Verslun
Leit
SÍA

8. maí 2014

Svissneskur sigur í Nyon

A landslið kvenna beið í dag, fimmtudag, lægri hlut gegn Sviss í undankeppni HM 2015, en liðin mættust á Colovray-leikvanginum í Nyon, rétt við höfuðstöðvar UEFA.  Lokatölur leiksins voru 3-0.  Svissneska liðið, sem er lang efst í riðlinum, er feykisterkt og rétt er að fylgjast vel með því í náinni framtíð.

Landslið

8. maí 2014

Byrjunarlið A kvenna gegn Sviss í Nyon

A landslið kvenna mætir Sviss í undankeppni HM 2015 í dag, fimmtudag, kl. 17:00 að íslenskum tíma og er leikið í Nyon í Sviss, rétt við höfuðstöðvar UEFA.  Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska liðsins, hefur opinberað byrjunarlið Íslands.

Landslið

8. maí 2014

A kvenna - Ísland mætir Sviss í dag

Ísland mætir Sviss í dag í undankeppni HM 2015 en leikið verður í Nyon. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma en þarna mætast tvær efstu þjóðirnar í riðlinum. Minnt er á textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA.

Landslið

7. maí 2014

Rúna aðstoðardómari á leik Englands og Úkraínu

Rúna Kristín Stefánsdóttir verður aðstoðardómari á leik Englands og Úkraínu í undankeppni HM kvenna 2015 en leikið verður í Shrewsbury á morgun, fimmtudaginn 8. maí. Rúna starfar á leiknum með sænskum dómara og aðstoðardómara. Þá hefur Rúna einnig verið valin sem einn átta af aðstoðardómurum í úrslitakeppni EM U19 kvenna sem fram fer í Noregi, 15. - 27. júlí.

Dómaramál

7. maí 2014

A kvenna - Leikið gegn Sviss á morgun

Kvennalandsliðið undirbýr sig nú af kostgæfni fyrir leikinn gegn Sviss í undankeppni HM en leikið verður í Nyon á morgun, fimmtudaginn 8. maí. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma en þarna mætast þjóðirnar sem verma tvö efstu sætin í riðlinum.

Landslið

5. maí 2014

Áfrýjunardómstóll KSÍ - Úrskurður aganefndar staðfestur

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefurt staðfest úrskurð Aga- og úrskurðarnefndar varðandi leikbann leikmanns Augnabliks vegna atviks í leiks Vatnaliljanna og Augnabliks í Lengjubikar karla sem fram fór 16. apríl síðastliðinn.

Agamál

3. maí 2014

A Kvenna - Ásgerður Stefanía inn fyrir Rakel

Sú breyting er á landsliðshóp kvenna sem mætir Sviss að Rakel Hönnudóttir, leikmaður Breiðabliks, þurfti að draga sig úr hópnum sökum meiðsla en Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, leikmaður Stjörnunnar, kemur í hennar stað í hópinn.

Landslið

2. maí 2014

Reglugerð KSÍ um aga – og úrskurðarmál - Mismunun

Í janúar 2014 voru sett inn ný ákvæði í reglugerð KSÍ um aga-og úrskurðarmál vegna tilskipunar FIFA og áherslu á að taka fast á hvers kyns mismunun eða fordómum.  Ákvæðið er þýðing á ákvæði í agareglugerð FIFA sem öllum knattspyrnusamböndum innan FIFA ber að taka upp.

Agamál

30. apríl 2014

A landslið kvenna - Hópurinn sem mætir Sviss 8. maí

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Sviss í undankeppni HM, fimmtudaginn 8. maí.  Svissneska liðið hefur byrjað undankeppnina vel og er í efsta sæti riðilsins með 16 stig eftir 6 leiki.  Íslenska liðið er í öðru sæti með 9 stig eftir 4 leiki.

Landslið

30. apríl 2014

Hæfileikamótun á Ísafirði 30. apríl og 1. maí

Þorlákur Árnason yfirmaður hæfileikamótunar verður á Ísafirði á miðvikudag og fimmtudag. Á miðvikudagskvöldið  verður hann með fund með forráðamönnum BÍ/Bolungarvíkur og á fimmtudag verða æfingar með iðkendum 4.flokks drengja og stúlkna.

Fræðsla

28. apríl 2014

Aðgönguskírteini fyrir dómara og eftirlitsmenn 2014

Þeir dómarar sem dæmt hafa tilskilinn fjölda leikja og hafa sent skrifstofu KSÍ mynd af sér, geta sótt aðgönguskírteini sín á skrifstofu KSÍ á föstudaginn. Öruggara er þó að hringja á undan sér og fá staðfest að skírteinið sé tilbúið.

Dómaramál

28. apríl 2014

Kveðja frá KSÍ

Við fráfall Hannesar Þ. Sigurðssonar sér knattspyrnuhreyfingin á Íslandi á bak góðum félaga. Hannes var sæmdur æðsta heiðursmerki knattspyrnusambands Íslands, heiðurskrossinum, árið 2007, fyrir vel unnin störf sem dómari, fræðimaður og eftirlitsmaður. Hannes var skoðunarmaður reikninga hjá sambandinu í 60 ár, en lét af þeim störfum 2013 og var heiðraður fyrir vel unnin störf á ársþingi KSÍ 2013.

Pistlar

25. apríl 2014

Sjötta skýrsla UEFA um fjármál evrópskra félaga

UEFA hefur birt sjöttu útgáfu af árlegri skýrslu sinni um evrópska knattspyrnu - UEFA Club Licensing Benchmarking Report - sem byggir á leyfisgögnum þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfi í aðildarlöndum UEFA, alls um 700 knattspyrnufélögum að ýmsum stærðum  og gerðum.

Leyfiskerfi

24. apríl 2014

Leikmaður Augnabliks úrskurðaður í tímabundið bann

Á fundi Aga-og úrskurðarnefndar KSÍ, 23. apríl 2014, var Hrafnkell Freyr Ágústsson, Augnabliki, úrskurðaður í tímabundið leikbann til 6 vikna vegna brottvísunar í leik Vatnaliljanna og Augnabliks í mfl. karla 16. apríl 2014.

Agamál

23. apríl 2014

U19 kvenna - Naumt tap gegn Skotum

Stelpurnar í U19 léku í morgun seinni leik sinn á undirbúningsmóti UEFA en leikið var í Færeyjum. Mótherjarnir voru Skotar og höfðu þeir betur, 0 - 1, með marki í uppbótartíma. Tómas Þóroddsson sendi okkur eftirfarandi umfjöllun um leikinn.

Landslið

23. apríl 2014

U19 kvenna - Leikið gegn Skotum í dag

Stelpurnar í U19 leika í dag síðari leik sinn á undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Færeyjum. Leikið er gegn Skotum og hefst leikurinn kl 09:00 að íslenskum tíma. Úlfar Hinriksson hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það skipað eftirtöldum leikmönnum:

Landslið

22. apríl 2014

KSÍ fær viðurkenningu fyrir samstarf við Special Olympics

Knattspyrnusamband Íslands hlaut á dögunum viðurkenningu frá Evrópusamtökum Special Olympics fyrir farsælt samstarf við Special Olympics á Íslandi.  Það var Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ, sem veitti viðurkenningunni móttöku.

Fræðsla

22. apríl 2014

U19 kvenna - Sigur gegn Færeyjum á undirbúningsmóti UEFA

Stelpurnar í U19 lögðu stöllur sínar frá Færeyjum í morgun í fyrri leik liðsins á undirbúningsmóti UEFA en leikið er í Færeyjum.  Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Ísland sem leiddi með einu marki í leikhléi.

Landslið