölmenntu til að taka viðtöl og myndir en auk íslenskra fjölmiðla voru nokkrir erlendir fjölmiðlar mætti til að taka viðtöl og efni enda mikill áhugi fyrir íslenska liðinu víða erlendis.
6. október 2015
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Íþróttafræðisvið Háskólans í Reykjavík og Knattspyrnusamband Íslands efna til málþings um andlega líðan íþróttamanna.
6. október 2015
Íslenskir dómarar munu dæma leiki í undankeppni EM U21 karla sem er í fullum gangi. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mun dæma leik Svíþjóðar og Eistlands sem fram fer þann 9. október. Með honum eru Gylfi Már Sigurðsson, Frosti Viðar Gunnarsson og Þóroddur Hjaltalín sem er fjórði dómari.
6. október 2015
Um 600 ungmenni tóku þátt í Hæfileikamótun KSÍ og N1 sem lauk nú um helgina með fótboltamóti drengja í Kórnum í Kópavogi, en stúlknamótið fór fram helgina 19.-20. september.
6. október 2015
Æfingaáætlun yngri landsliða veturinn 2015-2016 liggur nú fyrir og er skipulagið töluvert breytt frá því undanfarin ár. Í stað þess að þrír hópar æfi að jafnaði laugardag og sunnudag tvisvar í mánuði þá munu tveir hópar æfa föstudag/laugardag/sunnudag eina helgi í mánuði.