Verslun
Leit
SÍA

13. apríl 2014

U17 kvenna í Belfast:  Flottur 4-0 sigur á Wales

U17 landslið kvenna, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, byrjaði undirbúningsmót UEFA fyrir þennan aldursflokk ansi vel með flottum 4-0 sigri á Wales í dag, sunnudag.  Næsti leikur er strax á mánudag kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður mótherjinn þá lið heimamanna, Norður-Íra.

Landslið

13. apríl 2014

U17 kvenna í Belfast:  Byrjunarliðið gegn Wales í dag

U17 landslið kvenna, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, mætir Wales í dag, sunnudag, kl. 10:00, í sérstöku undirbúningsmóti UEFA.  Þetta er fyrsti leikur liðsins af þremur í þessu móti.  Úlfar Hinriksson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

11. apríl 2014

U17 karla í Belfast:  Fimm marka sigur á Færeyingum

U17 landslið karla, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, vann öruggan 5-0 sigur í lokaleik sínum í sérstöku undirbúningsmóti UEFA sem fram fór í Belfast á Norður-Írlandi.  Íslenska liðið hafnaði því í þriðja sæti með þrjú stig, eftir eins marks töp í leikjum gegn Wales og Norður-Írlandi.

Landslið

11. apríl 2014

Mikilvægt að treysta böndin milli knattspyrnufélags og stuðningsmanna

KSÍ stóð fyrir sérstökum vinnufundi um málefni stuðningsmanna fimmtudaginn 10. apríl.  Á fundinum var fjallað um hlutverk og mikilvægi tengiliðs félags við stuðningsmenn og mikilvægi þess að treysta böndin milli knattspyrnufélaga og stuðningsmanna. 

Fræðsla
Leyfiskerfi

11. apríl 2014

Byrjunarlið U17 karla gegn Færeyingum í dag

U17 landslið karla, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, mætir frændum okkar, Færeyingum, í dag föstudag kl. 10:00 í lokaleik sínum í sérstöku undirbúningsmóti UEFA, sem fram fer í Belfast.  Byrjunarlið Íslands hefur verið opinberað.

Landslið

10. apríl 2014

A kvenna - Stórsigur á Möltu

Ísland vann í dag stórsigur á Möltu í undankeppni HM en leikið var ytra.  Lokatölur urðu 0 – 8 fyrir Ísland sem leiddi með fjórum mörkum í leikhléi.  Yfirburðir íslenska liðsins voru algerir frá upphafi og einungis spurningin um hversu stór sigurinn yrði. Næsti leikur Íslands í riðlinum er gegn Sviss á útivelli, 8. maí.

Landslið

10. apríl 2014

1-1 jafntefli við Króatíu í síðasta leik í milliriðli

U19 landslið kvenna gerði 1-1 jafntefli við Króata í lokaleik sínum í milliriðli fyrir EM, en leikið var í Króatíu í dag, fimmtudag.  Íslenska liðið var sterkari aðilinn í leiknum og með smá heppni hefði sigurinn getað lent okkar megin.

Landslið

10. apríl 2014

Hættir með U19 kvenna eftir 15 ár og 104 leiki

Ólafur Þór Guðbjörnsson hefur tilkynnt að hann muni hætta þjálfun U19 landsliðs kvenna að loknum milliriðlinum sem liðið lék í núna í apríl.  Fyrsti leikur liðsins undir stjórn Ólafs Þórs var í ágúst 1999 og hefur hann því verið við stjórnvölinn í tæp 15 ár og skilað frábæru starfi. 

Landslið

10. apríl 2014

Byrjunarlið U19 kvenna gegn Króatíu

U19 kvenna mætir Króatíu í dag í lokaleik sínum í milliriðli fyrir EM.  Hvorugt liðið á möguleika á að komast upp úr riðlinum, en með sigri getur íslenska liðið lyft sér upp fyrir Króata í þriðja sætið.   Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands.

Landslið

10. apríl 2014

A kvenna - Byrjunarliðið gegn Möltu

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Möltu í undankeppni HM. Leikið er á Centenary vellinum á Möltu og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma eða kl. 14:00 að staðartíma.  Fylgst verður með leiknum á Facebook síðu KSÍ.

Landslið

10. apríl 2014

A kvenna - Ísland mætir Möltu í dag í undankeppni HM

Ísland mætir Möltu í dag í undankeppni HM en leikið verður á Centenary Stadium á Möltu. Leikurinn hefst kl. 14:00 að staðartíma eða kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Byrjunarlið Íslands verður tilkynnt hér á síðunni um tveimur tímum fyrir leik og fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ.

Landslið

9. apríl 2014

U17 - Eins marks tap gegn Norður Írum

Íslenska U17 ára landslið karla tapaði 1-0 gegn Norður Írum á æfingarmóti í dag. Leikurinn var heldur bragðdaufur en eina mark leiksins kom á 31.mínútu. Markið kom eftir hornspyrnu en íslenska liðið náði ekki að hreinsa frá eftir hornið og það nýttu Norður Írarnir.

Landslið

9. apríl 2014

A kvenna - Allir leikmenn með á æfingu dagsins

Allir leikmenn hópsins tóku þátt í æfingu dagsins á Cenetary vellinum á Möltu en á sama velli mætast Malta og Ísland í undankeppni HM á morgun, fimmtudaginn 10. apríl. Leikurinn hefst kl. 14:00 að staðartíma eða kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Fylgst verður með leiknum á Facebook síðu KSÍ.

Landslið

9. apríl 2014

Byrjunarlið U17 karla gegn N-Írlandi í dag

U17 landslið karla, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, mætir Norður-Írum í Belfast í dag, miðvikudag kl. 17:30 að íslenskum tíma.  Þetta er annar leikur liðsins í sérstöku undirbúningsmóti UEFA.  Nokkrar breytingar eru gerðar á byrjunarliðinu milli leikja.

Landslið

9. apríl 2014

Þættir um dómara hefjast á Stöð 2 Sport á fimmtudag

Þriðja liðið er fjögurra þátta sería sem fjallar um knattspyrnu út frá sjónarhorni dómaranna. Í þáttunum fylgjum við dómurum eftir í undirbúningi þeirra, æfingum, leikjum og fáum einnig að heyra hvað fer þeim á milli á meðan leik stendur.

Dómaramál

8. apríl 2014

Naumt tap gegn Wales

U17 landslið karla, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, tapaði naumlega í dag, þriðjudag, fyrir Wales í sérstöku undirbúningsmóti UEFA, sem fram fer í Belfast á Norður-Írlandi.  Lokatölur leiksins urðu 2-1 fyrir welska liðið og komu öll mörkin í fyrri hálfleik.

Landslið

8. apríl 2014

Starfsskýrsluskil til ÍSÍ 15. apríl

Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ rennur frestur til að skila starfsskýrslum til ÍSÍ út 15. apríl næstkomandi.  Skýrslunum skal skila í gegnum Felix, skráningarkerfi ÍSÍ og UMFÍ.  Nánari upplýsingar veitir skrifstofa ÍSÍ.

Fræðsla

8. apríl 2014

Byrjunarliðið gegn Wales í dag

U17 landslið karla, skipað leikmönnum fæddum 1998 og síðar, hefur leik í dag á sérstöku undirbúningsmóti UEFA, sem fram fer í Belfast á Norður-Írlandi.  Mótherji dagsins er Wales, og hefst leikurinn kl. 10:00 að íslenskum tíma.  Byrjunarliðið hefur verið tilkynnt.

Landslið