Verslun
Leit
SÍA

30. júní 2014

U17 karla - 33 leikmenn boðaðir á úrtaksæfingar 11. og 12. júlí

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 33 leikmenn fyrir úrtaksæfingar sem fram fara á grasvellinum við Kórinn dagana 11. og 12. júlí.  Listi yfir þá leikmenn sem valdir hafa verið má sjá hér að neðan.

Landslið

25. júní 2014

Ertu góð vítaskytta?

Í tilefni af Ólympíudeginum býður KSÍ félögum að koma og hitta landsliðsmarkmennina Gunnleif Gunnleifsson, Söndru Sigurðardóttur og Ögmund Kristinsson. Viðburðurinn verður á gervigrasvellinum í Laugardal mánudaginn 30. júní á milli kl. 10.00-11.30.

Fræðsla

24. júní 2014

U17 kvenna - Hópurinn fyrir Norðurlandamótið í Svíþjóð

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur á Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð dagana 4. - 9. júlí. Ísland er í riðli með Hollandi, Englandi og Svíþjóð og er fyrsti leikurinn gegn heimastúlkum.

Landslið

24. júní 2014

Balkan - Ísland á föstudag

Á föstudag mætast á Samsung-vellinum í Garðabæ leikmenn af Balkanskaganum sem hafa leikið með íslenskum félagsliðum og íslenskar kempur í vináttuleik til styrktar fórnarlömbum flóða á Balkanskaga.  Allur ágóðinn rennur óskipt til hjálparstarfs á hamfarasvæðum í gegnum Rauða kross Íslands.

Fræðsla

20. júní 2014

Styrkleikalisti FIFA kvenna - Ísland niður um eitt sæti

Íslenska kvennalandsliðið er í sautjánda sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun.  Íslenska liðið fer niður um eitt sæti frá síðata lista en Bandaríkin eru sem fyrr í efsta sæti og Þjóðverjar koma þar á eftir.

Landslið

20. júní 2014

Hæfileikamótun KSÍ og N1 á Hornafirði

Þorlákur Árnason yfirmaður Hæfileikamótunar KSÍ og N1 verður á Hornafirði, mánudaginn 23. júní.  Þorlákur verður með æfingar fyrir 4. flokk drengja frá 12:00 - 13:30 og svo fyrir 4. flokk stúlkna frá 16:30 - 18:00.

Fræðsla

20. júní 2014

Ívar Orri dæmir í Færeyjum - Finnskir og færeyskir dómarar dæma hér á landi

Eins og undanfarin ár standa norrænu knattspyrnusamböndin að dómaraskiptum þar sem efnilegum dómurum gefst kostur á því að dæma í öðrum löndum.  Ívar Orri Kristjánsson dæmir tvo leiki í Færeyjum og færeyskir og finnskir dómarar verða að störfum hér á landi á laugardaginn.

Dómaramál

19. júní 2014

A kvenna - Öruggur sigur í Laugardalnum

Íslenska kvennalandsliðið vann öruggan sigur í kvöld á Möltu með fimm mörkum gegn engu en leikurinn var í undankeppni fyrir HM í Kanada og fór fram á Laugardalsvelli.  Yfirburðir íslenska liðsins voru miklir frá upphafi til enda en forystan var þrjú mörk þegar flautað var til leikhlés.  Ísland er í öðru sæti riðilsins með 13 stig.

Landslið

19. júní 2014

Ísland mætir Möltu í kvöld

Stelpurnar okkar mæta Möltu í kvöld í undankeppni HM en leikið verður á Laugardalsvelli kl. 18:00.  Íslenska liðið er í harðri baráttu um annað sætið í riðlinum og þar getur hvert stig og hvert mark skipt miklu máli.  Miðasala er í fullum gangi á heimasíðu midi.is og miðasala opnar á Laugardalsvelli kl. 16:30.

Landslið

19. júní 2014

Rafræn leikskrá fyrir Ísland - Möltu

Út er komin rafræn leikskrá í tilefni af landsleiks Íslands og Möltu í undankeppni HM.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli í kvöld, fimmtudaginn 19. júní og hefst kl. 18:00.  Ýmislegt efni er í leikskránni m.a. viðtöl við Söru Björk Gunnarsdóttur fyrirliða, Glódís Perlu Víggósdóttur og landsliðsþjálfarann Frey Alexandersson.

Landslið

18. júní 2014

Ísland mætir Möltu - KSÍ skírteini gilda við innganginn

Handhafar A og DE skírteina geta framvísað þeim við innganginn fyrir leik Íslands og Möltu í undankeppni HM kvenna en leikið verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 19. júní kl. 18:00.  Ekki þarf því að nálgast miða á skrifstofu KSÍ fyrir leikinn.

Landslið

18. júní 2014

U16 karla - Úrtaksæfing fer fram sunnudaginn 29. júní

Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingu sem fram fer sunnudaginn 29. júní á Framvelli.  Freyr velur 30 leikmenn fyrir þessa æfingu en þetta er hluti af undirbúningi fyrir þátttöku Íslands á Ólympíuleikum ungmenna sem fara fram í Kína í ágúst.

Landslið

16. júní 2014

U17 kvenna - Úrtaksæfingar í Fífunni miðvikudaginn 18. júní

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar sem fram fara í Fífunni, miðvikudaginn 18. júní.  Æfingarnar eru hluti af undirbúningi fyrir Norðurlandamót U17 kvenna sem fram fer í sumar.

Landslið

16. júní 2014

A kvenna - Miðasala hafin á Ísland - Malta

Miðasala er hafin á leik Íslands og Möltu í undankeppni HM en leikið verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 19. júní kl. 18:00.  Íslenska liðið er í harðri baráttu um annað sætið í riðli sínum þegar fjórir leikir eru eftir hjá liðinu.  Allir þeir leikir eru á heimavelli og markar þessi leikur gegn Möltu upphafið af þessari heimaleikjahrinu.

Landslið

16. júní 2014

A kvenna - Thelma og Sonný í landsliðshópinn

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt breytingu á landsliðshópi Íslands fyrir leikinn gegn Möltu en Thelma Björk Einarsdóttir, Selfossi, kemur í hópinn í staðinn fyrir Mist Edvardsdóttur.

Landslið

15. júní 2014

1-1 jafntefli í Vejle

A landslið kvenna gerði í dag, sunnudag, 1-1 jafntefli við Dani í undankeppni HM 2015, en liðin mættust í Vejle í Danmörku.  Þetta var lykilleikur fyrir bæði lið og þó sigur hefði verið mun þýðingarmeiri fyrir íslenska liðið í baráttunni um sæti í umspili heldur liðið öðru sæti riðilsins.

Landslið

15. júní 2014

HM kvenna 2015:  Byrjunarlið Íslands gegn Dönum

A landslið kvenna mætir Dönum í lykilleik í undankeppni HM 2015 í dag, sunnudag.  Leikið er í Vejle í Danmörku og hefst leikurinn klukkan 11:00 að íslenskum tíma. Smellið hér að neðan til að skoða byrjunarlið Íslands.  Hægt er að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á heimasíðu UEFA.

Landslið

12. júní 2014

A kvenna - Danski hópurinn sem mætir Íslendingum

Danir hafa tilkynnt hópinn sem mætir Íslendingum í undankeppni HM í Vejle, sunnudaginn 15. júní kl. 11:00 að íslenskum tíma. Af 18 leikmönnum í danska hópnum koma 13 þeirra frá tveimur félagsliðum, meisturum Fortuna Hjorring og Brondby.

Landslið