30. október 2013
Króatía og Ísland mætast í umspili um sæti í lokakeppni HM 2014 í nóvember, eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um.  Seinni leikurinn fer fram á Maksimir-leikvanginum í Zagreb kl. 20:15 að staðartíma.
30. október 2013
Um komandi helgi fara fram á Akureyri  landshlutaæfingar fyrir stúlkur fæddar 1998-2001. Alls hefur 61 leikmaður verið boðaður á æfingarnar, sem fram fara á KA-velli og í Boganum.  Um tvo hópa leikmanna er að ræða - Leikmenn fæddir 1998 og 1999 æfa saman annars vegar, og hins vegar leikmenn fæddir 2000 og 2001.
30. október 2013
Alls hafa 90 leikmenn frá félögum víðs vegar um landið verið boðaðir á úrtaksæfingar fyrir U17 og U19 landslið karla um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi og Egilshöll í Reykjavík. Um tvo æfingahópa er að ræða hjá U17 karla - leikmenn fædda 1997 annars vegar og 1998 hins vegar.
29. október 2013
Tvær æfingar voru á dagskránni í dag hjá kvennalandsliðinu sem þessa dagana er statt í Belgrad í Serbíu.  Framundan er mikilvægur leikur í undankeppni HM en leikið verður við heimastúlkur á fimmtudaginn.  Leikuirnn hefst kl. 14:00 að staðartíma á fimmtudaginn eða kl. 13:00 að íslenskum tíma.
29. október 2013
Uppselt er á leik Íslands og Króatíu sem fram fer á Laugardalsvelli þann 15. nóvember nk. Mikil óánægja hefur komið fram um hvernig staðið var að miðasölu á leikinn en hún hófst kl. 4 í nótt. Var það gert í góðri trú um að með þeim hætti væri hægt að láta miðasölu ganga áfallalaust fyrir sig.
29. október 2013
Uppselt er á viðureign Íslands og Króatíu í umspili um sæti í lokakeppni HM 2014, en liðin mætast á Laugardalsvelli föstudaginn 15. nóvember næstkomandi.  Miðasalan opnaði snemma morguns í dag, þriðjudag, og seldist upp á fáeinum klukkustundum.
28. október 2013
Íslenska kvennalandsliðið er komið til Belgrad en framundan er leikur í undankeppni HM á fimmtudaginn gegn Serbum. Leikurinn fer fram á FK Obilic Stadium og hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma. Serbar náðu góðum úrslitum í síðasta leik þegar liðið gerði jafntefli gegn Dönum, 1 - 1, og því ljóst að um hörkuleik verður að ræða á fimmtudaginn.
28. október 2013
Handhafar A-skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Króatíu í umspili fyrir lokakeppni HM 2014 þriðjudaginn 29. október kl. 09:00 til kl. 16:00 eða eins og miðarnir endast. Gríðarleg eftirspurn er eftir miðum á þennan leik og því er ekki hægt að verða við óskum um að kaupa aukamiða í þetta skiptið.
28. október 2013
Miðasala á leik Íslands og Króatíu í umspili um sæti í úrslitakeppni HM 2014 hefst á þriðjudag og fer sem fyrr fram á vefsíðunni midi.is.  Miðaverð verður óbreytt frá síðustu leikjum.  Ljóst er að eftirspurnin eftir miðum á þennan leik er gríðarleg og því er rétt að hafa hraðar hendur, þar sem mun færri komast að en vilja. 
24. október 2013
Knattspyrnudeild Völsungs á Húsavík óskar eftir að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk karla.
23. október 2013
Knattspyrnudeild Hattar á Egilsstöðum óskar eftir að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk karla. Höttur féll úr 2. deild í haust og spilar því í 3. deild á næsta ári. Metnaður félagsins er að liðið fari strax upp aftur.
23. október 2013
Úrtaksæfingar verða um helgina hjá U17 og U19 kvenna og hafa þjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson valið hópa fyrir þessar æfingar.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöll.
22. október 2013
Um næstu helgi, 25. - 27. október, verður KSÍ með 2. stigs þjálfaranámskeið. Dagskrá helgarinnar er hér að neðan. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. Námskeiðsgjald er kr. 17.500,- Námskeiðið er opið öllum þjálfurum sem lokið hafa KSÍ I þjálfaranámskeiði.
22. október 2013
Kristinn Jakobsson mun á fimmtudaginn, dæma leik Swansea og Kuban Krasnodar frá Rússlandi í Evrópudeild UEFA, fimmtudaginn 24. október.  Aðstoðardómarar Kristins verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Áskell Þór Gíslason og fjórði dómari verður Gunnar Sverrir Gunnarsson.  Aukaaðstoðardómarar verða þeir Þóroddur Hjaltalín og Gunnar Jarl Jónsson. 
22. október 2013
Miðasala á leik Íslands og Króatíu hefst þegar leiktími hefur verið staðfestur, fjöldi miða til mótherja hefur verið staðfestur og ljóst er að miðasölukerfi geti tekið við miklu álagi.  Þetta þýðir að miðasalan hefst í fyrsta lagi um næstu helgi.
22. október 2013
Íslenska kvennalandsliðið heldur til Serbíu í vikunni en það leikur við serbneska landsliðið á fimmtudaginn í komandi viku í riðlakeppni fyrir HM. Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, segir ekkert annað en sigur í leiknum koma til greina í leiknum.
22. október 2013
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hópinn sem mætir Serbum í undankeppni HM, fimmtudaginn 31. október næstkomandi.  Leikið verður ytra, á FK Obilic Stadium í Belgrad. 
21. október 2013
Strákarnir í U15 lögðu Moldóva í dag í úrslitaleik um sæti á Ólympíuleikum ungmenna en þeir fara fram í Nanjing í Kína á næsta ári.  Lokatölur urðu 3 - 1 fyrir Ísland sem leiddu í leikhléi, 2 - 0.  Á laugardaginn lögðu Íslendingar Finna, 2 - 0.