Verslun
Leit
SÍA

2. september 2015

46.500 miðar seldir á Holland-Ísland

Samkvæmt upplýsingum frá hollenska knattspyrnusambandinu hafa, þegar þetta er skrifað að morgni miðvikudags, verið seldir 46.500 miðar á leik Hollands og Íslands í undankeppni EM 2016, sem fram fer á Amsterdam Arena á fimmtudag.  Leikvangurinn tekur 52.960 manns í sæti og er búist við því að þeir miðar sem eru eftir seljist upp.&nbsp

Landslið

1. september 2015

Afhending miða à Holland-Ísland

Þeir sem keyptu miða á leik Hollands og Íslands í undankeppni EM og hafa ekki þegar sótt þá geta nálgast miðana sína á miðvikudag og fimmtudag (leikdag) í Hollandi.

Landslið

1. september 2015

U21 karla - Anton Ari í hópinn - Rúnar meiddur

Vegna meiðsla Rúnars Alex Rúnarsson kallar Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 karla Anton Ara Einarsson inn í landsliðhópinn gegn Frökkum og N-Írlandi.

Landslið

1. september 2015

U19 kvenna æfir 3. september

Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U19 kvenna hefur valið hóp til að æfa 3. september á grasvellinum fyrir utan Kórinn. Æfingin hefst 16:30 en hún er liður í undirbúningi U19 liðsins fyrir undanriðil Evrópumótsins sem spilaður verður í Sviss 15. – 20. september.

Landslið

31. ágúst 2015

A karla - Ólafur Ingi í hópinn en Emil verður ekki með

Ólafur Ingi Skúlason, leikmaður tyrkneska liðsins Genclerbirligi, hefur verið kallaður í hópinn og kemur hann til Amsterdam í kvöld, mánudag. Emil Hallfreðsson, leikmaður Verona á Ítalíu, er meiddur og mun ekki taka þátt í leiknum gegn Hollandi.

Landslið

29. ágúst 2015

Hæfileikamótun KSÍ á Norðurlandi þann 1. september

Hæfileikamótun KSÍ verður á Akureyri þriðjudaginn 1.september. Halldór Björnsson yfirmaður hæfileikamótunar mun vera með æfingu hjá bæði stelpum og strákum frá félögum á Norðurlandi. Æfingarnar verða á KA-velli.

Fræðsla

28. ágúst 2015

Landsliðshópurinn sem mætir Hollandi og Kasakstan

Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerback, landsliðsþjálfarar, hafa tilkynnt hópinn sem leikur við Holland og Kasakstan í undankeppni EM en leikirnir fara fram þann 3. og 6. september.

Landslið

28. ágúst 2015

Viðtöl við Lars og Heimi um leikinn gegn Hollandi - Myndbönd

Landsliðsþjálfararnir Lars Lågerback og Heimir Hallgrímsson svöruðu spurningum fjölmiðlamanna í hádeginu um komandi verkefni gegn Hollandi.

Landslið

27. ágúst 2015

Um 100 miðar lausir á Holland-Ísland

Uppgjöri á miðasölu KSÍ á leikinn Holland-Ísland í undankeppni EM karla 2016 er nú lokið og liggur fyrir að um 100 miðar eru eftir til sölu (ósóttar/ógreiddar pantanir, o.fl.).  Nú er því lokatækifæri fyrir áhugasama að tryggja sér miða á leikinn.

Landslið

26. ágúst 2015

Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir Suðurnes

Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir Suðurnes verður í Grindavík föstudaginn 28.ágúst og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4. flokki. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Fræðsla

26. ágúst 2015

U21 karla - Hópurinn sem mætir Frökkum og Norður Írum

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt hópinn sem leikur gegn Frökkum og Norður Írum í undankeppni EM. Fyrri leikurinn er gegn Frökkum þann 5. september og fer hann fram á Kópavogsvelli.

Landslið

25. ágúst 2015

Áfram Ísland með opinn sölubás á Laugardalsvelli á mánudag

Stuðningsmannahópurinn Áfram Ísland hefur lengi fylgt íslensku landsliðunum í knattspyrnu og selt varning í litum landsliðsins til að auka stemmningu.  Mánudaginn 31. ágúst milli kl. 15:00 og 19:00 verður Áfram Ísland með opinn sölubás á Laugardalsvelli.

Landslið

24. ágúst 2015

Andri dæmir í Moldavíu

Andri Vigfússon verður í eldlínunni en hann mun dagana 27. – 29. ágúst dæma í undankeppni Futsal Cup, Evrópukeppni félagsliða í Futsal.  Riðillinn sem fer fram í Moldavíu en þar mætast félagslið frá Armeníu, Belgíu auk Moldavíu.

Dómaramál

24. ágúst 2015

Hæfileikamótun N1 og KSÍ á Vestfjörðum

Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir Vestfirði  verður á Ísafirði þriðjudaginn 25. ágúst og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4. flokki. Strákar eiga að mæta  kl.15:00 og  stelpur  kl. 16:30 .  Smellið hér að neðan til að sjá nöfn þeirra sem boðuð hafa verið á þessar æfingar.

Fræðsla

20. ágúst 2015

Leyfiskerfi FIFA innleitt í árslok 2016

FIFA hefur tilkynnt að leyfiskerfi FIFA, sem smíðað er að mestu eftir leyfiskerfum UEFA og AFC (Knattspyrnusambands Asíu), verði innleitt í árslok 2016.  Undirbúningsvinna hefur staðið yfir um nokkurra ára skeið og nú styttist í innleiðingu kerfisins fyrir öll aðildarsambönd FIFA.

Leyfiskerfi

20. ágúst 2015

Vegleg dagskrá fyrir íslenska stuðningsmenn í Amsterdam

Stuðningssveitin Tólfan hefur skipulagt veglega dagskrá fyrir íslenska stuðningsmenn í tengslum við leik Hollands og Íslands í undankeppni EM karlalandsliða 2016, en liðin mætast í Amsterdam þann 3. september.  Á leikdegi er ætlunin að Íslendingar taki yfir Dam-torg og máli Amsterdam í bláum lit.

Landslið

20. ágúst 2015

Ósóttir miðar á Holland-Ísland afhentir á skrifstofu KSÍ til og með 26. ágúst

Vegna ósóttra miða á leikinn Holland-Ísland í undankeppni EM karla 2016 er bent á að þau sem keyptu miða í gegnum midi.is geta sótt miðana á skrifstofu KSÍ á Laugardalsvelli, milli kl. 09:00-12:00 og 13:00-16:00 virka daga til og með miðvikudeginum 26. ágúst.  

Landslið

20. ágúst 2015

Þróttur auglýsir eftir þjálfurum og íþróttafulltrúa

Knattspyrnufélagið Þróttur í Reykjavík auglýsir eftir starfsfólki.  Leitað er að þjálfurum fyrir yngri flokka, yfirþjálfara barna- og unglingastarfs, og íþróttafulltrúa.  Nánari upplýsingar veitir Ótthar Edvardsson framkvæmdastjóri Þróttar.

Fræðsla